Morgunblaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
GESTUR
Bragi Sigurjónsson
útilegumannasögur um grösuga
dali, feita sauði og friðsæld fjall-
anna.
Þessi önnur útgáfa mun nú hitta
fyrir annars konar lesendur en forð-
um; fólk sem fætt er og uppalið í
þéttbýli og þekkir sveitalífið ein-
ungis af lestri og frásögnum
annarra — ef það þá þekkir yfír-
höfuð nokkuð til þess. Gerbreytt
samgöngutækni hefur svipt öræfín
sinni gömlu dul. Munu lesendur
þessarar nýju útgáfu skilja hrif-
næmi þeirra sem skráðu rit þetta
fyrir fjórum áratugum og voru þá
miðaldra menn eða eldri? Fróðlegt
væri að fá svar við þvílíkum spum-
ingum.
En hvað sem allri sveitarómantík
líður verður að viðurkennast að á
ritunartíma Gangna og rétta voru
í sveitunum margir prýðisvel rit-
færir menn, sjálfmenntaðir svo til
allir, menn sem reynt höfðu á sjálf-
um sér það sem þeir tóku sér fyrir
hendur að lýsa. Það skapaði bænda-
stéttinni sjálfstraust að eiga slíkum
mönnum á að skipa.
Gyorgy Pauk
skapstyrk og ákveðni, þann annan
af blíðu þar sem fínleg stefín voru
mjög vel mótuð og þann síðasta
af fjöri og glettni í ágætri sam-
vinnu við hljómsveitina, enda vel
tekið af áheyrendum og þakkaði
fyrir sig með Saraböndu eftir
gamla Baeh.
Að loknu hléi heyrðum við svo
„Svo mælti Zaraþústra" eftir Ric-
hard Strauss, magnað og áhri-
faríkt tónaljóð með hinu fræga
grípandi upphafsstefi og
myndríka tónamáli, sem skilar sér
ekki til fulls nema með stórri
hljómsveit, stærri en við höfum í
dag. Við þurfum fleiri strengi til
að ráða við verk sem Zaraþústra
svo vel sé. Ekki þar fyrir að hér
var margt laglega gert. Miltiades
Caridis var vel heima í Strauss
og stjómaði þessu langa verki
blaðalaust og tókst að mana okk-
ar menn til umtalsverðra átaka.
Richard Strauss var vissulega
snillingur í að skrifa áhrifarík
hljómsveitarverk.
Békmenntir
Sigurjón Björnsson
Gestur. íslenskur fróðleikur
gamall og nýr. III. bindi. Gils
Guðmundsson safnaði efninu.
Iðunn. Reykjavík 1986. 234 bls.
Þá er kominn Gestur þriðja árið
í röð. Hann flytur í þetta sinn tutt-
ugu efnisþætti eftir 17 höfunda.
Eru það ýmist langar ritgerðir,
stuttir frásagnaþættir eða sendi-
bréf. Sjö þáttanna virðast ekki hafa
verið prentaðir áður. Hinir eru tíndir
saman úr ýmsum blöðum og tíma-
ritum, sumum hvetjum all torgæt-
um. '
Nokkrir höfundanna eru kunnir
úr fyrri bindunum tveim, öðru
þeirra eða báðum, s.s. Ólafur Ketils-
son, Klemenz Jónsson og Þórður
Jónsson á Eyrarbakka að ógleymd-
um Gils Guðmundssyni.
Efni er mjög fjölbreytilegt að
vanda. Spannar það yfír alla
nítjándu öldina og fram undir mið-
bik þessarar aldar. Allnokkuð er
hér af snjöilum mannlýsingum að
fínna. Frásagnir eru af minnisverð-
um atburðum og athyglisverðri
lífsreynslu. Vikið er að verkalýðs-
málum snemma á öldinni og sitt
hvað fleira mætti raunar til taka.
Flestir eiga þættimir það sammerkt
að vera prýðilega vel ritaðir og efni
og form eru yfirhöfuð þess eðlis að
þetta efni er vel þess virði að geym-
ast með þessum hætti. Safnandinn
hefur reynst fundvís á feita bita
eins og fyrri daginn. Sjálfur ritar
hann hér prýðisgóða ritgerð um
Gísla Magnússon, Hólabiskup. Fær
sá sómamaður, sem býsna hljótt
hefur verið um og naumast metinn
að verðleikum, þar góð eftirmæli,
jafnframt því sem frásögnin af því
hörmungarástandi sem var á síðari
hluta 18. aldar er eftirminnileg
lesning.
Skemmtileg og hressileg er frá-
sögn Steingríms Sigurðssonar af
ferðalagi hans og Benedikts sýslu-
manns Sveinssonar í Héðinshöfða.
Lýsingin á Benedikt er bráðiifandi.
Grímur M. Helgason á hér liómandi
vel gerða ritgerð um Bjöm Ólafsson
á Hrollaugsstöðum og í Ytrihlíð.
Sú ritgerð hafði áður birst í Árbók
Landsbókasafns íslands (1979).
Tveir prýðisvel ritaðir þættir eru
hér eftir þann merka mann, Svein
prófast Níelsson. þá fannst mér
mikið til um „Reynslusögu" Þuríðar
Guðmundsdóttur frá Bæ. Þættir
þeirra Klemenzar Jónssonar og Ól-
afs Ketilssonar eru og ágætleg
áhugaverðir sem og hinir fyrri.
Fleiri nefni ég ekki af efni þessa
ágæta rits. Það er og líklegt að
skoðanir manna og smekkur sé
mismunandi um það hvers helst
beri að geta.
Að öllu samanlögðu er þetta III.
bindi síst eftirbátur þeirra sem á
undan voru komin. Eiga því Iðunn
og Gils Guðmundsson allan heiður
skilinn fyrir útgáfu- og söfnunar-
starf sitt.
„Raunir
Barböru“
- ný skáldsaga
eftir I.H. Cavling
ENN ein bók danska rithöfund-
arins I.H. Cavling er komin út
hjá Bókaútgáfunni Hildi. Nefnist
hún „Raunir Barböru".
Sagan fjallar um unga og sak-
lausa stúlku, sem kynnist glæsileg-
um og auðugum, ungum manni og
giftist honum.
Þau fara í brúðkaupsferð til
Spánar, en henni fínnst undarlegt,
að hann forðast landa sína og því
fer hana að gruna að eitthvað sé
öðru vísi en vera á. Maður hennar
deyr af slysförum og þá lendir hún
í miklum hörmungum, en með
dyggri aðstoð vina sinna bjargast
hún að lokum frá því öllu.
Bókin er 188 blaðsíður að stærð.
ABEEVS DREtlIB
URSELDUMIH
III