Morgunblaðið - 29.11.1986, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDAGUR 29i NÓVEMBER 1986 13
Þorrablót
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Árni Björnsson: Þorrablót á ís-
landi. Bókaklúbbur Arnar og
Örlygs. Reykjavík 1986.256 bls.
í formálsorðum höfundar er þess
getið að bókinni sé ætlað að vera
e.k. hjálpargagn fyrir forstöðumenn
eða veislustjóra þorrablóta. Hér fá
þeir úr ýmsu að moða, sem hægt
er að notast við í slíkum mannfagn-
aði. Hins vegar má það teljast góð
þjónustulund að leggja á sig að
taka saman allvæna bók af ekki
meira tilefni. Og efunarmál er það
ekki að dijúgmikla fræðslu er að
hafa á þessum hálft þriðja hundrað
blaðsíðum.
Bókin skiptist í fjóra þætti. Er
sá fyrsti, Þorrablót, sýnu stærstur
eða næstum því helmingur bókar-
innar. Þar er um marga hluti rætt:
Þorrablót í heiðni, merkingu og
upprunaskýringar orðsins þorri.
Síðan er vikið að þorra á síðari öld-
um. Prentaður er hluti þorrakvæða
frá eldri tímum. Alllöngu máli er
varið í að ræða þorravenjur á síðari
hluta 19. aldar, enda er þá hægt
að styðjast við spumingaskrár þjóð-
háttadeildar Þjóðminjasafns ís-
lands. Þá er alllöng greinargerð um
endurvakningu þorrablóta. En sú
endurvakning hófst seint á síðustu
öld. Þorrablót hafa þó einkum orðið
algengur mannfagnaður á síðustu
áratugum.
Annar þáttur bókarinnar nefnist
Þorrablótsvísur. Þar eru birt „26
Þorrablótskvæði frá síðasta þriðj-
ungi 19. aldar, og eru þó hin yngstu
þeirra ort rétt eftir aldamótin".
Nótur til söngs fylgja öllum kvæð-
unum nema einu, „þó að ekki hafi
tekist svo öruggt sé að fínna upp-
hafleg lög að nema tæpum helmingi
kvæðanna". Bókarhöfundur hefur
valdið lög að hinum eftir því sem
hann taldi best henta hveiju sinni.
I þriðja þætti eru sjö þorrakvæði
frá 17., 18. og 19. öld. Einungis
eitt þeirra hefur áður birst á prenti.
Síðasti þáttur nefnist „Formálár
Ragnar Lár ásamt einu verka
sinna.
Ragiiar Lár
sýnir í
MIR salnum
í DAG kl. 16.00 opnar Ragnar
Lár málverkasýningu í MIR saln-
um að Vatnsstig 10 (fyrir neðan
Hverfisgötuna).
Sýningin verður opin virka daga
kl. 15.00-20.00 og helgidaga kl.
14.00-21.00. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 7. desember.
Á sýningunni em 32 verk, olíu-
málverk, vatnslitamyndir og gvass-
myndir málaðar á síðustu þremur
árum.
Ragnar Lár hélt sína fyrstu sýn-
ingu í Ásmundarsal fyrir réttum
30 árum að loknu námi í Handíða-
og myndlistarskólanum. Ragnar
Lár naut handleiðslu Gunnars heit-
ins Gunnarssonar, listmálara, um
margra ára skeið. Hann sýndi síðast
í Reykjavík haustið 1984 í Gallerí
Lækjartorg.
og minni". Ekki eru þetta þó þorra-
blótsformálar, heldur er um að ræða
eins konar „staðlaðar tækifæris-
ræður“, sem fluttar voru í veislum
af ýmsu öðru tilefni, t.a.m. brúð-
kaupsveislum, fyrr á öldum.
Höftmdur hefur talið að þær gætu
hentað á þorrablótum með smá-
breytingum, sem hann hefur gert.
Mjög ítarleg tilvísanaskrá er að
loknum texta. Sérstakar skrár eru
um persónunöfn, staðanöfn, valin
atriðisorð. Myndaskrá er þar einnig.
Og á síðustu blaðsíðu er efnisút-
dráttur ritsins á þýsku.
Allmikið myndefni prýðir bókina.
Þar eru myndir af mönnum og stöð-
um, myndir frá þorrablótum,
Árni Björnsson
heilmikið af þorrablótsauglýsing-
um, svo og nokkur íslandskort, þar
sem sýnd er dreifíng þorrasiðvenja
samkvæmt svörum við spuminga-
skrám þjóðháttadeildar. Þá eru
allmargar skemmtilegar teikningar
í bókinni.
Af framangreindu má þannig
glöggt merkja að mikil vinna hefur
verið lögð í að gera þessa bók sem
best úr garði. Mikill sægur heimilda
hefur verið kannaður og sjálfstæð
rannsókn hefur verið gerð. Hún ber
því vissulega á sér yfírbragð
vísindarits. En einhvem veginn er
hún samt sem áður eins og klofvega
á milli alþýðlegs fræðslu- og
skemmtirits og strangvísindalegs
fræðirits. Yfírlýstur tilgangur rits-
ins, eins og frá er skýrt í áður
tilvitnuðum formálsorðum, fylgir
fyrmefnda sjónarmiðinu. Hitt sjón-
armiðið á sjálfsagt rætur að rekja
til þess sem höfundur segir einnig
í formálanum, að „meginkaflinn er
væntanlega ekki nema hluti af
miklu stærra verki“, sem skilja má
að eigi að vera vísindalegt rit.
megingallar bókarinnar em að
mínu viti fólgnir í þessum tvískinn-
ungi. Umfjöllun verður ýmist
undarlega yfírborðskennd eða
óþarflega smásmuguleg. Vitnað er
til geysimikils §ölda rita, en óskyld-
um heimildum er svo oft saftiað
saman í slumpa undir sama tilvís-
unamúmeri, án þess að lesandinn
geti alltaf áttað sig á við hvað tiltek-
in heimild á. Og ekki fæ ég séð að
hvaða gagni „Zusammenfassung"
á þýsku kemur veislustjórum þorra-
blóta, þó að heima eigi í vísindariti.
En burtséð frá þessum formgöll-
um er bókin skemmtilega og fjör-
lega rituð og engum vafa er
undirorpið að margir geta tekið
hana sér í hönd til gagns og
skemmtunar.
IpS
jftfflllll
Ittllliiil
'
líT
**•♦ -
eymlindsson
m rw
1
*r'P
NUFAST
, LFKA
INÝJABÆ
Við höfum opmtð nýja bókaverslun
í Nýja Bce xnð Eiðistovy
Hundruö erlendra og innlendra
tímurita og bóka.
Og auðmtaÖ höfum við allar jólabcekumar.
Gjajavam í miklu úrvali.
Jólakort -jólapappír- Htfóng.
Verið veUwmin í nýju bókaverslunina okkar.
fylgist meö timanum