Morgunblaðið - 30.11.1979, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979
41
Allan Thornton talsmaður Greenpeace-samtakanna:
„Komuitt aftur næsta sumar nema
Islendingar hætti hvalveiðum44
Vlð HöFUM ákveðið að koma
aftur til íslands á næsta ári nema
svo fari, að íslendingar ákveði að
hætta hvalveiðum, sagði Allan
Thornton, talsmaður Green-
peace-samtakanna, í samtali við
Morgunblaðið, en hann er nú
staddur hér á landi. Ætlaði hanr
Allan Thornton
að ræða við íslenzk stjórnvöld um
hvort breytingar væri að vænta á
stefnu íslendinga í hvalveiðimál-
um, en fyrir því sagðist hann
hafa rökstuddan grun. Þá sagði
Stórmark-
aðurinn
eftir Ib H. Cavling
BÓKAÚTGÁFAN Hildur hefur
sent frá sér bókina Stórmark-
aðurinn eftir Ib. H. Cavling 1
þýðingu Skúla Jenssonar. Bókin
er 188 bls. í fallegu bandi.
Stórmarkaðurinn er ástarsaga
og segir m.a. á kápu bókarinnar:
Utávið er Stórmarkaðurinn ' risa-
vaxið verzlunarfyrirtæki með
mörgum deildum sem gengur eins
og vel smurt hjól í vél. Aðalsögu-
hetjan, Birta, er ráðin einkaritari
yngsta forstjórans og skilst henni
fljótt að bak við tjöldin er á
ferðinni hættulegt laumuspil, sem
hún og ást hennar komast ekki hjá
að blandast í.
Þá segir að þessi bók sé ein
litríkasta og skemmtilegasta bók
höfundar en yfir 20 bækur hafa
komið út á íslenzku eftir Ib. H.
Cavling.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810
hann, að Greenpeace krefðist
þess, að islenzk stjórnvöld sæju
um að senda tæki Greenpeace og
báta þeirra til Englands, en
bátarnir voru teknir í sumar, en
Greenpeace var fyrir nokkru
tilkynnt að samtökin gætu hirt
bátana og tækin.
Næsta ár ætlum við þó ekki
aðeins að beina spjótum okkar að
veiðum Islendinga, heldur einnig
að veiðum Norðmanna á hval í
N-Atlantshafi, sagði Thornton.
Hvort aðgerðir okkar verða svip-
aðar næsta ár og í sumar fer eftir
því hvort stefna íslendinga í
hvalveiðimálum breytist með
nýrri ríkisstjórn.
Ef ný ríkisstjórn verður fús til
að styðja bann við hvalveiðum
þurfum við ekki að koma aftur, en
það ætti að vera öllum ljóst, að
hvalveiðar verða bannaðar innan
tveggja ára. Ef hins vegar verða
leyfðar óbreyttar veiðar munum
við að sjálfsögðu koma aftur.
Rainbow Warrior verður þá send-
ur á miðin vestur af landinu og við
væntum þess að fá báta okkar og
tæki send til Bretlands. Þar sem
stjórnvöld leggja ekki lengur hald
á þessi tæki finnst okkur og
krefjumst þess að þau verði send
til Bretlands. Tækin voru tekin af
okkur á ólögmætan hátt, að okkar
mati, og því viljum við fá tækin í
okkar hendur okkur að kostnað-
arlausu.
Við höfðum vonast til þess að
geta átt fund með einhverjum
fulltrúa ríkisstjórnarinnar, en
vegna kosninga um næstu helgi
hefur það ekki tekist. Ég gæti því
þurft að koma aftur til að ræða
ýmis mál við stjórnvöld. Með
aðgerðum okkar teljum við að
verulegur árangur hafi náðst.
Fólk hefur fengið upplýsingar um
hvalastofninn og hvað er að gerast
á miðunum, þannig að tekist hefur
að vekja athygli á þessu alvarlega
máli. Stjórnvöld hafa ákveðið að
auka rannsóknir á hvölunum og þó
þær rannsóknir hefði átt að gera
fyrir 20 eða jafnvel 50 árum þá
miðar þetta allt í rétta átt. Við
höfum frétt að stjórnvöld hafi
endurskoðað afstöðu sína til
hvalveiði og viljum fá að vita
hvort Islendingar muni stöðva
hvalveiðar á næsta ári eða ekki.
Það eru einnig önnur mál, sem
við höfum áhuga á að sinna og þá
t.d. háhyrningarnir i Sædýrasafn-
inu. Við teljum dýrin illa haldin
og greinileg kalsár er að sjá á
dýrunum. Þó þetta hafi ekki verið
aðaltilgangur ferðarinnar hingað,
þá er nauðsynlegt að vekja athygli
á þessu, sagði Allan Thornton.
500 BILASTÆÐI
eru viö stærstu yfirbyggöu verzlunargötu á íslandi.
í Sýningarhöllinni hafa 28 kaupmenn opnaö stórverzlun og bjóöa fjölbreytt
úrval af góöum vörum. ---- ^ ---
í kvöld koma á
SKEMMTIPALL
Tóti truöur eftirlæti barnanna kl. 7
Baldur
inu
SÝNINGARHÖLLINNI
BILDSHOFÐA