Morgunblaðið - 10.07.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JULÍ 1976
7
Tvennir
samningar
við Breta
— og Alþýðu-
bandalagið
Hamagangur Alþýðu-
bandalagsins gegn ný-
gerðum skammtíma veiði-
samningum við Breta hef-
ur nú hjaðnað niður í ekki
neitt. Útifundur, sem efnl
var til, í samvinnu við tvo
aðra stjórnmálaflokka, og
I nafni Alþýðusambands
íslands, beraði svo Ijós-
lega, að ekki þurfti lengur
vitnanna við, að andstaða
við þessa samninga var
mjög takmörkuð með
þjóðinni. Þetta verður
þeim mun skitjanlegra
þegar bornir eru saman
þessir samningar og
samningarnir frá 1973,
sem gerðir voru i sjávarút-
vegsráðherratið Lúðviks
Jósepssonar, og þing-
menn Alþýðubandalags
ins stóðu að allir sem
einn.
Samningarnir frá 1973,
sem Alþýðubandalagið
bar ábyrgð á, náðu til
tveggja ára, á annað
hundruð brezkra togara
og samtals 260 þúsund
tonna af þorski, ef allt er
talið. Þeir fólu þó hvorki í
sér viðurkenningu á út-
færslu fiskveiðilandhelg-
innar I 50 sjómilur, sem
þá var slegizt um, né
neina tryggingu fyrir þvi,
hvað við tæki að samn-
ingstima loknum, sem
reyndist nýtt þorskastríð,
eftir útfærsluna ( 200 sjó-
milur. Þeir fólu heldur
ekki í sér þau tollfríðindi
innan EBE, sem að var
stefnt og komu fyrst til
framkvæmda 1. júli á lið-
andi ári. Og samningur
um svo mikla veiðisókn
Breta var gerður EFTIR
AÐ fundur Norðaustur-
atlantshafsráðsins hafði
talið veiðisókn I þorsk-
stofninn helming umfram
það, sem æskilegt væri,
haustið 1972.
Samningurinn 1976
náði aðeins til sex mán-
aða (einn fjórða af tíma-
lengd fyrra samnings), 24
togara veiði að staðaldri (i
stað 60—70 áður), heild-
arveiðimagns 30 til
35000 tonna (í stað
260.000). Hann fól í sér
fulla viðurkenningu á 200
milna fiskveiðilandhelgi
okkar (sem var ekki siður
þýðingarmikið fyrir sam-
herja okkar um rétt
s.iondrikja á lokaáfanga
hafréttarráðstefnunnar
siðar á þessu ári en okkur
sjálfa), tryggingu þess að
herskipaihlutun á íslands-
miðum er i eitt skipti fyrir
öll útilokuð, algjöra
stjórnun okkar á veiði-
sókn innan landhelginnar
að samningstima loknum,
að íslenzkar reglur um
veiðarfæri og friðuð svæði
(hrygningar- og uppeldis-
svæði) verða virt á samn-
ingstímanum og þau toll-
fríðindi á Evrópumarkaði,
sem að var stefnt. Siðast
en ekki sizt tryggði samn-
ingurinn skerta veiðisókn
og aflamagn og frið á mið-
unum, en átökin höfðu
þróast að mun hættulegri
punkti en í fyrri þorska-
stríðum, sem og gátu
hvenær sem er leitt til
mannskaða.
ísland,
Ítalía —
og Alþýðu-
bandalagið
Þegar þessir tveir
samningar og afstaða
Alþýðubandalagsins til
þeirra er borið saman, má
Ijóst vera, að andstaða
þess nú nálgast helbera
hræsnina. Ósköp svipuðu
máli gegnir. ef grannt er
skoðað, um meinta and-
stöðu þess gegn Natoað-
ild og varnarstöð hér á
landi. Þrátt fyrir áratuga
hávær mótmæli, ráðstefn-
ur, Keflavikurgóngur,
heitstrengingar og há-
stemmd loforð, sat Al-
þýðubandalagið i tveimur
vinstri stjórnum, árum
saman, innan Nato og i
sátt við „völlinn". Og sé
horft um öxl — hvert má
þá rekja upphaf og allan
undirbúning að samning-
um við Union Carbide um
málmblendið annað en i
ráðuneyti Alþýðubanda-
lagsins i siðari vinstri
stjórninni? í þvi efni
breytir það engu þó „kar-
biturinn", sem svo er af
sumum nefndur, hafi
dregið sig sjálfur i hlé.
Það, sem skiptir máli, er,
að orð og efndir fóru ekki
saman þar frekar en i öðr-
um grundvallarmálum hjá
Alþýðubandalaginu.
Komið í stjórnarand-
stöðu á ný hóf Alþýðu-
bandalagið gauragangs-
herferð — með brauki og
bramli — gegn Natoaðild
og varnarfiði. Gömul slag-
orð voru dregin fram,
svardagar og sviðsetning-
ar. En þá kom ann úr
óvæntri átt. Sjálfur italski
kommúnistaflokkurinn
lýsir því yfir í kosninga-
stefnuskrá — anno 1 976
— „hinni sögulegu mála-
miðlun", sem vakti al-
heimsathygli, að ítalia
skyldi ótvirætt vera áfram
I Nato, af tveimur megin-
átæðum: öryggi landsins
væri þar bezt tryggt — og
úrsögn landsins úr varnar-
bandalagi vestrænna rikja
myndi raska valdajafn-
væginu i heiminum. Og
jafnframt lýstu þeir
itölsku þvi yfir að þeir
vildu stjórnarsamstarf til
hægri. Og nú er spurning-
in: er Alþýðubandalagið
enn á skoðanalegum
vegamótum? Eða hvort
vegur þyngra hjá þvi:
frjálshyggjuafstaða
italska kommúnista-
flokksins eða sú gamla
gerzka, sem það geymir
við hjartarætur?
iílfðsur
á morgutí
Guðspjall dagsins:
Luk. 6. 36—42. Verið
miskunnsamir, eins og
faðir yðar er miskunn-
samur.
Litur dagsins: Grænn. (
Táknar vöxt, einkum vöxt
hins andlega Iffs.
Hallgrímsprestakall. Messa kl.
11 árdegis. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
Neskirkja. Messa kl. 11 árdegis.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Dómkirkjan. Messa kl. 11 ár-
degis. Sr. Þórir Stephensen.
Háteigskirkja. Messa kl. 11 ár-
degis. Sr. Arngrimur Jónsson
Breiðholtsprestakall. Sumar-
ferð safnaðarins. Messað í skál-
holtskirkju kl. 11 árdegis. Sr.
Lárus Halldórsson.
Árbæjarprestakall. Guðsþjón-
usta í Árbæjarkirkju kl. 11 ár-
degis. (siðasta messa fyrir sum-
arleyfi) Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Kópavogskirkja. Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Sr. Árni Pálsson.
Bústaðakirkja. Messa kl. 11 ár-
degis. Sr. Ólafur Skúlason.
Dómkirkja Krists Konungs í
Landakoti. Lágmessa kl. 8 ár-
degis. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14.00.
Frfkirkjan Reykjavík. Messa
fellur niður vegna sumarferðar
safnaðarins. Safnaðarprestur.
Ffladelffukirkja. Síðustu tjald-
samkomurnar verða laugar-
dagskvöld kl. 20.30 og sunnu-
dag kl. 16.00.
Landspftali: Messa kl. 10 árdeg-
is. Sr.Ragnar Fjalar Lárusson.
Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund. Messa kl. 2 e.h. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Grindavfkurkirkja. Messa kl.
11 árdegis. Sóknarprestur.
Hallgrfmskirkja f Saurbæ.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr Jón
Einarsson.
Oddakirkja. Messa kl. 2 siðdeg-
is. Sr. Tómas Guðmundsson
Hveragerði messar. Stefán
Lárusson.
Skálholtsdómkirkja. Messað
verður kl. 17.00. Prestur er sr.
Eirikur J, Eiríksson. Sóknar-
prestur.
0RÐ í EYRA Heimsósómi
Oft var hér forðum yfrið margt erfitt og laust f reipum; veðurfar jafnan voða hart. Vfða sauð þá á keipum. Gengu þá skykkjum leiti og laut; lýðurinn gerðist mæddur. En okkur lagðist þó Ifkn með þraut; Lúðvfk var ekki fæddur. Mörg reyndist plágan mönnum frek. Mjög dró úr andans krafti. Pappfr skorti, penna og blek. og prýðimenn héldu kjafti. Allt er núna með öðrum brag: Allir jafnan á máli. A lýðnum skellur hvern laugardag lopinn úr Heiðari Páli. Margt finnst oss núna miður gott þótt menningarvitar skfni og bissnessmenn þykist býsna flott f blikandi dollaragrfni og spekingar sit ji þjóðarþing — og þjófsbykkjum fáir rfði— og aðall, kenndur við uppmæling, um Afrfkustrendur skrfði.
Óáran hörð um tsaláð ógnaði daga og nætur, kreisti úr fólki dug og dáð. Þó drattaðist það á fætur til þess að elta eldstyggt fé upp eftir reginheiðum. En hvorki var hérna Klúhbur né kokkteildrengir að veiðum. Haulað var gamalt rímnastef er rökkrið lagðist á skjáir.n, Þá tfðkaðist hvorki stanslaust stref né strekkingur út f bláinn, né hátfð f Bakkusarhofunum með hrundum af þjórdönsku kyni. Menn koma ei að tómupi'kofunum hjá Kristni Finnbogasyni.
Aatt - sunnudaQ
laugafdafl
SÝNINGIN ER OPIN
FRA 2—7 I DAG
SUMARHUS fullbúin, hagstætt verð.
HJÓLHÝSI, MONZA verð frá 695 000
FELLIHYSI amerlsk m. hita og kæliskáp
TJALDVAGNAR þýzk.rá stálgrind og 1 3" felgum
Gísli Jónsson & Co h.f.
Sundaborg — Klettagarðar 11. — sími 86644.
ÍCkIo] r»_._ ■ K *
**v uregio var i ^ Happdrætti St. Georgsgilda á íslandi 23. 6. 76
og upp komu þessi númer:
14757 FerS fyrir 2 til Kaupmannahafnar kr. 114.500
3962 Ferð til Sólarlanda 57 500,-
1 2586 Vöruúttekt hjá Guðna Jónssyni og Co. " 60.000,-
9806 Tjald og 2 svefnpokar frá
Belgagerðinni h.f. 34.300.-
12534 Adamsföt frá Adam h.f. 23 000.
1 1 054 Vöruúttekt i Skátabúðinni 20 000
9794 Vöruúttekt í Skátabúðinni 20 000
8670 Vöruúttekt í Skátabúðinni 20 000
4129 Vöruúttekt í Skátabúðinni 20 000
1 3083 Vöruúttekt hjá
Stefáni Thorarensen Heildverslun 20 000,-
8621 Vöruúttekt hjá Friðrik Berthelsen 20.000,-
278 Armbandsúrfrá Franck Mikaelsen 15 000
631 3 Ritsafn Jakobs Thorarensen
Almenna Bókafélagið 13 000,-
1334 Vöruúttekt hjá Davíð S. Jónssyni 10 000,-
7522 Vöruúttekt hjá Email 10 000.-
1 2880 Postulinsstytta frá Blómabúðinni Dögg 10 000
6771 Vöruúttekt hjá Álafoss h.f. 10.000,-
9758 Sjónauki frá Hans Petersen 8 000,-
6315 Sjónauki frá Hans Petersen 8 000,-
1441 Útigrill frá versluninni Geysir 7 500.-
Vinningshafar geta vitjað vinningana hjá Þorsteini
Magnússyni Laufásveg 41, Reykjavík sími 24950.
St. Georgsgildin á íslandi.