Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979 Öruggur sigur Selfyssinga AUSTRAMENN sóttu ekki gull í greipar Selfyssinga í leik liöanna á laugardag sem fram fór á Selfossi. Töpuðu þeir leiknum 3—1. Staðan í hálfleik var 1—0 Selfyssingum í hag. Sumarliði skoraði fyrsta mark Selfoss með glæsilegum skalla á 30. mínútu fyrri hálfleiksins. Var það eina markið sem skorað var f fyrri hálfleik. Besta marktækifærið í hálfleiknum áttu Austramenn er Bjarni komst einn inn fyrir vörn Selfoss en hann misnotaði gott færi og skaut yfir er hann átti aðeins markvörðinn einan eftir. Var þetta á 13. mfnútu leiksins. Á 1. mínútu síðari hálfleiks er brotið á Sumarliða inn í vítateig og umsvifalaust dæmd vítaspyrna, sem hann tók sjálfur. Skaut Sumarliði yfir, en var látinn endurtaka spyrnuna vegna þess að dómarjnn áleit að markvörðurinn hefði hreyft sig áður en spyrnan var framkvæmd. Skoraði Sumar- liði þá örugglega. Stefán Larsen skoraði þriðja mark Selfyssinga með þrumuskoti á 35. minúti síðari hálfleiks, mjög fallegt mark. Á 37. mínútu seinni hálfleiks var dæmd vítaspyrna á Selfoss, en Anton markvörður gerði sér lítið fyrir og varði. Á 40. mínútu missa Selfyssingar mann út af, Guðjóni Arngrímssyni er vísað af leikvelli og vakti það mikla furðu. Skömmu síðar skora Austramenn sitt eina mark. Bjarni fékk sendingu inn fyrir vörnina og virtist vera greinilega rangstæður, en slakur dómari leiksins, Grétar Norðfjörð, lét það óátalið. Mistök hans voru æði mörg í leiknum og bitnuðu þau á báðum liðum. Lið Austra lék nokkuð vel, bestu menn liðsins voru Bjarni og Pétur. I liði Selfoss sem virðist eflast með hverjum leik voru Sumarliði, Stefán og Anton markvörður bestir. Kp/Þr. Yfirburðir ísfirðinga Þeir voru miklir yfirburðir sem ísfirðingar höfðu í leik sfnum á móti Magna frá Grenivfk er liðin mættust á Bolungarvík um helgina. Sigruðu lsfirðingar 6—1 í leiknum og var það síst of stór sigur eftir gangi leiksins. Andrés Kristjánsson var markhæstur ísfirðinga náði að skora þrennu. Kristinn Kristjánsson og Haraldur Leifsson gerðu svo sitt markið hvor. Eina mark Magna í leiknum skoraði Heimir Ingólfsson. Allar líkur eru á því að lítið verðl leikið á ísafirði í sumar þar sem knattspyrnuvöllurinn þar er ekki tilbúinn til notkunar. -Þr. Stewart til Team Fiat Paul Stewart, skotinn sem lék með ÍR í körfunni í fyrravetur, hefur nú gert samning við enska körfuboltaliðið Team Fiat. Eins og fram hefur komið mun Mark Christensen taka stöðu Stewarts hjá ÍR. Landsliðið f körfu lék tvo leiki við Team Fiat f vetur. vann annan Ieikinn, tapaði hinum. Ef að lfkum lætur, verður Stewart liðinu mikill styrkur. ÍBV með samning við Sportver ÍÞRÓTTABANDALAG Vestmannaeyja hefur endurnýjað auglýsinga- samning sinn við Sportver h.f„ hið þekkta fatafyrirtæki f Reykjavfk, sem m.a. framleiðir Kórónaföt og LEE COOPER fatnað. Mun 1. deildarlið ÍBV í sumar leika með LEE COOPER merkið alþjóðlega á búningum sfnum auk þess sem leikmenn liðsins og þjálfarar munu á leikdögum og á ferðalögum klæðast sérstökum einkennisfatnaði sem Sportver h.f. og Verslunin Steini og Stjáni h.f., umboðssali Sportvers h.f. og LEE COOPERs f Vestmannaeyjum, hafa fært liðinu. Leikmenn og þjálfarar liðsins tóku nýlega við hinum glæsilega alfatnaði og tók þá Guðmundur Sigfússon meðfylgjandi mynd fyrir ÍBV. Á myndinni eru t.f.v. í fremri röð: Viktor Helgason þjálfari, Valþór Sigþórsson, Þórður Hallgrímsson, Örn Óskarsson, Páll Pálmason, Snorri Rútsson, Tómas Pálsson, Ómar Jóhannsson, Friðfinnur Finnbogason. { aftari röð t.f.v.: Kjartan Másson aðstoðarþjálfari, Róbert Vilhjálmsson, Sveinn Sveinsson, Kári Þorleifsson, Guðmundur Erlingsson, Jóhann Georgsson, Óskar Valtýsson, Ársæll Sveinsson, Sighvatur Bjarnason. Á myndina vantar Viðar Elíasson, Gústaf Baldvinsson og Magnús Þorsteinsson. Reynir sterkari REYNIR sigraði Þrótt frá Neskaupstað nokkuð örugglega, 2—0, f 2. deild íslandsmótsins f knattspyrnu f Sandgerði á sunnudaginn. Reynismenn voru áberandi sterkari allan tfmann og skoruðu einu sinni f hvorum hálfleik. Það voru einkum 20 fyrstu mfnútur leiksins, sem Reynismenn voru hvað sterkastir og á 20. mfnútu skoraði Hjörtur Jóhannesson með skoti af 20 metra færi. Nokkru sfðar björguðu Þróttarar af marklfnu skalla frá Júlfusi Jónssyni. Þróttarar voru daufir og áttu aðeins eitt færi sem heitið gat þvf nafni f fyrri hálfleik. Það fór f vaskinn. Sfðari hálfleikur var nokkuð jafnari og á 10. mfnútu hans skoruðu Reynismenn annað mark sitt og kom það af stuttu færi eftir þvögu. Nokkru fyrir leikslok skaut sfðan Hjörtur yfir markið úr góðu færi og fleiri færi fóru í vaskinn. Sem fyrr segir var sigur Reynis fyllilega sanngjarn, liðið var ávallt sterkari aðilinn. Austanmenn voru hins vegar mun lakari heldur en t.d. f fyrra. Jón. I Islanflsmflllö 2. flelld ] Knattspyrnuráð Reykjavíkur á 60 ára afmæli Á þessu ári eru liðin 60 ár síðan að Knattspyrnuráð Reykja- víkur var skipað. Það var á fundi stjórnar Í.S.f hinn 29. maí 1919, að skipuð var nefnd, sem vera skyldi sameiginleg forysta um eflingu knattspyrnunnar og til að sameina knattspyrnufélögin í höfuðstaðnum til aukinna átaka um framgang hennar þar. Nefndin var skírð „Knattspyrnu- nefnd Reykjavíkur**. Fljótlega var ákveðið, að starfssvið nefndarinnar yrði vfkkað og næði til landsins alls. Jafnframt var nafni nefndarinn- ar breytt í „Knattspyrnuráð ís- lands“. Hélst sú skipan til ársins 1923, að starfssviðið er aftur hundið við Reykjavfk og nafninu breytt í „Knattspyrnuráð Reykjavíkur“. Fyrsti erlendi þjálfarinn f knattspyrnu kom hingað á vegum R. Tempelton. Fyrsta sameiginlega keppnisför fslenskra knattspyrnumánna utan. styrkt af ráðinu, var farin til Færeyja árið 1930. Fyrsti erlendi knattspyrnuflokkurinn, sem hingað kom með tilstyrk K.R.R. var Civil Service, sem kom hingað 1922. Fyrsti landsleikur íslands í knattspyrnu fór fram hinn 17. júlí 1946 undir forystu K.R.R. Það var við danska landsliðið og fór leikurinn fram á Melavelli, svo sem flestum er enn í minni. Tildrögin að þeim leik voru þau, að K.R.R. ákvað að hafa forystu um stofnun sérsambands knatt- spyrnumanna. Undirbjó stjórn K.R.R. málið 1946 og fól formanni sínum, Jóni Þórðarsyni, að gera frumvarp að lögum fyrir væntan- legt samband. Eftir mikla undir- búningsvinnu og að beiðni sérráða og íþróttabandalaga, lagði K.R.R. fram skriflega beiðni til Í.S.Í. um að sambandsstjórnin boðaði til stofnfundar Knattspyrnusam- bands íslands. Var stofnfundurinn haldinn 26. marz 1947. Strax á fyrstu árum sínum stofnaði K.R.R. sérstakt dómara- félag, nú Knattspyrnudómarafé- lag Reykjavíkur og eru nú um 90 dómarar starfandi á vegum K.D.R. Árið 1952 var stofnaður sérráðsdómstóll, samkvæmt sam- þykkt aðalfundar og skyldi hann fara með öll ágreiningsmál, er upp kæmu við framkvæmd knatt- spyrnuleikja. Þá starfar sérstök aganefnd á vegum ráðsins, svo og mótanefnd, sem hefir eftirlit með framkvæmd allra leikja, sem fram fara á vegum ráðsins, en þeir munu vera 452 í ár. Auk þess fara fram 249 leikir í landsmótum í Reykjavík. Aðildarfélög ráðsins eru nú 9 og eiga þau öll fulltrúa í stjórn ráðsins. Formaður ráðsins er nú Ólafur P. Erlendsson. Alls hafa 2344 fundir verið haldnir í ráðinu frá stofnun þess. Lengst hafa setið' í ráðinu þeir Haraldur Gíslason, sem sat 1125 fundi þess og Ólafur Jónsson, sem sat 1079 fundi þess. í tilefni afmælisins er ákveðið, að úrval 2—5 flokks Reykjavíkur- félaganna leiki við jafnaldra sína utan Reykjavíkur. Áttu fyrstu leikirnir að fara fram á Upp- stigningardag, en af óviðráðanleg- um ástæðum og eins vegna hins óhagstæða veðurfars í vor, verður að fresta þessum leikjum. Þá er í athugun að fá erlent knattspyrnu- lið til keppni síðar í sumar í tilefni afmælisins. K.R.R. minnist afmælis síns með kaffisamsæti að Hótel Loft- leiðum, þriðjudaginn 29. þ.m. ICnðf t spyrnu- úrslit Pétur Pétursson skoraði annað markið af tveimur, þegar lið hans Feyenoord vann góðan sigur á Tvente á heimavelli sínum í Rotter- dam. Rene Nottcn skoraði fyrra mark Feyenoord, en liðið gerði þó ckki betur en að halda í við Ajax. sem heldur 3 stiga forystu sinni eftir sannfærandi sigur á heimavelli gegn Den Haag, 4 — 1. Sören Lerby, Frank Arnesen (2) og Ray Clarke skoruðu mörk Ajax. Úrslit leikja um heigina urðu þessi: Ajax — Den Haag 4 — 1 Alkmaar — Sparta 2—0 Haarlem — Nec Nljmegen 2-2 Deventer — Maantrlcht 0—1 PSV Elndhoven - lltrecht 3-0 VW Venlo - Pec Zwolle 2-3 Vitewie Arnhem — Nac Breda 3—1 Feyenoord — Tvente 2—0 Roda JC — Volendam 5—1 Wllly Van De Kerkhov. Wllly Van De Kuylen og IlanH Ponthuma Hkor- uðu mörk PSV gegn Utrecht og KeeH Klnt Hkoraðl lyrra mark Alkmaar gegn Spörtu. hanH 32 mark (vetur. ForyHta Ajax er nem fyrr, 3 hUk, 49 Htlg. Feyenoord hefur hlotlð 36 Htlg. PSV hefur 44 Htlg og Alkmaar hefur 42 atlg. La Louvlere, llð þelrra ÞorHtelna BjarnaHonar og Karln Þðrðarnonar f Belgfu. kvaddi 1. deildina um helglna með Którtapl á heimavelll gcgn Charlerol. Liðið áttl möguleika á að ná FC Llege að Htigum. en á aama tfma og La Louvlere Htelnlá. vann Liege HtórHÍgur 3—0. á Lokeren, llði Arnórn Guðjohnnen. Standard gekk aftur á móti betur, vann melHtarallðlö Beveren á útlvelii og hrifHgðl til nfn þriðja Hflrtiö f deildinni og hugnanlega IIEFA Hfletinu dýrmæta. ílrHlit um helgina urðu þeHni: Molenbeek — Berchem 3—1 Beveren — Standard 1—2 FC Brugge - Courtral 2-1 Waternchei — Llerne 2—4 La Louvlere — Charleoroi 2—I Antwerp — Wlnternlag 1 — 1 Waregen — Beentchot 0—3 FC Llege — Lokeren 3—0 Beringen — Anderlecht 2—3 Beveren hefur foryntuna með 49 Htig. Er llðið þegar melHtarl. Anderlecht hefur annað Hætið f umnjá alnni með 45 Htig og Standard er f þrlðja Hírti með 44 atlg. Lokeren hefur nú aðeinH 42 Htig f 4 aætl. flrsllt leikja f Hpænnku delldar- keppninni um helging urðu þciud: Vaiencia — iiercules 0—0 Santander — Salamanca 2—4 Sevilla — Real Madrid 2—1 Rayo Vallecano — Barcelona 1 — 1 Real Sociedad — Lan Palmaa 2—0 Zaragoza — Bllbao 1 — 1 Eapanot — BurgoH 1—0 Atletico Madrid — Iluelva 1 —0 Gijon — Celta 2—2 Cruyff í stuói JOHAN Cruyff sýndi það or sannaði, að hann lagði frá sér knattspyrnuskóna mörííum árum of snemma. Ilinn 32 ára gamli hollenski sniIlinKur skoraði tvívejfis á fyrstu 7 mínútunum í sínum fyrsta leik með nýja liði sínu Los Angeies Aztecs. cr það sígraði Rochester Lancers 3—0 fyrir skömmu. Óskað er eftir hand- boltaþjálfara fyrir 4. flokk í sænsku liði. Gott húsnæöi og æfingarmöguleikar eru fyrir hendi. Hægt er aö útvega vinnu og húsnæöi. Starfssviö: Þjálfun og tilsögn í karlaflokki og hugsanlega drengjaflokki. Starfiö á aö hefjast í byrjun ágústmánaöar. Svar sendist til: Hg Box 45 s-330 30 Gnosjö j í i fcri /jfiMt s .'j-j i» * o (, /' '*■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.