Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979 fltargtiiiÞIafrifr Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvnmdaatjóri Haraldur Sveinaaon. Ritatjórar Matthíaa Johanneaaen, Styrmir Gunnaraaon. Ritatjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundaaon. Fréttaatjóri Björn Jóhannaaon. Auglýaingaatjóri Baldvin Jónaaon Ritatjórn og akrifatofur Aóalatræti 6, aími 10100. Auglýaingar Aöalatraati 6, aími 22480. Afgreiöala Sími 83033 Áakriftargjald 3000.00 kr. é mánuöi innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakió. Málef ni bænda í brennidepli Ríkisfjölmiðlar hafa þau lög að starfa eftir, að sýna ekki hlutdrægni. Nú er komin upp sú staða, að Alþingi hefur verið slitið án þess að nokkur botn fengist í, hvernig ráðið skuli fram úr þeim geigvænlegu vandamálum, sem bændur standa frammi fyrir, annars vegar vegna offramleiðslu og hins vegar sakir vorharð- indanna. Út af fyrir sig var það mikil hreinskilni af Steingrími Hermannssyni landbúnaðarráðherra í sjónvarpsþætti á föstudagskvöld að játa það umyrða- laust, að ríkisstjórnin nyti minna trausts hjá bændum en áður. En hitt hefur ugglaust komið bændum á óvart, að landbúnaðarráðherrann skyldi ekki standa fastar á málum sínum en svo að telja, að ástandið á stjórnarheimilinu versnaði ekkert, þótt hlutur bænda yrði látinn eftir liggja. Einhvern tíma hefði landbúnað- arráðherra Framsóknarflokksins gert slíkt að fráfarar- atriði og þótt minna væri. Hitt vekur furðu, að í Kastljósi skuli einn krati og einn framsóknarmaður fengnir til að ræða ástandið í landbúnaðarmálunum, eins og nú er komið. Þjóðin er orðin löngu leið á karpi stjórnarsinna innbyrðis, enda hefur það jafnan farið svo, þegar stærstu yfirlýsingarn- ar hafa verið gefnar, að þá hefur verið skammt í það, að hið gagnstæða væri gert af ríkisstjórninni. Þó tekur út yfir, þegar fréttamaðurinn spyr Sighvat Björgvinsson um afstöðu sjálfstæðismanna í landbúnaðarmálum. Hitt er sannleikur málsins, að sjálfstæðismenn höfðu allt frumkvæði í málefnum bænda á þingi í vetur. Tillögur þeirra voru hins vegar felldar af öllum þeim stjórnarþingmönnum sem viðstaddir voru atkvæða- greiðsluna. Svo gerist það á síðustu dægrum þingsins, að þingmenn Framsóknarflokksins og Alþýðubanda- lagsins semja tillögur án fyrirhyggju og án stefnu til frambúðar. Engar skýringar voru gefnar við neinu, sem máli skipti, en hagsmunir bænda lagðir undir eitt spil. Slík er ævintýramennskan, sem landbúnaðarráðherr- ann hefur gert sig beran að, og bændur hljóta að meta ríkisstjórnina af þessum verkum, eins og hann sagði raunar sjálfur í sjónvarpsþættinum. Svo er komið, að Kastljós er að verða að „karphúsi“ stjórnarsinna. Stjórnendur þess hafa sýnilega ekki áhuga á því, að menn fræðist af þessum „fréttaþáttum". Annað mál er að vandi landbúnaðar verður ekki einangraður frá rekstrardæmi þjóðarbúskaparins né heildarmynd byggðar í landinu. — Helft atvinnutæki- færa og efnahagslegrar undirstöðu flestra þéttbýlis- staða okkar er byggð á tilvist nærliggjandi landbúnað- arhéraða: úrvinnslu búvöru og verzlunar- og iðnaðar- þjónustu við sveitir. Landbúnaður er mikilvægur hráefnagjafi vaxandi iðnaði í landinu og ullar- og skinnaiðnaður er, svo afmarkað dæmi sé tekið, stærsta einstök útflutningsgrein íslenzks iðnaðar, ef fiskafurðir og ál er undanskilið. Útgerðar- og fiskvinnslubæir, sem mynda keðju verðmætasköpunar á gjörvallri strandlengjunni, standa sem sé öðrum fæti tilveru sinnar, atvinnu- og efnahagslega, í aðliggjandi landbúnaðarhéruðum. Svo saman slungnir eru hagsmunir þéttbýlis og strjálbýlis og forsendur þess að halda landinu öllu í byggð. Það verður því að fara með varúð og fyrirhyggju í óhjákvæmilega aðlögun íslenzks landbúnaðar að mark- aðsaðstæðum næstu framtíðar. Þann stóra vanda sem þar er orðinn, verður stétt að leysa með stétt þann veg, að hlutur íslenzks landbúnaðar og bændastéttar í íslenzkri þjóðlífsmynd, atvinnulegri og menningarlegri, skekkist ekki. Ella gæti sá skaði skeð, sem erfitt yrði úr að bæta. Ríkið tekur 16.8 millj- arða króna erlent lán TÓMAS Árnason, fjármála- ráðherra, undirritaði 25. maí f.h. íslenska ríkisins samning við átta erlenda banka um lántöku að upphæð 50 milljónir Banda- ríkjadollara (um 16,8 milljarðar fsl. króna). Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir á vegum ríkisins á þessu ári og næsta, og er m.a ætlað til vegagerðar, landshafna, framkvæmda að vegum RARIK og Orkusjóðs og hitaveitufram- kvæmda vfða um land. Lánið er til 12 ára með breytilegum vöxtum, sem eru 5/8 úr prósenti yfir millibankavöxtum í London á hverjum tíma. Afborganir hefjast að sex árum liðnum. Er óhaett að segja, að þessi kjör eru fyllilega sambærileg við þau kjör, sem nú fást best á erlendum lána- mörkuðum. Háskólafyrirlestrar um félagsfræði og bókmenntir DOKTOR Stephen Wieting, prófessor við fylkisháskólann f Iowa, flytur tvo opinbera fyrir- lestra f boði félagsvfsindadeildar Háskóla íslands. Fyrri fyrirlesturinn verður fluttur í kvöld, þriðjudag 29. maí, kl. 21.00 í stofu 101 í Lögbergi húsi lagadeildar H.í. Fyrirlestur- inn nefnist Saga Stories and Sociology Litterature in the Comparative Study of the Fa- mily. í fyrirlestrinum gerir Wiet- ing samanburð á bókmenntaleg- um og félagsfræðilegum aðferð- um við að skoða fjölskylduna. Seinni fyrirlesturinn verður fluttur á morgun, miðvikudag 30. maí, kl. 21.00 í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar H.I. Fyrirlesturinn nefnist Form as Content and Media as Messages in Education. í fyrirlestrinum ræðir prófessor Wieting um notk- un mismunandi miðla við kennslu, svo sem tölvur, segul- bönd og myndsegulbönd. Einnig ræðir prófessor Wieting um hvernig þessir miðlar tengjast hefðbundnum kennsluaðferðum s.s. fyrirlestrum og skrifuðu máli. Báðir fyrirlestrarnir eru fluttir á ensku. Ólafsflrði 28. maf. HÉR er alls ekki sumarlegt, snjóbreiða yfir öllu og enn er Af hálfu lánveitenda hafa Hambros Bank Limited, Mitsui Finance Europe Limited og Scandinavian Bank Limited haft forystu um lánið, en aðrir bankar, sem aðild eiga að láninu, eru Banque Canadienne Nationale (Bahamas) Limited, Credit Commercial de France, Credit Lyonnais, The Mitsubishi Trust and Banking Corporation og The Sumitomo Bank Limited. Seðla- banki Islands annaðist undir- búning lántökunnar f.h. fjármála- ráðuneytisins. mikill snjór á láglendi. Samgöng- ur hafa verið hér eins og þær eru verstar yfir veturinn. Ólafsfjörður: Samgöngur eins og rnn hávetur „Þorsteinn Ing- ólfsson” 30 ára Sjálfstæðisfélagið Þorsteinn Ingólfsson í Kjósarsýslu er þrjátfu ára í dag. Það var stofnað 29. maí 1949 og voru stofnendur rúmlega tvö hundruð talsins. Fyrsti formaður félagsins var Ásbjörn Sigurjóns- son á Álafossi, en núverandi formaður er Helgi Jónsson á Felli. Haldið verður upp á afmælið síðar á árinu. Á miðvikudaginn var Múlaveg- ur ruddur, en lokaðist þá um nóttina af völdum snjóflóða. Póst- ur hefur ekki komið hér síðan á þriðjudag. Nú er hér gott veður og er unnið við snjómokstur í ólafs- fjarðarmúla. Standa vonir til að úr samgöngunum rætist í kvöld. Sauðburður stendur nú hér sem hæst. Hey eru víða á þrotum og enn er sýnt að fé verður að vera á gjöf fram í næsta mánuð. — Jakob. „Geymt Eins og fram hefir komið í fréttum hugðist starfsfólk Kópa- vogshælis efna til kröfugöngu á fund fjármálaráðherra s.l. föstu- dag, 25. maí. Aðgerðum þessum var aflýst og viljum við gera grein fyrir ástæðum þess og stöðu máls- ins núna. Aðgerðir þessar voru eingöngu framtak starfsfólks á deildum, sérfræðingar hælisins áttu þar engan hlut að máli. Meðan á undirbúningi aðgerðanna stóð áttu sér hins vegar stað viðræður milli nokkurra af sérfræðingum hælisins og ráðuneytisstjóra heil- brigðisráðuneytisins, Páls Sigurðssonar. Eftir þær viðræður var látið berast til undirbúnings- nefndar aðgerðanna (sem við en ekki undirritaðar áttum sæti í) að Kópavogshæli hefði fengið loforð fyrir umbeðinni fjölgun stöðu- gilda, og mætti ráða fólk þegar í stað samkvæmt því. Þar sem þar með var búið að uppfylla kröfur okkar, var eðlilegast að aflýsa aðgerðunum. Á fundi með starfsfólki sem haldinn var umræddan föstudag kom reyndar í ljós, að „kerfið" er ekki svona einfalt. Þær ráðningar sem nú hafa verið heimilaðar eru einungis umframráðningar eins og áður hefur tíðkast — 161 stöðugildi fyrir alla starfsemi þessarar stóru stofnunar — og það er háð örlæti fjárveitingarvalds- ins, Alþingis og fjármálaráðu- neytis á ári komanda, hvort þessar heimildir verða auknar. gleymt” Við teljum okkur tala fyrir munn alls starfsfólks hælisins þegar við segjum að barátta okkar heldur áfram uns heimildir hafa verið gefnar fyrir fjölgun fólks, ekki til bráðabirgða, heldur sem reikna má með og hægt er að byggja á. Það er einmitt óstöðug- leikinn í starfsmannahaldi sem stendur hvað mest í vegi fýrir að hægt sé að byggja upp þjálfunar- meðferð á deildum hælisins. Við erum tilbúin í aðgerðir hvenær sem þörf krefur. Við erum búin að útbúa okkar borða og kröfuspjöld, en við vonum, að ekki þurfi að grípa til þeirra! Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, starfsstúika Hafdís Helgadóttir, þroskaþjálfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.