Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979 Langvarandi ótíð, frosthörkur og jarðbönn hafa verið á Norðausturlandi síðustu vikur og muna elztu menn ekki slíka ótíð. Hafís liggur enn inni á sumum víkum og hefur hamlað veiðum. Snjóalög hafa hamlað þvíað búfénaði hafi verið hleypt út úr húsum og þrengsli því víða hjá bændum sem orðið hafa að koma nýbornum ánum með lömb sín fyrir í hlöðum, geymslum og öðru húsnæði. Víða horfir til vandræða vegna takmarkaðra heybirgða þarsem öllum skepnum er enn gefið íhúsi. Morgunblaðsmenn voru á ferð um Þingeyjarsýslur ílok síðustu viku og fer hér hluti þess afraksturs sem varð af ferðinni. Snæfuglinn á innsiglingunni á Raufarhöfn. Jakarnir eru allt f kring. Einum hættulegum jaka stjakað frá. Tekjutapið um tíu milljónir kr. miðað við vertíðina í fyrra „VERTÍÐIN hefur verið ónýt frá áramótum, vægast sagt. Sjómenn hér hafa sérstaklega orðið fyrir miklum vonbrigðum með grásleppuvertíð- ina. en ísinn hefur gert okkur mikinn grikk hvað snertir hana. Það er ekki aðeins að fsinn hafi hamlað veiðum, heldur höfum og orðið fyrir miklu veiðarfæratjóni af hans vöidum,“ sagði Grétar ólafur Jónsson formaður á Snæfugli, 10 tonna bát frá Raufarhöfn, í bryggjuspjalli við Mbl. á Raufarhöfn að kvöldi uppstigningardags. Snæfugl hafði ásamt tæpum tug og inn á höfnina hefði verið erfið og Raufarhafnarbáta flúið nokkrum dögum áður út úr höfninni er hana fyllti af hafís. Héldu bátarnir ýmist til Kópaskers eða til lítillar víkur er Hraunhöfn nefnist og er vestanvert á Hraunhafnartanga á Sléttu. Varð Snæfuglinn fyrstur báta til að snúa til heimahafnar og sagði Grétar Ólafur, er hann hafði bundið bát sinn við bryggju og stjakað frá ísjaka er nuggaðist við bátinn, að siglingin fyrir Höfðann, Hólmann hættuleg, því jakar, er lamið gætu báta í spón, hefðu verið á fleygiferð á bárunni. „Við eigum eftir þrjár trossur af 21, þ.e. höfum tapað um 150 netum undir ísinn," sagði Grétar Ólafur er reri með sonum sínum tveimur, Héðni og Þráni sem eru aíferming- araldri. „Og aflinn er aðeins orðinn 25 tunnur, en var 86 tunnur á sama tíma í fyrra. Vertíðinni lauk um þetta leyti þá. Ætli veiðarfæratjón- ið hjá mér sé ekki um fjórar milljónir króna og aflatapið um sex milljónir króna, þannig að tekju- tapið er um 10 milljónir króna miðað við vertíðina í fyrra. Svipaða sögu, eða jafnvel enn verri, er að segja um aðra sjómenn hér á Raufarhöfn. margir þeirra fjárfestu mikið í skipum og nýjum veiðarfærum í vetur og þessi slæma afkoma á eftir að valda þeim miklum erfiðleikum." Grétar Ólafur sagði að aflinn hefði verið ágætur þegar hægt hefði verið að sækja miðin og mikil grásleppa virtist vera í sjónum. Hann kvað þá sjómenn mundu fást eitthvað aðeins lengur við gráslepp- una sem þó væri kominn inn á miklar grynningar og farin jafnvel Grétar ólafur Jónsson að hrygna. Aflinn í síðustu veiði- ferð hjá Snæfuglinum var dræm, og sagði Grétar Ólafur að mikill þari hefði setzt í netin síðustu daga í rótinu á grynningunum og jafnvel sökkt þeim. Þá sagði Greíar Ólafur að er ísinn þrengdi sér inn fyrir vírinn sem strekktur var fyrir hafnar- mynnið til að halda ísnum úti á sundunum hefðu bátar rispast talsvert. Einig hefði spænst út úr borðum er bátarnir brutust út úr höfninni, en enginn bátur hefði þó brotnað að því er hann bezt vissi, þótt margir hefðu skemmst meira en Snæfuglinn. Grétar Ólafur sagði að lokum að þrátt fyrir þaterfiðleika sem sjó- menn hefðu orðið fyrir nú væntu menn þess að sumarveiðarnar gengju vel og bættu það áfall sem sjómenn hefðu orðið fyrir. Sagði hann að það kæmi sér þó' ekki á óvart þótt það afhroð sem þeir hefðu orðið fyrir yrði til þess að sumir sjómannanna hreinlega gæf- ust upp. „Búast má við óhreysti í lömbum” „Ég hef sagt i um það bil tvær vikur að bændur geti í fyrsta lagi hieypt ánum út eftir hálfan mánuð, og miðað við það tíðarfar sem verið hefur þurfum við að fá góða tíð I a.m.k. tvær vikur áður en hægt verður að sleppa fé úr húsi. Það munu vera nægar heybirgðir í Suður-Þing- eyjarsýslu fram um 10. júní, og horfir þvf til hinna mestu vandræða batni ekki tfðin hið snarasta. „Þannig mælti Skafti Benediktsson félagsráðunautur Búnaðarsambands íslands að Hlégarði f Aðaldal er Mbl. hitti hann að máli f Aðaidal á uppstigningardag og fræddist af honum um mál bænda í héraðinu vegna þeirra harðinda sem verið hafa f tfðarfari á Norðausturlandi í vor. Skafti sagði að sauðburður væri víða langt kominn í sýslunni og frjósemi virtist vera góð nú sem endranær. Flestar ær væru tvílembdar. Tíðarfar hefði hins vegar verið mjög slæmt í héraðinu, óstillur miklar og veðrahamur. Allar skepnur væru því enn á fullri hefðu mikla þörf fyrir að kroppa er þau næðu þessum aldri. „Lömbin eru orðin þurftarmeiri og ganga mjög hart á móðurina, því þau eru lin við heyið. Af þessum sökum þurfa bændur að gefa tvöfalt og upp í þrefalt magn af kjárnfóðri á dag. Þegar hægt er að sleppa ám á Rætt vid Skafta Benedikts- son félagsrádunaut í Aðaldal gjöf. Enn hefði ekki verið hægt að hleypa neinum skepnum út úr húsi til að létta á gjöfinni. Þá væru þrengsli í húsum víðast hvar mikil, þótt allt húsrými væri nýtt, svo sem hlöður, geymslur og fleiri húsnæði. Vinna við hirðingu lambfjárins væri geysileg af þessum sökum, þar sem ekki væri venjuleg aðstaða i aukahúsnæðinu til að brynna fénu og til heygjafar. Sagði Skafti að lömb væru nú víða orðin þriggja vikna gömul og væri bagalegt að geta ekki hleypt þeim út á gróðurinn, sem þó væri i tæpast fyrir hendi, þar sem iömbin allgóðan gróður með 7—10 daga lömb komast þær af með gott hey og til þess að gera lítið magn af kjarnfóðri. En þegar þarf að gefa þeim inni í 4—5 vikur þurfa þær tvöfalt og jafnvel þrefalt magn af kjarnfóðri á dag og eykst það eftir því sem líður frá burði,“ sagði Skafti. Það kom fram hjá Skafta að lambahöld hefðu víðast hvar í héraðinu verið góð. “En þegar lambfé er svo lengi í húsum má búast við óhreysti í lömbum þegar farið verður að láta út,“ bætti hann við. Skafti Benediktsson félagsráðunautur í Aðaldal. Skafti sagði að gróður yrði seint á ferðinni í sveitum Suður-Þing- eyjarsýslu í sumar. Óvanalega mikill klaki væri enn í jörðu, víðast hvar 1—2 metrar að þykkt. Þá væri mikill snjór yfir allri jörð í Reykja- hverfi, Reykjadal og Mývatnssveit. Snjór væri og í öðrum sveitum sýslunnar, víða skaflar svo metrum skipti að þykkt, en meira rifið. Það kom fram að um 20 kúm af bæjum í Aðaldal hafði verið lógað í sláturhúsi á Húsavík í vikunni. „Sennilega hafa þetta verið gripir sem bændur hafa hvort eð er ætlað að lóga í sumar, en mér þykir ekki ólíklegt að tíðarfarið hafi gert það að verkum að bændur hafi fargað kúnum núna í stað síðsumars vegna harðindanna," sagði Skafti. Af mörgum bæjum var lógað einni kú, en þremur hefði verið lógað af bænum Presthvammi. Mbl. heyrði á bændum í Aðaldal að illa horfði víða með kjarnfóður. Fengist hefði þó undanþága til þess að senda skip til útlanda eftir fóðri og væri það mikið fyrir vasklega framgöngu kaupfélagsstjórans á Húsavík. Sögðu menn það alvarlegt mál hversu mikil áhrif fáir ein- staklingar gætu haft á þjóðfélagið og áttu þar við verkfall farmanna á kaupskipum. Sögðu bændur Dýraverndunarfélag íslands oft hafa látið í sér heyra, og stundum af litlu tilefni, en ekkert hefði þó heyrst í félaginu þótt yfirvofandi hefði verið kjarnfóðurskortur hjá fjölda bænda, sem margir hverjir hafa hundruð fjár. m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.