Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979 29 Að þessu sinni voru brautskráðir 60 nýstúdentar írá Menntaskólanum í Kópavogi. Ljósm. Guðjón. Menntaskólinn í Kópavogi útskrifar 60 nýstúdenta Fjölbrautarskóla Suðumesja slitið FJÖLBRAUTASKÓLA Suðurnesja var slitið sl. Iaugardag í samkomuhúsinu Festi í Grindavík og voru við það tækiíæri útskrifaðir 18 nýstúdentar. í yfirlitsræðu Jóns Böðvarssonar skólameistra kom fram að um 490 nemendur stunduðu nám í dagskólanum í vetur en að auki nær 70 í öldungadeild. Heildarfjöldi nemenda var því rösklega 550. Kennarar voru MENNTASKÓLINN í Kópavogi brautskráði sl. laugardag 60 nýstúdenta og er það íjórði árgangur stúdenta, sem brautskráð- ir eru írá skólanum. Skól- anum var slitið við hátíð- lega athöfn í Kópavogs- kirkju að viðstöddu fjöl- menni. Skólameistari, Ing- ólfur A. Þorkelsson, flutti skólaslitaræðuna, afhenti stúdentum skírteini og verðlaun fyrir ágætan árangur í einstökum greinum. Skólakórinn söng undir stjórn Ragnars Jónssonar tónlistarkenn- ara. Einn stúdenta, Kjart- an Árnason, flutti ávarp og árnaði skólanum allra heilla. Sem fyrr sagði voru að þessu sinni brautskráðir 60 nýstúdentar, 34 piltar og 26 stúlkur. Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut Guðni Guðmundsson, 4. bekk E (Eðlisfræðideild) 8,7. Hæstu eink- unn, sem gefin var í skólanum í vor, hlaut Sigurbjörg Stefánsdótt- ir 1. bekk, 9,0. í ræðu sinni fjallaði skólameist- ari m.a. um nauman húsakost skólans og nauðsyn þess, að byggja yfir starfsemi hans, naum- ar fjárveitingar og skipulagsleysi í byggingarmálum. 7. apríl s.l. var efnt til kynningar á starfsemi skólans. Fjöldi manns kom í skól- ann á þessum kynningardegi, spurði margs og sýndi mikinn áhuga á starfsemi hans. S.l. vetur stóðu nemendur skólans að vanda fyrir skammdegishátið 1. desem- ber og var hún vel sótt af Kópa- vogsbúum. Leiklistarklúbbur skól- ans frumsýndi Strompleikinn eftir Halldór Laxness 17. mars að viðstöddum höfundi og konu hans. 45. 53 nemendur brautskráðust: 1 atvinnuflugmaður, 5 vél- stjórar, 1. stigs, 3 nemendur af viðskiptabraut eftir tveggja ára nám, 26 iðnaðarmenn og 18 stúdentar. Af iðnaðar- mönnum voru húsasmiðir fjöl- mennastir, 7 talsins, en síðan rafvirkjar 6. Burtfararprófi luku einnig húsgagnasmiðir, pípulagningarmenn, skipa- smiðir, ljósmyndari, málari, múrsmiður og vélvirki. í stúdentahópnum voru 3 öldungar sem nám stunduðu samkvæmt áfangakerfi Menntaskólans við Hamra- hlíð, en hinir 15 samkvæmt áfangakerfi fjölbrautaskóla. Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur aðeins starfað í þrjú ár og allir stúdentar sem þaðan hafa brautskráðst hingað til, 36 alls hófu framhaldsnám annars staðar svo sem í Menntaskólanum í Hamra- hlíð, Menntaskólanum á Laug- arvatni, Flensborgarskóla, Verslunarskóla íslands eða menntadeild Gagnfræða- skólans í Keflavík. Auk skólameistara töluðu Albert K. Sanders af hálfu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Margrét Sand- ers, fulltrúi nýstúdenta, Magnús Marel Garðarsson af hálfu iðnnema, Ægir Sigurðs- son, formaður kennarafélags F.S. Jón Ólsen, formaður Vél- stjórafélags Suðurnesja, og færði hann skólanum að gjöf 200 þúsund krónur frá félag- inu og loks Guðlaugur Þor- valdsson, háskólarektor. Fagnaði hann stofnun og starfi fjölbrautaskóla á ætt- arslóðum sínum og færði skól- anum, skólameistara og brautskráðum nemendum blóm. Lúðrasveit Grindavíkur lék nokkur lög. Ingólfur A. Þorkelsson skólameistari afhendir einum nýstúdenta. Kristjönu Kristjánsdóttur úr máladeild, prófskfrteini. 18 nýstúdentar voru útskrifaðir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja sl. laugardag. Á 50 ára starfstíma skólans lætur nærri að um 8700 nemend- ur hafi brautskráðst frá skólan- um en hópurinn, sem verið hefur við nám í skólanum um lengri eða skemmri tíma er þó stærri og lætur nærri að alls hafi um 10 þúsund nemendur notið kennslu á vegum skólans. Félagslíf nem- enda hefur jafnan verið blómlegt en þröngur húsakostur hefur þó verið því þrándur í götu. Blað skólafélagsins, Blysið, hóf göngu sína á 2. ári skólans og var í fyrstu lesið upp úr því á fundum. Seinna var farið að fjölrita blaðið og kom það út flest árin allt til ársins 1974. Þá eignaðist skólinn á árunum fyrir 1940 landspildu við Leirvogsvatn, efst í Mosfellsdal og var það ætlunin að koma upp aðstöðu fyrir nem- endur skólans til vetraríþrótta. Fyrstu tvö árin voru kennarar skólans tveir, skólastjórinn sr. Ingimar Jónsson og Árni Guðna- son magister. Skólastjórar við skólann hafa verið, auk sr. Ingi- mars, Sveinbjörn Sigurjónsson frá 1955 til 1969, Jón Á. Gissur- arson hóf störf við skólann 1935 en skólastjóri var hann á árun- um 1969 til 1973, Gunnar Finn- bogason hefur verið skólastjóri Vörðuskóla frá 1973. Þess má geta að sami maður hefur verið stjórnskipaður próf- dómari í íslensku við skólann frá 1929 til 1973 eða í 44 ár en það er Jóhann Sveinsson cand. mag. frá Flögu. Vörðuskóla slitið í 50. sinn Hefur heitið fjórum nöfnum frá stofnun VÖRÐUSKÓLA í Reykjavík var sl. laugardag slitið í 50. sinn en skólinn hefur á þessum fimmtíu árum borið ýmis nöfn en lengst af var hann nefndur Gagn- fræðaskóli Austurbæjar. í vetur hefur starfsemi skólans verið með þeim hætti að 140 nemend- ur hafa verið við svonefnt for- nám fyrir iðnskóla auk þess, sem í skólahúsinu fór daglega fram kennsla 200 til 300 nem- enda úr Iðnskólanum í Reykja- vík. Til prófs gekk í vor 131 nemandi og luku allir prófum nema 2. Skólastjóri Vörðuskóla, Gunnar Finnbogason, rakti í skólaslitaræðu sinni helstu atr- iði úr sögu skólans en að henni lokinni afhenti Kristján Thor- lacius yfirkennari nemendum prófskírteini sín. Hópur eldri nemenda skólans var viðstaddur skólaslitin sl. laugardag, auk ýmissa, sem starfað hafa við skólann á um- liðnum árum en meðal gesta var sr. Ingimar Jónsson, sem var skólastjóri skólans á árunum 1928 til 1955, en Ingimar er nú 88 ára gamall. Við skólaslitaat- Vörðuskóla í Reykjavík var sl. laugardag slitið í 50. sinn. Ýmsir eldri nemendur og starfsmenn skólans voru viðstaddir skólaslitin. Ljósm. Guðjón. höfnina afhentu 20 ára gagn- fræðingar skólanum að gjöf mál- verk af skólahúsinu eftir Jónas Guðmundsson. Við skólaslitin sungu vinir skólans og gamlir nemendur undir stjórn Garðars Cortes. Skólinn var stofnaður með lögum nr. 68 frá 1928 og nefndist hann þá Ungmennaskólinn í Reykjavík. Var hann settur í fyrsta sinn 2. október 1928 í húsi gamla Stýrimannaskólans og voru nemendur hans fyrsta árið 47 á aldrinum 13 til 17 ára auk þess voru 17 nemendur í kvöld- skóla, sem rekinn var á vegum skóians. Frá 1930 er skólinn nefndur Gagnfræðaskólinn í Reykjavík en oftast var hann þó nefndur Ingimarsskólinn eftir skólastjóranum. Ný lög um gagnfræðanám tóku gildi 1946 og þegar skólinn fluttist í nýtt skólahús við Skólavörðuholt, þar sem hann er enn til húsa, árið 1949, er hann nefndur Gagn- fræðaskóli Austurbæjar. Síðast var nafni skólans breytt fyrir nokkrum árum vegna ruglings við gagnfræðadeildir Austur- bæjarskólans og nafni skólans breytt í Vörðuskóla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.