Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979 Kassabílaralli lokið: Dalbúar ( sÍKurvímu. Allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó Nýstárlegur bfll í borgarumferð. Lióxm.Rax. FYRSTA kassabflaralli sem haldið hefur verið á íslandi lauk á sunnudaginn við Kópavogshælið. Alls tóku ellefu bflar þátt f keppninni og luku þeir allir keppni. Skátar stóðu fyrir ralli þessu, sem haldið var til styrktar Kópavogshælinu. Ekki létu skátarnir það á sig fá þótt ýmis smávægileg óhöpp eða hindranir yrðu í veginum, voru allir slikir erfiðleikar yfirstignir með bros á vör, eins og sönnum skátum sæmir. Sigurvegarar keppninnar urðu Dalbúar, skátafélag úr Laugarnesinu, í öðru sæti urðu keppendur úr Skátafélagi Akraness en þriðja sæti skipuðu Kópar úr Kópavogi. Dalbúar voru að vonum ánægðir með sigurinn, en hann þökkuðu þeir fyrst og fremst góðri æfingu liðsins, en það æfði þrisvar í viku mánuðinn fyrir keppnina, góðum bíl og síðast en ekki síst góðum klappstýrum. Erfiðasta hluta leiðarinnar töldu þeir gömlu Kambana, ýmsar sérleiðir, einnig reyndist Hólmsáin þeim, eins og mörgum öðrum, þung í skauti m.a. féll einn Dalbúinn í ána. Síðasta hluta leiðarinnar töldu skátarnir erfiðan, en á þeim hluta gátu þeir látið gamminn geysa því engin tímatakmörk voru á þeim hluta leiðarinnar, og varð því hreinn kappakstur úr síðasta spölinn. Fjölmargir áhorfendur fylgdust með rallinu þegar keppendur nálguðust endastöðina, ekki síst bíleigendur sem gáfu þessum nýstárlegu og sparneytnu farartækjum hornauga, þegar orkukreppa og bensínverð er alla að sliga. Komið f mark. Vel heppnaður Flugdagur á Selfossi Fokkervél Flugleiða sýnir lágflug. LJósm. Mbl. Baldur Svelnason. FLUGKLÚBBUR Selfoss gekkst fyrir flugdegi s.l. laugardag. Þar var margt um manninn en skilyrði til sýningarhalds voru frem- ur óhagstæð vegna þess hve lágskýjað var. Engu að síður þótti flugsýning þessi vel heppnuð. 18 litlar flugvélar frá Reykjavík voru mættar til leiks. Þær flugu í samflugi frá Reykjavík um Þing- velli því Hellisheiðin var lokuð vegna þess hve lágskýjað var. Magnús Norðdahl sýndi listflug, Haraldur Snæhólm sýndi ýmsar kúnstir á Chipmunk, Fokker-vél frá Flugleiðum flaug lágflug yfir flugvöllinn á Selfossi og varnarlið- ið á Keflavíkurflugvelli sendi þrjár vélar á sýninguna, þar af tvær Phantom orrustuvélar, en þær hafa ekki áður verið sýndar á flugsýningu hér. Ahorfendur voru fjölmargir og skemmtu sér hið bezta. Sýningin stóð í tæpar fjórar klukkustundir og að henni lokinni var gestum úr Reykjavík boðið uppá kaffi og sérstaka flugvélaköku. Formaður Flugklúbbs Selfoss er Jón Guðmundsson yfirlögregluþjónn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.