Morgunblaðið - 29.11.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ, um frétt DV um leynisamkomulag:
Frétt Dagblaðsíns bein at-
laga að almennu launafólki
„Það er eitt að óhæfir blaðamenn falli í þá freistni að skrifa rugl-
greinar um prófkjör flokkanna. Það er í sjálfu sér þeirra mál. En
það er dálítið annað þegar fjölmiðlar spila út lygum um mál sem
skipta okkur öll mjög miklu. Að því er best verður séð er naumast
hægt að finna annan tilgang þar að baki en þann að hafa áhrif á
prófkjör í einum stjóramálaflokki," sagði Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, á fundi með blaðamönnum í gær vegna fréttar í dag-
blaðinu DV um leynilegt samkomulag forystumanna ASÍ og VSÍ um
25 þúsund króna lágmarkslaun og enga vísitöluhækkun 1. desem-
ber. Forsvarsmenn VSÍ sögðu einnig að enginn fótur væri fyrir því
að gert hefði verið leynilegt samkomulag við ASÍ.
Ásmundur boðaði til blaða-
mannafundarins fyrir fund aðal-
samninganefnda ASÍ og VSÍ og var
samninganefnd ASÍ viðstödd. Hann
sagði ennfremur: „Menn mega auð-
vitað ætla mér það að ég telji það
heppilegast fyrir mig í einhverri
prófkjörsbaráttu að eyða allri
síðustu vikunni fyrir prófkjörshelg-
ina í það að sitja samningafundi.
Það er út af fyrir sig ekki mál til
þess að gera veður út af. En það
er einum of langt gengið þegar það
er farið að ljúga því upp að ég sé
hér með samningsdrög í höndunum,
og þá væntanlega samninganefndin
öll, um 25 þúsund króna lágmarks-
kaup, sem eigi að greiðast með því
að fóma 2% kauphækkunum um
næstu mánaðarmót. Ég hef ítrekað
lýst því yfir að ekki komi til greina
að afsala neinu af eðlilegri kaup-
hækkun 1. desember. Sú staðrejmd
liggur fyrir.
Ég hef hvergi ljáð máls á 25
þúsund króna lágmarkslaunum og
það hefur samninganefndin í heild
sinni eða einstakir aðilar innan
hennar ekki gert. Sú staðreynd ligg-
ur einnig fyrir. Ég hef ekki og ég
ætla ekki að blanda saman pólitísku
starfí mínu og þeirri vinnu sem ég
er að vinna fyrir verkalýðssamtök-
in. Ég sit núna í samningaviðræðum
og það gerum við öll sem erum í
þessari samninganefnd. Við þurfum
á því að halda að fá að vera í friði
fyrir svona skemmdarverkamönn-
um. Fijáls blaðamennska er eitt.
Lygavefur af því tagi, sem þarna
er uppi hafður, er utan veggja. Það
er bein atlaga að almennu launa-
fólki að útbreiddur fjölmiðill, næst
stærsta dagblað landsins, skuli bera
slíkar lygar á torg. Slíkar lygar eru
bein árás á samninganefndina, sem
hér situr, og við hljótum að mót-
mæla henni. Það var þetta sem ég
vildi koma á framfæri gagnvart §öl-
miðlum hér strax í upphafi, þvi ég
tel að samninganefndin geti ekki
setið undir þessari frétt án þess að
henni sé mótmælt á skýran og skil-
merkilegan hátt,“ sagði Ásmundur.
„Það er alveg ljóst að með svona
lygafréttum getur flölmiðlum tekist
að búa til það tortryggnisandrúms-
loft að það eyðileggi þær tilraunir
sem hér eru uppi af heilum huga
af okkar hálfu að leita að lausn í
þessum málum," sagði Ásmundur
í lok fundarins.
Morgunblaðið/Bjami
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, á fundi með blaðamönnum
í gær.
VEÐUR
* *
-X * * *
* 4 r r /
ÍDAGkl. 12.00: ' r
Heímild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR IDAG:
YFIRUT á hádegi f gær: Um 800 km noröaustur af landinu er 972
millibara djúp lægö á hreyfingu norðaustur og frá henni lægðar-
drag suövestur um ísland. Um 600 km suðsuðaustur af Hvarfi er
önnur lægð, vaxandi 980 millibara djúp, sem hreyfist austnorðaust-
ur og veröur skammt suður af Vestmannaeyjum á morgun.
SPÁ: Austanátt verður ríkjandi á landinu, allhvöss eða hvöss, um
sunnanvert landiö en mun hægari í öðrum landshlutum. Sunnan til
á landinu og síðar einnig á Austfjörðum verður snjókoma eða slydda
en úrkomulaust að mestu norðanlands. Hiti yfir frostmarki um
sunnan- og suðvestanvert landiö en fróst norðanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR: Norðanátt og óljagangur norðanlands en bjart
verður á suðaustur- og suðurlandi. Litilsháttar él vestanlands. Frost
1 til 5 stig.
MÁNUDAGUR: Hæg norðlæg átt og heldur kólnandi. Víða bjart
veður inn til landsins en ól við ströndina.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Gk Hálfskýjað
▲
m Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
r Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hftastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígœr að ísl. tíma htti vaAur
Akureyri 0 snjókoma
Reykjavfk 1 léttskýjaó
Bergen 9 rigning
Helslnkl 7 rignlng
JanMayen -6 rennlngur
Kaupmannah. 8 þokumóða
Narsaaruuaq -14 léttskýjaA
Nuuk -7 léttskýjaft
0*16 10 skýjaft
Stokkhölmur 10 skýjað
Þórahöfn 6 rlgning
Algarve 17 þokumófta
Amsterdam 6 þoka
Aþena 12 skýjað
Barcelona 16 mlstur
Beriín 6 mistur
Chlcago 0 þokumóða
Glasgow 10 skýjað
Feneyjar 11 helðskýrt
Frankfurt 1 þokumófta
Hamborg S þokumóða
LasPalmas 22 skýjað
London 9 þoka
Loa Angeles 11 léttskýjað
Lúxemborg 3 þokumófta
Madrfd 9 léttskýjað
Malaga 18 skýjað
Maltorca 16 skýjað
Mlaml 23 léttskýjað
Montreal 3 moldrok
Nice 17 heiðskfrt
NewYork 1 Mttakýjað
Parfs 6 skýjað
Róm 16 hélfskýjað
Vln 7 skýjað
Washington 3 þokumóða
Wlnnlpeg -8 skýjaft
Landsbyggða-
samtök verslun-
armanna stofnuð
„ÞAÐ er mismunandi aðstaða hjá verslunarmannafélögum á lands-
byggðinni, þau eru misstór og missterk. Landssamband íslenskra
verslunarmanna hefur verið veikt og hefur ekki veitt landsbyggð-
inni nógu góða þjónustu. Þar hefur aðeins verið starfsmaður i hálfu
starfi og okkur hefur fundist skorta á upplýsingar frá landssamband-
inu. Þetta er meginástæðan,“ sagði Steini Þorvaldsson, formaður
nýstofnaðra Landsbyggðasamtaka verslunarmanna, er hann var
spurður um ástæðurnar fyrir stofnun Landsbyggðasamtakanna.
Steini sagði að önnur ástæða
væri sú að hallað hefði á verslunar-
menn á landsbyggðinni hvað laun
snerti í samanburði við laun sömu
starfsstétta á höfuðborgarsvæðinu.
Sagði hann að samtökin myndu í
kjarasamningunum nú einbeita sér
að því að leiðrétta þetta misræmi.
Vildu þau að taxtakerfið yrði stokk-
að upp og taxtakaup fært að því
kaupi sem raunverulega væri greitt
f stéttinni.
Steini sagði að ekki væri verið
að kljúfa Landssamband íslenskra
verslunarmanna. „Við teljum okkur
eiga samleið með verslunarmönnum
á höfuðborgarsvæðinu, en teljum
okkur þurfa vettvang til þess að
ræða þau mál sem snúa að lands-
byggðinni og samræma þau sjónar-
mið sem þar eru á ferðinni," sagði
Steini.
Vandi innlends skipasmíðaiðnaðar:
„Tillögur mínar
hafa ekki feng-
ið hljómgrunn“
- segir Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra
ALBERT Guðmundsson iðnaðarráðherra segir að tillögur hans til
lausnar vanda innlends skipasmiðaiðnaðar hafi ekki fengið hljóm-
grunn i rikisstjórninni. Hann hafi lagt til að íslenskir sjóðir yrðu
ekki notaðir til þess að fjármagna viðgerðir eða nýsmiðar skipa
erlendis, ef hægt væri að framkvæma slíkt hér heima.
„Ég lagði til að íslenskir sjóðir
verði ekki notaðir til þess að fjár-
magna viðgerðir eða nýsmíðar skipa
fyrir íslenska aðila erlendis, ef hægt
væri að gera slíkt hér heima," sagði
iðnaðarráðherra í samtali við Morg-
unblaðið. Albert sagðist jafnframt
vera því andvígur að fslenskir sjóð-
ir væru notaðir til þess að halda
uppi vinnumarkaði erlendis á sama
tfma og íslenskar skipasmíðastöðv-
ar væru verkefnalausar.
„Því miður hafa þessar tillögur
mínar ekki náð fram að ganga, og
þær hafa ekki fengið hljómgrunn í
ríkisstjóminni," sagði Albert.
Albert var spurður hveijir hefðu
lagst gegn þessum tillögum hans,
en hann vildi ekki upplýsa það.
„Ég hef gert ítrekaðar tilraunir
til þess að koma í veg fyrir að er-
lend undirboð nái fram að ganga,“
sagði iðnaðarráðherra, „en án ár-
angurs. Ég hef gert allt sem mér
hefur dottið í hug, í samráði við
það sem Samband málm- og skipa-
smiðja og Skipasmfðasamband
íslands hafa beðið um, en enn hef-
ur það ekki borið árangur."