Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979 21 Til í að gera það aftur „Ég er tilbúinn til að gera þetta aítur, þótt þetta hafi verið erfitt,“ sagði Gunnar Atlason Mosverji. Sérstaklega var gamli Kambavegur- inn erfiður, við lentum þar í snjó og torfœrum en komumst þó leiðar okkar áfallalaust. Bfllinn hefur staðið sig með prýði og ekki látið sig að neinu ráði. Við í skátafélaginu í Mosfellssveit höfum smfðað bflinn að mestu leyti sjálf, þó höfum við fengið aðstoð við að sjóða saman grindina enda höfum við ekki aðstöðu til að gera það upp á eigin spýtur“. Gunnar var ánægður með framkvæmd keppninnar og vonaðist til að hún næði tilgangi sínum og að það söfnuðust nægir peningar til að hægt yrði að festa kaup á bíl sem notaður yrði til að sinna þörfum vistmanna á Kópavogs- hæli. Mikið púl „Þetta var mikið púl, einkanlega voru síðustu áfangarnir erfiðir og þá sérstaklega síðasti hlutinn,“ sagði Þórarinn Sigurðsson Borgnesingur við lok kassabflarallsins, en keppninni lauk við Kópavogshælið. Þórarinn var einn í áhöfn bíls sem Skátafélag Borgar- ness sendi í keppnina. Kvað hann bílinn hafa reynst þokkalega, þó hefði hann bilað lítillega, legur í hægra framhjóli brugðust, en því var kippt í lag, eins og flestu öðru sem aflaga fór í keppninni. Bílinn höfðu félagar í skátasveitinni smíðað sjálfir að mestu leyti, eins og aðrir sem þátt tóku í keppninni, en fengið þó lítilsháttar hjálp við hin vandasamari atriði. Endasprettur- inn erfíðastur „Endaspretturinn fannst mér erfiðastur, einnig voru torfærurnar á hinum ýmsu leiðum erfiðar, t.d. reyndust Kambarnir og Hólmsáin ærnir farartálmar mörgum keppandanum,“ sagði Magnús Gunnlaugs- son í skátafélagi Akraness. Magnús sagði, að þau úr skátafélaginu hefðu smíðað bílinn sjálf í stórum dráttum, aðeins fengið hjálp við erfiðustu atriðin, og eytt í smíðina miklum tíma. Bílinn kvað hann reynst hið besta og staðist hverja raun, enda hinn vandaðasti að öllu leyti. Áhorfendur voru fjölmargir á fyrstu keppni Kvarmfluklúbbsins í Kapelluhrauni. Volvo-kryppan margfræga brást Hafnfirðingum að þessu sinni, kúpling bflsins var ekki í lagi og því fór sem fór. Ljfam. Kri»tinn óiaí»»on. Um 6þúsundnumnssáu fyrstu keppni Kvartmíluklúbbsins KVARTMÍLINGAR náðu marku takmarki s.l. laug- ardag, er þeir héldu sína fyrstu kvartmflukeppni. Mótið fór fram á nýbyggðri braut klúbbsins í Kapelluhrauni, að viðstöddum tæplega 6000 manns. Með hjálp íslenzkra veðurguða og samstilltu kvartmíluliði varð hin langþráða kvartmílukeppni félaga klúbbsins að veruleika. Keppnin hófst kl. 14.00 og keppt var í fjórum flokkum. I fyrsta flokki STANDARD sigraði Anna María Pétursdóttir á fjög- urra strokka BMW 2002. Hún ók kvartmíluna á 17,89 sekúndum. í öðrum flokki MODIFIED STANDARD sigraði Einar Eg- ilsson á Camaro 67, 350 CID, fór kvartmíluna á 13,78 og í þriðja flokki STREET ALTERED sigr- aði Birgir Jónsson á Chevy Monzu, 302 CID. Hann ók míluna á 12,07 sekúndum, sem er nýtt brautarmet. Fyrir það var hon- um veittur farandbikar, gefinn af Flosa Jónssyni gullsmiði á Akureyri. Að auki voru Birgi veitt peningaverðlaun að upp- hæð 100 þúsund krónur. í mót- orhjólaflokki sigraði Hilmar Harðarson á Kawasaki 1000. Brautartími hans mældist 12,38 sekúndur. Peningaverðlaun voru veitt í öllum flokkum. Að sögn Örvars Sigurðssonar, formanns klúbbsins, þótti mótið takast vel þrátt fyrir ýmsa byrjunarörð- ugleika, eða eins og hann orðaði það: „Enginn verður óbarinn biskup." Kvartmíluklúbburinn hefur nú starfað í tæp fjögur ár. í stjórn. hans eru Örvar Sig- urðsson, formaður, Jóhann Kristjánsson, varaformaður, Hálfdán Jónsson, ritari, Guð- mundur Kjartansson, gjaldkeri, og Pálmi Helgason, innheimtu- stjóri. Varamenn í stjórn eru Sveinbjörn Guðjohnsen og Birg- ir Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.