Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1979 45 VELVAKANDI % SVARAR í SÍMA 0100 KL 10—11 FRÁ MANUDEGI ua'ii if getur svo viðkomandi dæmt sjálf- ur. Sjálfskaparvítin svokölluðu eru mörg. Ein lúmskasta tegund sjálfselskunnar kemur fram í því þegar við mannanna börn reikn- um okkur sjálfum til ágætis ým- islegt sem við höfum ekkert með að gera og hefðum engu getað ráðið um þegar það átti sér stað. Hér á ég við hvað við hljótum í vöggugjöf vegna erfðalögmála, hvernig líkamlega og andlega næringu við hljótum á fyrstu árum ævinnar, hvort við lifum í sólarheimkynnum þar sem allt líf dafnar eða hvort hlutskipti okkar er að hýrast í fúkka kjöllurum með þeim afleiðingum sem slíkt hefur á líf og heilsu. Líka erum við stolt af þeirri uppfræðslu sem við fáum á alveg réttum tíma til þess að geta notfært okkur sjálfskap- arvíti hina sem fóru á mis við allt það sem við fengum að gjöf. Áfram gengur þetta því svo vex hugur þá vel gegur og drambið líka. Um það að kolvitlaust sé að rekja allt til uppeldis og kannski einhverrar reynslu eða mæðu í bernsku, vildi ég segja að ef það er réttvísinni samkvæmt, þá sé að gera sér grein fyrir orsökum hins og þessa eins og að ala á sjálfs- blekkingunni með því að skella skuldinni þar sem hún á ekki heima. Þetta tel ég að gildi hvort sem kringumstæðurnar voru svo krappar að úr manninum varð minna en efni stóðu til eða þá að hann var alinn upp í að ljúga að sjálfum sér og öðrum. Sjálfsuppeldið álít ég að geti aðeins bætt úr sumu af því sem hefur verið ábótavant. E.t.v. mætti bæta við nám félagsfræð- inga námskeiði í því hvernig heillavænlegast væri að bregðast við hinu og þessu í tilfellum þar sem aðstoðin eða inngripin koma til sögunnar alltof seint. E.t.v. væri þá aðaláherslan lögð á hvað færi hverjum og einum best þegar þeir standa andspænis tjáningar- erfiðleikum sem vart verða yfir- stignir. Einn af átján. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Wijk aan Zee í Hollandi í byrjun þessa árs kom þessi staða upp í skák þeirra Guillermo Garcia. Kúbu, og Júgóslavans Nikolac, sem hafði svart og átti leik. 21 . . . e4! 22. Dc4 (Ef 22. Dxe4 þá He8 og vinnur mann) Hc8 og hvítur gafst upp, þvi að hann fær ekki varist mannstapi. Sovézki stórmeistarinn Lev Polugajevsky varð efstur á mótinu, hann hlaut 7'/2 vinning af 11 mögulegum. Vinningi neðar komu þeir Sosonko. Hollandi, Miles, Englandi og Andersson. Svíþjóð. • Um lengdar- mælingu símtala Enn einu sinni á að ráðast á okkur Reykjavíkurbúa og í þetta sinn á að mæla hvert símtal sem fer yfir 3 mínútur og eigum við þá að greiða sérstaklega ef til dæmis símtal er 4 eða 5 mínútur. Ég tel þetta ekkert annað en gífurlega skattpíningu á okkur sem búum á Reykjavíkursvæðinu og allt er þetta gert til þess að þóknast utanbæjarfólki, eða réttar sagt, utanbæjarþingmönnum og meðal annars okkar ágætu ráðherrum sem eru kjörnir af utanbæjarfólki. Ég er síður en svo að álíta að utanbæjarfólk eigi að búa við lakari kjör en við, alls ekki, en víða úti á landi borgar fólk miklu lægri gjöld en við á Reykjavík- ursvæðinu sem borgum hæstu gjöldin. Ég tel það siðleysi af ráðamönnum að ráðast að hinum almenna símnotanda á þennan hátt. Hvað Danir og Norðmenn gera er ekki okkar mál. Við eigum ekki að apa allt eftir þeim og ef til vill fylla land okkar af Aröbum og öðrum útlendum lýð sem hefur stóraukið eiturlyfjanotkun og annan viðbjóð í þessum löndum. Nær hefði Pósti og síma verið að nota peningana sem greiða þarf fyrir þetta tæki til að bæta þjónustu við þá sem fá ekki síma t.d. í Reykjavík og Kópavogi að ég tali ekki um að byggja stöð í Kópavogi og víðar. Ég skora á þingmenn og borgar- fulltrúa Reykjavíkur að stöðva þessa árás á okkur sem búum í Reykjavík og nágrenni og hindra að slíkt komi fyrir í framtíðinni. V.S. • „Dapurleg þjónusta“ Ætli yfirmenn póstþjónust- unnar hér í Reykjavík myndu vilja birta almenningi frambærileg rök fyrir því að neitað er viðtöku á ábyrgðarpósti á kvöldin, (á hinum stutta „lúguafgreiðslutíma") sem tekið er við póstsendinum um lúgu á hurð póstafgreiðslunnar í aðal- pósthúsi borgarinnar í Póst- hússtræti. Póstnotendur munu ekki telja það notandi svar að benda fólki á að fara með ábyrgðarbréf suður á Umferðarmiðstöð úr því þessi afgreiðsla er opin á annað borð. — Almenningur vill fá skýringuna á svo dapurlegri þjónustu í aðal- pósthúsinu. S. 'v HAM E£ AéAU'MfZ MUU (Xaw/ao fA v/rr HEBA heldur við heilsunni Nýtt námskeið að hefjast Dag- og kvöldtímar tvisvar eða fjórum sinnum í viku. Megrunarkúrar — Nuddkúrar — Létt leikfimi o.fl. Leikfimi — Sauna — Ljós — Megrun — Nudd — Hvíld — Kaffi — o.fl. Sérstakir dagtímar kl. 2 og 3. Innritun í síma 42360 — 40935. Þjálfari Svava, sími 41569. Heilsuræktin Heba, Auðbrekku 53, Kópavogi. Bílarnir voru að koma! \FIAT 125 p Verð kr. 2.400.000.- m/ryðvörn. Sýningabíll á staðnum til afgreiðslu strax.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.