Morgunblaðið - 29.11.1986, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVÉMBER 1986
*
Arsþing Rannsóknar-
ráðs ríkisins:
Þurfum
áthafnír í
stað orða
Fimmta ársþing Rannsóknarráðs
ríkisins var haldið í gœr. Á þing-
inu voru flutt erindi um rann-
sóknir og þróunarstarfsemi á
íslandi, virkjun frumkvæðis og
hugvits, og hvemig nýta mætti
áður ónýttar auðlindir.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra setti þingið, og lagði
þá m.a. áherslu á mikilvægi rann-
sókna í nútímasamfélagi, og
nauðsyn þess að efla nýjar atvinnu-
greinar sem byggðust á nýrri tækni.
„Stundin er hraðfleyg, í dag þurfum
við athafnir í stað orða" sagði ráð-
herra. Vilhjálmur Lúðvíksson
framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs
ríkisins flutti yfirlit um rannsóknir
og þróunarstarfsemi á íslandi
1984-1985. Hann fjallaði m.a. um
nauðsyn þess að efla rannsóknir og
sagði nágrannaþjóðir okkar veija
umtalasverðum fjármunum til rann-
sókna og uppbyggingar nýrra
atvinngreina. Hin nýja tækni myndi
skila af sér alhliða þjóðfélagsfram-
förum og miklum hagvexti, og því
ekki æskilegt að fjárfesta um of í
gömlum atvinnugreinum.
Prófessor J.T.Wallmark flutti er-
indi um tengsl háskóla og fyrir-
tælq’a, og hvemig virkja mætti
þekkingu háskólamanna í atvinn-
ulífínu. Þá sagði Bergþóra Jóns-
dóttir lífefnafræðingur frá nýtingu
sérstæðrar auðlindar, en fijósemis-
hormón hefur verið unnið úr blóði
fylfullra mera um nokkurt skeið hér
á landi og flutt út. Bergþóra sagði
þetta dæmi um smáiðnað sem
byggðist á tækniþekkingu sem til
er í landinu, og sýndi að við erum
samkeppnishæf við aðrar þjóðir
hvað þetta snertir. Jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri íslenska Jám-
blendifélagsins fjallaði um virkjun
hugvits á íslandi og Þráinn Þor-
valdsson franmkvæmdastjóri Ut-
flutningsráðs íslands flutti erindi
um virkjun fmmkvæðis hér á landi.
Að loknum framsöguerindum var
unnið í fimm starfshópum, í hópun-
um var fjallað um tæknigarða á
íslandi, áhættufé, fmmkvæði, sam-
skipti sérfræðinga og hugvits-
manna, markaðsmanna og
stjómenda fjármagns, og ytri skil-
yrði til nýsköpunar á íslandi.
Frá Vest-
firðinga-
félaginu
AÐALFUNDUR Vestfirðingafé-
lagsins í Reykjavík verður
haldinn á morgun, sunnudag, kl.
14.00 að Fríkirkjuvegi 9.
Á fundinum fara fram venjuleg
aðalfundarstörf. Félagsmenn í
Vestfirðingafélaginu em hvattir til
að fjölmenna.
mmou
og fáðu áskriftargjöldin
SÍMINN ER
691140
691141
j22HEEIBBEŒ2iSni332HI
FLUGA Á VEGG
þúþína uppáhalds
■ s* ■
Falleg gjöf í giltum
ramma með rauðum grunni
687090
BÝÐUR EMHVER BETUR?
HLJOMBÆR
Umboðsmenn: HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 Opið til kl. 16.00 í dag
Bókaskemman Akranesi, Radíóver Húsavík, Kaupfétag Rangœinga Hvolsvelll,
Kaupfélag Borgfiröinga, Skógar Egilsstööum, M.M.búöin Selfossi,
Seria ísafiröi, Kaupfélag Héraösbúa Egilsstööum, Rás Þorlákshöfn,
Kaupfélag Skagfiröinga Sauöárkróki, Myndbandaleiga Reyöarfjaröar, Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum,
KEA Akureyri, Djúpiö Djúpavogi, Fataval Keflavík,
Radíóröst Hafnarfiröi, Búland Neskaupstaö,
J.L húsiö Reykjavík, Hornabœr Hornaflröl,