Morgunblaðið - 19.09.1971, Side 2
2
MORGUNBLAÐIB, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1971
Lúðvík Jósefsson í BBC:
Engir samningar við
nokkurn aðila
— í landhelgismálinu
London 18. sept. AP. I í kvöld að Alþjóðadómstóllinn
SJÁVARÚTVEGSMAlARAÐ- hefði ekkert dómsvald yí'ir kröfu
HERRA íslands, Lúðvík Jósefs- lands hans um fimmtíu mílna
son sagði í brezka sjónvarpinu I fiskveiðilögsögu.
Goðaf oss í Bolungarvík
Stærsta skip sem þar
hefur lagzt að bryggju
Bolungarvík, 17. sept.
I GÆR lestaði Goðafoss hér um
340 leetir af hraðfrystum fiski
til Sovétríkjanna. Er Goðafoss
Þíða í
varnarmálum
I FRÉTT um „þíðu“ í varnar-
málum íslands, sem birt var
í blaðinu í gær, féll niður eitt
af lykilorðum fréttarinnar
sem höfð var eftir bandaríska
vikuritinu Newsweek. I henni
var sagt að Bandaríkjastjórn
hefði m. a. fengið diplomat-
iska aðstoð frá Noregi, en það
fór framhjá þýðandanum að
Newsweek sagði einnig að
fengin hefðd verið aðstoð
norskra fjölmiðla.
stærsta skip, sem hér leggst að
bryggju eða 3000 smálestir að
stærð.
Bolvikingar eru þaklklátir for-
ráðamönnum Eimskipaflélagsins
og skipstjióranum á Goðafossi
flyrir þetta framtak, því að hing
að til hafa menn verið tregir til
að legigja hér að með sitór skip.
Skipstjiórinn á Goðafbssi taldi
bryggj uaðs töðu hér mj6g góða.
Dýpkunarskipið Grettir hefur
verið hér í allt sumar, og graf-
ið upp alla höflnina. Er dýpið í
henni nú orðið uim 20 fet. Þá
er unnið að smíði bryggju í
innri höfninni fyrir fiskibá ana,
og batnar þá enn aðlstaða til lest
unar og losunar stærri skipa.
— Hallur.
Lúðvík Jósefsson sagði einnig
að hann hefði ekki trú á því að
útfærsla fiskveiðitakmarkanna
mundi hafa nýtt „Þorskastríð"
í for með sér milli fiskveiðiþjóða
Vestur-E vrópu,
Hann lagði áherzlu á að Is-
lendingar væru ekiki tilbúnir að
„gera nokkra samninga við
nokkurn aðila“ varðandi fyrir-
ætlun íslendinga um að færa út
fiskveiðitakmörkin úr tólf mílum
í fimmtíu í september næsta ár.
Lúðvík Jósefsson sagði að fyrir-
ætlanirnar um útfærslu væru
ekki saminingisatriði.
Bemard Margarite og kona hans.
Kunnur franskur blaðamaður
kynnir sér íslenzk málefni
KUNNUR blaðamaður frá Frakk-
landi, Bemard Margarite hefur
verið hér á ferð ásamit konu
sinni, en hann ætlar að storifa
í blað sitt, Le Monde tvær grein-
ar um ísland, aðra um stjórn-
málaviðhorfin og þá einkum við-
horf íslenzku ríkisstjórnarinnar
til Nato, og um landhelgismálið,
og hina greindna í forrni „Bréfs
frá íslandi", þar sem hann lýsir
hinum ýmsu áhrifum, er hann
hefur orðið fyrir.
M. Margarite kom hér við á
leið sinni til Bandaríkjanna fyrir
mánuði og áttj þá m.a. viðtal
við utanrikisráðherra og tals-
mann ríkisstjómarinnar, Hannes
Jónsson, blaðamenn á stjórnar-
blöðunum sem honum var kocnáð
í samiband við í ráðuneytinu og
hann ræddi við menn á Kefla-
víkurflugvelli o. fl. Nú í leið-
inni til baka skrapp hann norður
í land og átti viðtöl við menn
í Reykjavík.
Bemard Margarite hefur verið
fréttaritari Le Monde í ýmaum
löndum. Hann var í Varsjá í
Póllandi frá 1967 og fram í aprU
sl. Ekki var honum beint vísað
úr landi, að því er hann tjáðti
Mbl., en smám saman var honum
gert erfiðara fyrir, eftir að
greinar hans birtust, og loks
fékk hann ekki vegabréfsáritun.
franalengda. Nú mun hann
dvelja 2 mánuði heima í París
við störf á Le Monde, en feri
síðan til Vínarborgar og verður.
fréttaritari blaðsins í Mið-
Evrópulöndunum austantjalds,
svo sem Ungverjalandi, Búlgaríu
o. fl. og ferðast þangað frá
Vínarborg.
Forsíða nýju fngiabókarinnar
Palme svarar harðri
gagnrýni N.Y. Times
— Vegna afhendingar Nóbelsverðlaunanna
til Solshenitsyns
Stokkhólmi, 17. september
— NTB
OLOF Palme, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, hefur sent
New York Times bréf, þar
sem hann svarar harðri gagn-
rýni á sænsku stjórnina, sem
kom fram í Ieiðara blaðsins
14. september sl. Gagnrýnin
var í sambandi við afhendingu
Nobels-verðlaunanna til Alex-
Ný fuglabók komin:
Texti og myndir af
1100 fuglum
BÓKAÚTGAFAN Fjölvi er
að fara af stað með fjölfræði
bókaflokk og er fyrsta bókin,
Stóra fuglabókin, komin út.
Er þetta ein stærsta náttúru-
fræðibók, sem komið hefur
út hér á landi, nær 600 blað-
síður og með 1100 fallegum
Ijósmyndum í litum og svart-
hvítu. Tékkneskur fuglafræð-
ingur, j. Hanzak, er höfund-
ur þessarar bókar, en Friðrik
Sigurbjörnsson þýddi og end-
ursagði hana með staðfærslu
að íslenzkum staðháttum.
í þessum fjölfræðibókaflokki
eru fyrirhugaðar aðrar bækur,
um dýralífið, fiskana, skordýrin,
jurtirnar og loks um þróun
mannsins og eru þær allar jafn
umfangsmiklar og fuglabókin.
Næst verður jurtabókin, sem
Ingólfur Daviðsson, grasafræð-
ingur mun væntanlega þýða, Qg
staðfæra.
1 formála bókarinnar segir
m.a.: — Bók sú sem hér birtist
er upphaflega tékknesk að stofni
en hefur vérið þýdd á fjölmörg
tungumál og fengið mikla út-
breiðslu. Hún er fyrsta bók á
okkar máli, sem fjállar um fugla
ríkið í heild og gefur yfirlit um
það i öllum heiminum. Þýðend-
um á hin ólíku tungumál hefur
verið 'gefinn laus taumur með
að endursegja bókina eftir að-
stæðum og fuglaáhuga í hverju
landi, og svo hefur hinn íslenzki
þýðandi einnig gert og aukið
miklu inn í hana um þá fugla
íslenzka, sem mestu máli skipta
fyrir okkur. Og ennfremur er
skýrt frá því að í bókinni sé
getið meira en 1000 ólíkra
fuglategunda. Það er mjög mis-
jafnlega mikið skrifað um þær,
en alltaf er áherzla lögð á að
draga fram ýmis sérkenni, eitt-
hvað athyglisvert í lifnaðarhátt-
um þeirra. Og er þarna t.d. all-
ítarlegar greinargerðir um ali-
fugla. Annars staðar hefur ver-
ið þörf á að skrifa mjög stutt
urri fugla i eða liánast í sím-
skeytastíl.
anders Solzhenitsyns.
Sænska stjórnin hafði sagt,
að ef Solzhenitsyn gæti ekki
komið til Stokkhólms til að
taka á móti verðlaununum,
gæti hann fengið þau afhent
í sænska sendiráðinu i
Moskvu. Hins vegar vildi
stjórnin ekki fallast á að nokk
ur viðhöfn yrði í því sam-
bandi þar sem hún leit svo á,
að það gæti talizt pólitísk ögr-
un yið stjórn Sovétrikjanna.
iSÍew York Times sagði í
leiðara sinum að þessi fram-
koma væri ekki til að auka
á virðingu Svíþjóðar í heim-
inum. Blaðið segir, að þau rök
að viðhöfn við afhendinguna
gæti talizt pólitisk ögrun við
Sovétríkin, séu einkennileg.
„Pálme, forsætisráðherra, virð
ist ekki hafa dottið í hug að
bann við viðhöfn geti líka tal-
izt af pólitískum toga, talizt
athyglisverður undirlægjuhátt
ur gagnvart lista-stjórnmála-
stefnu sovézkiþ, stjómarinn-
ar.“ Blaðið bætir því við, að
stjórnin í Stokkhólmi virðist
ekki hafa haft neinar tilsvar-
andi áhyggjur í sambandi við
margendurteknar fordæming-
ar sínar á þátttöku Bandaríkj-
anna á stríðinu í Víetnam, eða
þegar hún hefur tekið við
bandariskum liðhlaupum.
1 svari sínu segir Palme, að
New York Times hljóti að
hafa fengið einhverjar rangar
upplýsingar, en forystugrein-
in bryddi á forvitnilegri spurn
íngu: Hvert sé hlutverk
sendiráða í viðskiptum þjóða?
Hann bendir á, að sænska
akademían og Nóbelsnefndin
séu óháðar stofnanir og
sænska stjórni skipti sér því
áldrei af hverjum séu veitf
verðlaun. 1 þeim tilfellum,
þegar verðlaunahafi getur
ekki komið til Stokkhólms til
að taka við verðlaununum,
hefur það komið fyrir að þau
hafa veriS veitt í sendiráði
Sviþjóðar í viðkomandi landi.
Palme segir og: „Það er ör-
uggt að sænska sendiráðið í
Moskvu var fúst til að af-
henda verðlaunin. Sænska
sendiráðið var hins vegar
ekki reiðubúið til að gera það
með þeirri viðhöfn, sem full-
trúi útgefenda skáldsins fór
fram á, þar sem það hefði fal-
ið í sér ögrun við það land,
sem sendiráðið starfar í.“
Sýningu
Steingríms
lýkur í dag
MÁLVERKASÝNINGU Stein-
gríms Sigurðssonar í Casa Nova
lýkur á sunnudagskvöld fel. 11,30.
Sýningin hefur verið mjög vel
sótt, tæplega 900 manlia hafa
séð sýninguna og 70% myndanna
hafa selzt að sögn Steingríms.
Útlána-aukning-
in tvöfaldaðist
í FRÉTT um Landsbankann ;t
blaðinu í gær var ranglega sagt,
að heildarútlán bankans hefðu
tvöfaldazt fyrstu 8 mánuði ársina.
Hið rétta er, að útlánaaukningin
fyrstu 8 mánuði ársins er um
það bil helmingi meiri en á sama
tíma í fyrra.
Norski Miöflokkurinn:
Vill að 3/4
styðji EBE-aðild?
Ósló, 17. sept., NTB.
FORMABUR norska Miðflokks-
ins, John Austrheim, gaf í skyn
í dag, aS svo kynni að fara að
flokkur hans myndi krefjast
aukins meirihluta eða þriggja
fjórðu hluta atkvæða við
þjóðaratkvæðagreiðsluna um
Efnahagsbandaiag Evrópu, Aður
en flokkur hans beygði sig fyrir
fullri aðild Noregs. Austrheim
sagði, að þessi mál yrði að ræða
til hlítar, en hann vildi ekki láta
uppi um það, hvort flokkur hans
myndi setja það á oddinn að slík-
ur meirihluti fengist.
I úmræðum flokksleiðtoga í
Noregi um þetta í dag sagði Káre
Willoch, formaður Hægri flokks-
ins, að með því að setja fraim
slíká hugmynd væri almemningur
raunar settur út úr spilinu fyrir-
fram. Það var Trygve Bratteli,
forsætisráðherra, sem beiindi
þeirri spumirugu til Austrheims,
hvað hefði breytzt síðan ríkis-
stjórn Bortens hefði tvívegia
mælt með fullri aðild að EBE.
Austrheim sagði, að viðhorf
hefðu breytzt, þar sem menn
væru teknir að gera sér Ijósari
grein fyrir þeim afleiðingum,
sem alger aðild hefði í för með
sér.
Austur-
land
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins I AuStilt1-
landskjördæmi, verður hadd-
inn í barnaskólaniim á Egiis-
stöðum dagana 24. og 25.
september n.k. og hefst kl.
20.001 föstudaginn 24. septem-,
ber. .<■