Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979 5 Njarðvíkurprestakall: Sr. Þorvald- ur var kjör- inn lögmætri kosningu í GÆR voru talin atkvæði í prestkosningu, sem fram fór í Njarðvíkurprestakalli s.l. fimmtudag. Á kjörskrá voru 1070 og greiddu 628 atkvæði. Séra Þorvaldur Karl Helgason, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, var kjörinn lögmætri kosningu. Hann hlaut 421 atkvæði en sr. Gylfi Jónsson, sóknarprestur í Bjarnarnespresta- kalli, hlaut 200 atkvæði. Auðir seðlar voru 6 og einn seðill var ógildur. Sr. Þorvaldur Karl Helgason er 29 ára gamall, fæddur í Reykjavík 9. apríl 1950, sonur Gunnþóru Kristmundsdóttur og Helga Þorlákssonar skólastjóra. Hann varð stúdent frá MH 1970 og lauk cand. theol. prófi frá Háskóla íslands 1974. Hann var ráðinn farprestur þjóðkirkjunnar 1975 og æskulýðsfulltrúi 1976. Kona Þorvalds er Þóra Kristinsdóttir. Vitni vantar að árekstri LAUGARDAGINN 26. maí um klukkan 16.40 varð árekstur milli Toyota-bifreiðar og Trabant-bifreiðar á mótum Háaleitisbrautar og Safamýrar. Báðir ökumennirnir telja sig hafa ekið á móti grænu ljósi og þarf lögreglan því nauðsynlega að ná tali af vitnum. Eru þau beðin að gefa sig fram við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík í síma 21100. Þing Landssambands sjálfstæðiskvenna: Margrét Einarsdótt- ir kjörin formaður Landssamband sjálfstæðiskvenna hélt landsþing sitl s.1. sunnudag. Var þingið haldið á Akranesi að þesse sinni og sóttu þingið 100 konur. Gestur þingsins vai Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins og flutti hann ávarp. Þrjú framsöguerindi voru flutt og voru þau helguð 50 ára afmæli flokksins. Sigurlaug Bjarnadóttir, sem gegnt hefur formennsku í Lands- sambandinu s.l. fjögur ár, gekk úr starfi formanns, skv. lögum sam- bandsins. Formaður var kjörin Margrét Einarsdóttir. Aðrar í stjórn: Áslaug Friðriksdóttir, Reykjavík, Ásthildur Pétursdóttir Kópavogi, Elín Pálmadóttir Reykjavík, Freyja Jónsdóttir Akureyri, Halldóra Rafnar Reykjavík, Helga Guðmundsdóttir Hafnarfirði, Ingibjörg Johnsen Yestmannaeyjum, Kristjana Ágústsdóttir Búðardal, Margrét Friðriksdóttir Keflavík, Marís Haraldsdóttir Bolungarvík Sigríður Guðvarðardóttir Sauðár- króki, Sigríður Pétursdóttir ólafs- völlum og Þóra Björk Kristins- dóttir Akranesi. Sigurlaugu Bjarnadóttur voru þökkuð vel unnin störf í þágu sambandsins. Sjálfstæðiskvenna- félagið Báran Akranesi sá um undirbúning þingsins og bauð þingfulltrúum til kaffidrykkju í eftirmiðdag. Nánar verður greint frá störfum þingsins síðar í Gangskararsíðu. A Sigurlaug Bjarnadóttir t.v. fráfarandi formaður og Margrét Einarsdóttir núv. formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna. Ljósm. F.P. GRIKKLAND M - VOULIAGMENI Sindrandi sólskin, blámi himins og hafs, forn musteri, saga vestrænnar menningar, „Taverna" meö ódýrum, góðum mat, hvers frekar getum viö óskaö í sumarleyfinu? Allt Þetta bíður ykkar í VOULIAGMENI, besta baðstað Grikklands í nágrenni Apenu. Góðir gististaðir — íbúöir eða hótel — frábær fararstjórn. Brottför 6. júní — uppselt — Næsta ferö 27. júní. Ferðaskrifstolan Austurstræti 17, símar 26611 — 20100. UTSYN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.