Morgunblaðið - 10.07.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JULl 1976
29
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
‘kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Öræfaferðir
Ferðalangur mikill kom að máli
við Velvakanda og vildi koma á
framfæri hugleiðingum sínum
um ferðalög um hálendið, i öræf-
um og óbyggðum íslands. Hann
hafði þetta að segja: ,
,,Það eru ekki mjög mörg ár
siðan ferðalög hófust í rikum
mæli upp í óbyggðir okkar. Ég
man að ég fór um Sprengisand
fyrir tíu árum eða þar um bil og
tók sú ferð nokkra daga. Hún
hafði verið lengi í bígerð og tók
nokkrar vikur að skipuleggja
hana og hafa ökutækin tilbúin og
slíkt, sem allt þarf að vera í full-
komnu lagi til öræfaferða. Þegar
við ókum svo sem leið lá yfir
Sprengisand þá var það segin
saga að i hverf sinn sem við mætt-
um einhverjum bil eða urðum vör
við aðra ferðalanga sem var mjög
sjaldan að upphófst mikil spjall
um vegi og færð, bilana og svo
framvegis.
„Vegirnir", sem ekið var eftir,
voru eins og við mátti búast, ekki
upp á marga fiska, aðeins slóðir,
sem ruddar höfðu verið og hver
og einn reyndi e.t.v. að lagfæra
eftir getu þegar þurfti. Afar sjald-
an var þó farið út af hinni eigin-
legu ökuleið, einstaka sinnum
þurfti að taka smá krók fyrir
keldu.
% Nýliðar
En nú bregður svo við hin síðari
ár að þegar ferðir taka að gerast
algehgari, að á hverri éinustu há-
lendisslóð má sjá svo og svo mörg
útskot og aukaleiðir, að stór og
mikil landsspjöll eru að. Það er
engu líkara en menn með jeppa-
dellu eða einhvern álíka lasleika
geri sér serstakt far um að fara
ekkí troðnar slóðir.
Nú er svo komið að manni
finnst eiginlega lítið gaman að
ferðast um landið, hvar sem litið
er má sjá hjólför sem skera sund-
ur viðkvæman gróður og eru þar
með upphaf að uppblæstri og
gróðureyðingu. Náttúruverndar-
ráð og aðrir velunnarar náttúr-
unnar standa ráðþrota gagnvart
svona akstri, það er of kostnaðar-
samt að senda heilu löggæzlu-
sveitirnar á vettvang.
Ég vil taka fram að ég á hér
ekki við þessa svokölluðu
torfæruakstursmenn. Þeir eru
alveg sérflokkur og þeir stunda
sinn akstur oftast á einhverjum
eyðisvæðum þar sem enginn gróð-
ur er fyrir. Það sem ég hef séð til
þeirra manna er að minnsta kosti
ekki ámælisvert, en það getur
verið að aðrir hafi séð eitthvað
misjafnt hjá þeim.
En þeir sem aka upp um öll
öræfi og spilla gróðri það eru
samvi/.kusamlega og honum var
unnt lýsingu Malins á andrúms-
loftinu og atburðunum á Hall og
bætti við nokkrum ályktunum frá
eigin brjðsti.
— Eins og ég sagði áðan var
þetta dálftið furðuleg útför. Fvrst
og fremst vegna framkomu
Andreasar' Hallmann. Ég hafði
vinsamlega beðið aila um að troð-
ast nú ekki nálægt og allir hlýddu
og komu I hvlvetna prúðmann-
lega fram, en hann þaut eins og
versta fúría yfir kirkjugarðinn og
lét konuna sína ganga einsamla
langt að baki sér. Malin er á
þeirri skoðun eins og ég hef sagt
ykkur, að hann sé gersamlega nið-
urbrotinn af sorg, en það virkaði
nú þannig á mig að hann væri
reiðari en sorgbitinn og hryggur.
— Nú, já, sagði Christer rólega
— ef hann á erfitt með að sætta
sig við að koma á almannafæri og
finna manneskjur glápa á hann,
getur útför sem hefur að auki
persónulega djúp áhrif á hann,
tæpast verið auðveld fyrir hann.
— Það er dálftið sem ég fæ ekki
botn f, tautaði Swennung og það
er hvers vegna fólk hefur þennan
feiknalega áhuga á að glápa
á mann eins og Hallmann. Látum
menn, sem hafa nýlega uppgötvar
að það er hægt að ferðast annað
en til sólarlanda eða annarra út-
landa, þeysa þvi upp á hálendið
og gera það að takmarki sínu að
komast yfir sem mest svæði á
stytztum tima. Þvi þurfa þeir að
aka svo mikið út fyrir venjulegar
slóðir þar sem hinn venjulegi öf-
æfaferðamaður mundi hiklaust
ganga. Það er af sem áður var að
menn nenni að ganga eitthvað,
allir fara á bílum sinum og hreyfa
sig helzt ekki út úr þeim. Það er
lika horfinn sá ævintýrabragur,
sem var á öræfaferðum, enda eru
þær ekki slíkt voðafyrirtæki og
var, vegna betri vega og hins að
alltaf má sjá til ferða annarra og
þvi yfirleitt hægt um aðstoð ef
eitthvað bjátar á.“
Þessi var saga hins gamal-
reynda ferðalangs, hann tók það
þó fram sjálfur að hann væri eng-
inn véfrétt i ferðamálum, en þetta
væri aðeins þær hugleiðingar,
sem bærzt hefðu með honum, þeg-
ar hann hefir verið á þessum
flækingi upp á öræfum eins og
hann orðaði það.
0 Umgengni á
ferðamanna-
stöðum
Fleiri hafa verið á ferðinni ný-
lega og greint frá sinum ferðum:
„Ekki er beint hægt að segja að
umgengni á vinsælum ferða-
mannastöðum hafi verið með
bezta móti, hvorki i ár eða þau hin
allra síðustu. Fjöldi ferðamanna
virðist fara sívaxandi, ekki sizt i
Þórsmörk og fleiri stöðum og það
er eins og flestum sé sama um
hvernig umgengnin er. Maður fer
að haida að fólk fari i ferðalög til
að losa úr ruslatunnum sínum,
svo rammt hefur kveðið að þessu.
Önnur skýring, sennilega öllu
réttari er sú að fólk er svo klaufa-
lega útbúið til ferðalaga, sérstak-
lega hvað varðar nesti sitt. Menn
geta verið að burðast með niður-
suðudósir og svo verða þeir að
henda þeim bak við næstu hæð,
þvi ekki nenna þeir að grafa dós-
irnar. Þó er rétt að taka hér fram
að mjög víða er farið að hafa góða
þjónustu í þessum efnum, rusla-
tunnum er komið fyrir, en sumir
hafa ekki hugmynd um til hvers
þær eru. Vita borgarbúar kannski
ekki lengur hvernig ruslatunna
litur út?
Annað atriði, sem svo rammt
kveður að á þessum stöðum, er
söfnuður fólks, sem kemur þang-
að í þeim eina tilgangi að tæma
innihald úr vinflöskum ofan í
sjálft sig og dreifa þeim síðan á
viðavang. Nýlega hafa borist ein-
hverjar fréttir af drykkjulátum
ungmenna i Þórsmörk, þar sem
þau munu hafa legið úti við ófær
um að hreyfa sig vegna of-
drykkju.
1 þessu sambandi langar mig að
nefna að sífellt er að færast i vöxt
að fyrirtæki fari i ferðir með
starfsfólk sitt og þá hefur maður
séð í hvaða tiigangi sumt fólk fer í
þær ferðir, sem sagt þann, að
finna nýjan stað til að drekka á.
Ekki finnst manni það nú beint
virðing við náttúru landsins."
Þar með lýkur ferðasögum að
sinni og virðist vera misjafn sauð-
ur meðal hinna mörgu ferða-
manna og tilgangur ferðalaga
hinn fjölbreyttasti.
HÖGNI HREKKVÍSI
777___
Bifreiðaeigendur
Eigum fyrirliggjandi frá DUALMATIC í Banda-
ríkjunum:
DRIFLOKUR
STÝRISDEMPARA
VARAHJÓLSHETTUR
BENSÍNBRÚSAHETTUR
TÖSKUR INNAN Á BLÆJUHURÐIR
GÓLFTEPPI í BRONCO, BLAZER
OG SCOUT
BLÆJUHÚS
HJÓLBOGAHLÍFAR
VARAHJÓLS OG
BENSÍNBRÚSAGRINDUR
Tökum að okkur að sérpanta varahluti í
vinnuvélar og vörubifreiðar.
VÉLVANGUR HF.
Hamraborg 7. — norðurhlið
Kópavogi — sími 42233.
Umboð til sölu Til sölu er umboð fyrir „KOSMOS” tilrauna- og vísindaleikföng, en það er einn stærsti framleiðandi sinnar tegundar í heimin-
um. Lager fylgir með upp á ca. 1 000,000.— Gott tækifæri fyrir duglegan mann sem vildi aukastarf. hafa þetta fyrir
Til sölu trésmíöavélar
og fleira: Verð.
1. Stór bandsóg 14", 280.000 —
2. Plötuveggsóg, tveggja ára gómul. 300.000 —
3. Nýr þurrkofn fyrir timbur. 405.000 —
4. Kantllmingapressa sex strokka loftdrifin. 310.000 —
5. Loftpressa 200 lítra (vantar á hana þjoppuh ) 6. Útihurð með munstruðum kopar. Sýnishorn. 65.000.—
Stærð 100 cm.B x 210 cm.H 135.000 —
7. Álstillansar sem hægt er að breyta I palla, 3 x 5 m. og I lengd 50 cm.x lom. á hjólum. Sýnishorn. 1 2% afsláttur frá verði. 8. Takonharðplast vesturþýsk gæðavara, til I 1.046.000.—
18 litategundum. Nýkomin sending, verð pr. Ifm Greiðsluskilmálar: Útb ca 65—70%. 700 —
Uppl. gefur Guðjón Pálmason á laugardag 10/ 7 frá kl 4 — 7
og aðra daga á skrifstofutíma.
Trésmiðja Austurbæjar
Sfmi 83755