Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979 15 r nú þaé? verkum heims, og hann ásamt flóðgörðunum í Hollandi er eina mannvirki á jörðinni, sem mann- legt auga sér frá tunglinu. Tímans tönn hefur sett mark sitt á múrinn, en þarna í fjöllun- um norðan við Peking hefur hann verið lagfærður á kafla og blasir þar við eins og hann var í upphaf- legri mynd. Við gengum alllanga leið eftir honum, eða kannski réttara upp hann, upp í einn varðturninn, sem trónar þar efst á fjallstindi. íslenzkir kyrrsetu- menn blésu vel úr nös. Nú hefði verið betra að hafa ástundað hjólatrimmið eins og Kínverjar, enda virtist gestgjöfum okkar gangan léttari. Að sjálfsögðu kom ekki til greina að gefast upp á þeirri göngu, því túlkurinn okkar hafði svo vendilega tíundað, að Mao formaður hafi sagt: „Sá, sem ekki klifrar Múrinn mikla, er ekki sannur maður." — Sú skömm gat ekki hent íslenzka „víkinga". Ég reyni ekki að lýsa þeirri tilfinningu, sem fór um mig, þegar ég stóð þarna í efsta varðturnin- um og leit yfir fjallendið í kring, sem rist er í sundur með djúpum dölum. Þessi staður var sveipaður sögunni, sem náði engum tökum á mér í grafhýsi Ming-keisarans fyrr um daginn. „Loks í Peking* Þetta var síðasti dagurinn okk- ar í Peking. Um kvöldið snæddum við í virðulegu veitingahúsi í gömlu miðborginni. Þar fengum við í fyrsta skipti hina margróm- uðu Peking-önd. „Gamalt máltæki segir, að enginn hafi komið til Peking hafi hann ekki borðað Peking-önd,“ sagði einn af rit- stjórum Dagblaðs alþýðunnar, sem með okkur var. „Jæja, þá höfum við loks komizt til Peking," sagði Helgi Ágústsson. Og nú vorum við að kveðja borgina. En ég var ennþá með hugann við Múrinn. Nýlega kom sú frétt frá borgar- stjórn Re.vkjavíkur, að verið sé að skipuleggja byggingarsvæði innan eldri borgarmarkanna, — þétta byggðina, — og áreiðanlega er hag- ræðing í því gagnvart kostnaði við undirbúning bygginga fyrir borgina. En í þessu sambandi vii ég biðja ráðamenn að muna eftir gamla fólkinu. Það þarf að ætla gamla fólkinu staði, þar sem það getur unnað elliárunum, — ætla því svæði t.d. nálægt Borgarspítalans eða í Laugardalnum. Þarna má helst ekki skipuleggja og byggja svo, að ekki verði þar áætluð svæði til bygginga fyrir aldraða, sem byggjast í áföng- um; Ég tala þarna líka fyrir hönd þeirra, sem enn eru yngri en þeir, Hans Jörgensson: Byggingarlóð- ir fyrir aldraða sem nú teljast ellilífeyrisþegar, því að allir eldast. Sem betur fer hefur nú á seinni árum vaknað sá skilningur f.vrir málefnum gamla fólksins, að viður- kennt er, að það eigi rétt á að búa sjálfstætt svo lengi sem það getur, þó að einhver húshjálp þurfi e.t.v. að fylítja, — og í því sambandi, — að það þurfi að geta átt kost á að fá hentugar, litlar íbúðir út af fyrir sig, en þó í sambandi við félagslega aðstöðu. Það sem illa er statt þarf hjálp borgar- eða sveitarfélags, en það sem betur er á vegi fjárhagslega þarf að geta fengið þessar íbúðir keyptar, svo að það þurfi ekki að búa í allt of stóru húsnæði frá starfsár- unum, til að geta haldið sjálfstæði sínu og frelsi. Nokkur bæjar- og sveitarfélög, sem ég hefi haft spurnir af, hafa þegar skipulagt, eða hafa í undir- búningi að skipuleggja byggingar- svæði fyrir gamla fólkið, þar sem byggt verður í áföngum litlar, þægi- legar íbúðir með félags- og lækna- þjónustuaðstöðu í huga. Þessi framtíðarsvæði gamla fólks- ins eru þarna áætluð og skipulögð sem næst miðju bæjanna, svo að sem þægilegast verði fyrir það, að gera sín innkaup og mögulegar séu heim- sóknarferðir til kunningja eða á vinnustaði, hvort sem þar er um að ræða takmarkaða vinnu eða bara áhugasvið. Ég nefndi sérstaklega, í sambandi við Reykjavík, þessa þrjá staði: Við Borgarspítalann, Laugardalinn og við Suðurlandsbrautina, en fleiri góð svæði eru ennþá til, sem þetta málefni gæti átt við. Og athugið, ráðamenn, að þarna eruð þið að skipuleggja f.vrir ykkur sjálf og ykkar fólk í framtíðinni. Eitt er það, sem sérstaklega verð- ur að hafa í huga, þegar byggt er fyrir aldraða, og það er, að ekki verði hægt að selja þessar íbúðir í endur- sölu, hverjum sem er. Samtök aldraða hafa það mark- mið, að koma upp íbúðum fyrir gamla fólkið, og þá fyrst, vegna lítilllar fjárhagsgetu, fyrir þá sem möguleika hafa á því að kaupa sínar íbúðir af félaginu. Nú er í undirbúningi reglugerð, þar sem er tryggt að það fé, sem kaupandi leggur fram til kaupa á slíkri íbúð, verður við cndursölu greitt til baka með byggingarvísitölu álagi. Félagið kaupir, og kaupskilmálar eru fyrirfram ákveðnir, og félagið selur svo þeim næsta á sama verði og það kaupir og með svipuðum skil- málum pg íbúðin er upphaflega keypt á. Ibúðareiganda, eða erfingj- um hans, eru tryggð endurgreiðsla með byggingar-vísitölu álagi á því fé, sem lagt er fram við íbúðarkaup- in, miðað við gott útlit íbúðarinnar, og næsta manni eru einnig tryggðir sanngjarnir og aðgengilegir kaup- skilmálar. Ég endurtek svo beiðni mína til ráðamanna borgarinnar: Fyllið ekki að öllu leyti út í öll möguleg bygg- ingarsvæði innan eldri marka borgarinnar. Geymið svæði fyrir íbúðir handa öldruðum, til að byggja í áföngum, — það þéttir líka byggð- ina, þar sem þá losnar húsnæði fyrir yngra fólk í þeim húsum, sem gamla fólkið yfirgefur, og með þessum ráðstöfunum hjálpið þið okkur líka til að búa öldruðum ánægjulegt ævikvöld. Fyrir hönd Samtaka aldraða: Ilans Jörgensson. Fjölmenni við útför Aslaugar Sigurðar- dóttur frá Haganesi MývatnsHvett 26.5. ÚTFÖR Áslaugar Sigurðardóttur frá Haganesi var gerð sl. fimmtu- dag frá Skútustaðakirkju að við- stöddu fjölmenni. Sóknarprestur- inn séra örn Friðriksson, jarð- söng. Áslaug var fædd á Arnar- vatni 20. 12. 1884, foreldrar henn- ar voru Sigurður Magnússon bóndi þar og Guðfinna Sigurðar- dóttir. Ung giftist Áslaug Stefáni Helgasyni í Haganesi og hófu þau búskap á þeirri jörð árið 1907. Þar bjuggu þau síðan samfellt meðan heilsa entist. Þá tók ívar sonur þeirra við búsforráðum í Haganesi og hefur búið þar síðan. Þegar heilsu Stefáns og Áslaugar tók að hnigna fluttust þau til Akureyrar til dóttur sinnar. Þau eignuðust fimm börn, sem öll eru á lífi: Sigurður, Hlín og Hjördís, búsett á Akureyri, Helgi, búsettur í Reykja- vík, og Ivar í Haganesi, sem fyrr segir. Síðasta áratuginn hefur Ás- laug dvalist á Kristneshæli þar sem hún andaðist 18. þ.m. Stefán er látinn fyrir nokkrum árum. Hjónaband Stefáns og Áslaugar var ákaflega farsælt, bæði tóku þau þátt í margs konar félagsstarfsemi hér í sveitinni, einnig voru þau virkir félagar í söngfélögum sveit- arinnar. Áslaug hafði sérlega fagra söngrödd og skemmti við ýmis tækifæri með söng sínum og gít- arspili. Hún las mikið og var margfróð á sögur og ævintýri. Bæði höfðu þau mikla ánægju af að taka á móti gestum og gangandi, enda með afbrigðum gestrisin. Margur ferðamaðurinn, bæði ungur og ald- inn, hefur komið á heimili þeirra og þegið þar hinn ágætasta beina og fyrirgreiðslu. þau voru ákaflega vinsæl af öllum sem þeim kynntust og margir munu minnast þeirra nú að leiðarlokum með hlýhug og þökk. Blessuð sé minning Áslaugar og Stefáns í Haganesi. Kristján. Lítil og lipur Kovak rafritvél 33 cm. vals. Fullkomin dálkastilling 5 síritandi lyklar. Þyngd: 8,5 kg. Taska fylgir. Kynnið yður verðið. <o %*Ví**/ % SKRIFSTOFUVÉLAR H.R \ + :=x ^ ^ Hverfisgötu 33 Slmi 20560 - Pósthólf 377 símanúmer fí' : : 10100 AUGLÝSINGAR; 22480 SLA 1 83033 lltofglisttMðfrife

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.