Morgunblaðið - 29.11.1986, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
áhrifum shítanna í íran, því að í
mörgum þeirra býr fjölmennur
minnihluti shíta en súnnítar fara
með völd. Einnig hefur átt sér stað
trúarvakning í löndum múhameðs-
trúarmanna, svo að þau eru mörg
hver mjög viðkvæm fyrir trúarleg-
um áhrifum. Þannig er nú ástatt
til dæmis í Egyptalandi.
En frá upphafí hafa klerkamir í
íran rekið ódulda útþenslustefnu
og þótt þeir hafi ekki hafið stríðið
við írak, var það yfirlýst markmið
þeirra að koma Hussein, forseta
Iraks, frá völdum. Til að ná því
markmiði hugðust þeir beita trúar-
legum áhrifum sínum. En Hussein
varð fyrri til og síðan hefur geisað
stríð.
Það virðist meðal annars hafa
verið sú staðreynd, að íranir hafi
haldið sínum hlut í stríðinu við ír-
aka, sem olli því, að Bandaríkjafor-
setar og ráðgjafar hans ákváðu að
reyna að koma á samskiptum við
íran. Það var alveg ljóst, að klerka-
veldinu yrði ekki hnekkt.
Khomeini er 86 ára gamall og
orðinn hrumur. Það má því búast
við því, að hann geti horfið af sjón-
arsviðinu hvenær sem er. Það er
ekki ljóst, hver tekur við af honum,
ef það verður nokkur. Það gat því
verið mjög mikilvægt fyrir Vestur-
veldin og Bandaríkin sérstaklega
að hafa eitthvert samband við ráða-
menn innan íransstjómar, sem
gætu hugsanlega reynzt henni hlið-
hollir eða að minnsta kosti ekki eins
andsnúnir og aðrir klerkar. Þeim
hefur verið lýst sem hófsömum.
Fremstur þeirra er Rafsanjani. Yfir-
lýsing Khomeinis á dögunum, þar
sem hann fordæmdi afskipti Svarta
hússins og ávítti þá stjómmálamenn
í Iran, sem kröfðust þess að fá að
vita, hveijir hefðu átt samskipti við
Bandaríkjastjóm, hefur verið skilin
svo, að Khomeini legði blessum sína
yfir viðleitni hófsemdarmannanna.
En hvað sem frekar gerist í
Wsahington er ljóst, að áfram verð-
ur það mikilvægt, að Bandaríkja-
menn hafí áhrif á Persaflóasvæðinu
og að íranir þurfa vopn og vara-
hluti frá Bandaríkjunum.
Ekki ný bóla
En samskiptin við íran eiga sér
lengri sögu. 1982 flúði Sovétmaður
að nafni Vladimir Andreyevich
Kuzichkin frá íran til Bretlands.
Hvemig hann komst út úr Iran, er
ekki ljóst. En hann var yfirmaður
KGB í íran og færði brezku leyni-
þjónustunni lista yfir alla njósnara
Sovétmanna í íran, sem voru marg-
ir meðlimir í íranska kommúnista-
flokknum, Tudeh. Bandaríska
leyniþjónustan yfirheyrði Kuzichkin
einnig. Það var síðan sameiginleg
ákvörðun Breta og Bandaríkja-
manna að afhenda yfirvöldum í íran
lista Kuzichkin. Þau vom ekki sein
á sér og talið er að um 200 njósnar-
ar og samstarfsmenn Sovétmanna
í íran hafí verið teknir af lífi og
18 sendiráðsstarfsmenn vom reknir
frá íran. Starfsemi sovézku leyni-
þjónustunnar var iömuð í landinu.
Þessa atviks var lítið getið á
sínum tíma. En nú er það notað til
að sýna, að samstarf Vesturlanda
og klerkanna í íran er því ekki
nein ný bóla.
íran o g Bandaríkin
eftir Guðmund Heið-
ar Frímannsson
Fátt hefur vakið meira umrót í
alþjóðastjómmálum að undanfömu
en uppljóstranir í Washington, að
stjómvöld þar hafa sent vopn til
íran og þrír gíslar hafa verið leyst-
ir úr haldi. Forsetinn heldur því
fram, að ákvörðun sín um að senda
vopn hafi verið réttlætanleg og sé
á engan hátt mistök og hann hafi
ekki verið að selja vopn í skiptum
fyrir gísla. Á hinn bóginn játar for-
setinn að meðferð fjármuna vegna
vopnasölunnar hafi verið mistök.
Hefur hann gripið til ráðstafana í
samræmi við það. Það má búast
við því, að þetta mál verði mikið
rætt á næstu vikum og um það
verði mjög skiptar skoðanir. Og það
er ljóst, að það hefur dregið úr vin-
sældum forsetans og trúverðugleik.
MacFarlane í Teheran
Fyrir nokkm birtist frásögn af
því í íslömsku blaði í Beirút, að
fyrmm öryggismálaráðgjafí Reag-
ans Bandaríkjaforseta, Robert
MacFarlane, hefði verið tekinn fast-
ur á flugvellinum í Teheran þar sem
hann var með falsað vegabréf og
klæddur eins og vélamaður. í frá-
sögninni var sagt, að MacFarlane
hefði verið með tertu, áritaða Biblíu
af forsetanum og skilaboð til Khom-
einis. MacFarlane var umsvifalaust
vísað úr landi og með fylgdu yfirlýs-
ingar um djöfulskap Bandaríkja-
manna og Svarta hússins, eins og
opinber yfirvöld í íran kalla Hvíta
húsið.
Það er alveg ljóst nú, að MacFar-
lane fór til Iran, hvað sem hann
hafði með sér í farangrinum. Þessi
för hans var lokaþáttur í viðskiptum
Bandaríkjastjómar og klerkaveldis-
ins í íran, sem átt höfðu sér stað
í meira en hálft ár. Á þeim tíma
sendu Bandaríkjamenn vemlegt
magn af vopnum til írans, eldflaug-
um gegn skriðdrekum, varahlutum
I F-5-omstuþotur flughersins í íran
og fleira. Allar þær vopnasendingar
fóm í gegnum milliliði í ísrael, á
Spáni, í Brasilíu og fleiri löndum.
Það var síðan hugmynd MacFarlan-
es, að kominn væri tími til að sýna
yfirvöldum í íran, að Bandaríkja-
stjóm væri full alvara með þessum
viðskiptum og senda vopn milliliða-
laust til Teheran. En þá fór allt úr
böndunum. Embættismaður í því
ráðuneyti, sem á að sjá um út-
breiðslu hinnar íslömsku byltingar,
tók til sinna ráða, þegar honum
barst vitneskja um málið og lak því
til blaðsins í Beirút.
Pólitískt sprengiefni
Það þarf engum að koma á
óvart, að þessar upplýsingar hafi
orðið pólitískt sprengiefni I Was-
hington. Mjög fáum var kunnugt
um málið, þótt Schultz, utanríkis-
ráðherra, hafi verið betur kunnugt
um það en hann vildi vera láta í
fyrstu. Nú er ljóst, að hann sat tvo
fundi, þar sem rætt var um málið
í smáatriðum. Menn þurfa heldur
ekki annað en minnast umsátursins
um sendiráð Bandaríkjanna í Teher-
an, þegar klerkastjómin tók völdin,
til að skilja, að Bandaríkjamönnum
er ekki mjög gefið um viðskipti við
hana. Þar geisar stríð milli Iran og
Irak og sljómir vilhallar Banda-
ríkjunum hafa staðið með írak gegn
íran, flestar til að koma í veg fyrir
útbreiðslu hinnar íslömsku bylting-
ar. Að síðustu ber forsetanum að
upplýsa þingið með hæfílegum fyr-
irvara um vopnasendingar til
átakasvæða. Ágreiningur um það,
hvort forsetinn getur skýlt sér á
bak við sérréttindi framkvæmda-
valdsins eða hvort hann hefur brotið
lög, eins og ýmsir demókratar í
þinginu hafa haldið fram.
Eins og við var að búast, hefur
komið í ljós ágreiningur meðal að-
stoðarmanna forsetans. Sumir
starfsmanna Hvíta hússins hafa
reynt að koma sökinni á aðra, aðr-
ir varið forsetann með ráðum og
dáð með þeim rökum til dæmis að
ákvörðun hans hafi sýnt óvenjulega
framsýni. En MacFarlane hefur
sagt, að það hafi verið röng ákvörð-
un að senda vopn til íran. Að öllum
líkindum mun einhver segja af sér
vegna þessa máls, þótt það sé ekki
ljóst ennþá.
En það er tvennt við þetta mál,
sem ástæða er til að vekja athygli
á. í fyrsta lagi mikilvægi íran í
Mið-Austurlöndum. í öðru lagi að
samskiptin við íranstjórn eiga sér
lengri sögu.
Mikilvægi írans
íran er stórt land og liggur á
þeim stað á hnettinum, sem skiptir
hvað mestu máli um þessar mund-
ir. Það á löng landamæri að
Sovétríkjunum og ræður allri norð-
urströnd Persaflóa. Um hann fer
mest af þeirri olíu, sem arabaríkin
flytja út. Það eru Sovétríkin og olí-
an, sem valda því, að íran er mjög
mikilvægt land. Auk þess eru Mið-
Austurlönd einhver viðkvæmasti
bletturinn á jarðarkringlunni og þar
má stöðugt búast við átökum. Keis-
arinn í Iran, meðan hann ríkti, leit
á sig sem máttarstólpa stöðugleik-
ans á þessu svæði og mikilvægasta
hlekkinn í öryggisneti Vesturveld-
anna. í krafti vináttu keisarans
höfðu Bandaríkin mjög mikil áhrif
á þessu svæði, meðan hann ríkti.
Þegar hann féll varð gjörbreyting
á áhrifavaldi Bandaríkjanna á þessu
svæði. Klerkaveldið leit á Banda-
ríkin sem sérstakan útsendara
myrkrahöfðingjans og neitaði að
eiga nokkur samskipti við þau og
hélt starfsmönnum sendiráðs þeirra
í gíslingu svo mánuðum skipti.
Sömuleiðis lýstu klerkamir and-
stöðu við guðleysi kommúnismans
og meðlimir íranska kommúnista-
flokksins voru hnepptir I fangelsi.
Einnig vildu klerkamir flytja út
byltinguna og löndin í kringum þá
em mjög viðkvæm fyrir trúarlegum
_________Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag
V-Húnvetning’a
Sunnudaginn 23. nóvember var
spiluð bæjarkeppni milli Hvamms-
tanga og Skagastrandar. Hvamms-
tangamenn sigruðu með 78 stigum
gegn 42.
0g sl. þriðjudag var eins kvölds
tvfmenningur hjá félaginu. Úrslit
urðu:
Karl Sigurðsson
— Kristján Bjömsson 124
Guðjón Pálsson
— Steingrímur Jónsson 114
Eggert Pálsson
— Flemming Jessen 113
Sigurður ívarsson
— Unnar A. Guðmundsson 113
Eggert Levý
— Sigurður Þorvaldsson 111
Meistarastigaskrá
Bridssambandið minnir á að
meistarastigaskrá 1987 mun koma
út í janúar. Öll félög sem vilja hafa
nýja „stöðu" félaga sinna I þeirri
skrá eru minnt á að senda áunnin
stig inn fyrir næstu helgi (6.-7.
desember). Eftir þann tíma verða
stig ekki tekin til skráningar fyrr
en að vori.
Þau svæðasambönd sem enn
liggja með stig fyrir svæðamót I
haust (eða síðasta vor) eru eindreg-
ið beðin um að gera skil hið fyrsta.
Með stigunum fylgi silfurstiga-
greiðsla, en gjalddagi félaganna
innan BSÍ, er ekki fyrr en 15. jan-
úar ’87.
Bridssamband íslands minnir enn
á ný á, að það em hagsmunir spilar-
anna sem eru I húfi fyrir félögin.
Láti eitthvert félag undir höfuð
leggjast að senda inn stig er það
alfarið á þeirra ábyrgð.
Eins og fyrr sagði kemur meist-
arastigaskráin út I janúar 1987 og
verður henni dreift til allra félag-
anna, að venju. Skráin verður I líku
formi og 1986, með tölulegum upp-
lýsingum og öðrum þeim fróðleik
sem bridsáhugafólk hefur áhuga
á. Skránni er dreift frítt.
Hreyfill — Bæjarleiðir
Nú er aðeins einni umferð ólokið
í tvímenningskeppni bílstjóranna en
spilað er I tveimur 14 para riðlum.
Staðan:
Kristinn Sölvason
— Stefán Gunnarsson 727
Ámi Halldórsson
— Þorsteinn Sigurðsson 706
Cyms Hjartarson
— Vignir Aðalsteinsson 687
Jón Sigtryggsson
— Skafti Bjömsson 685
Úrslit í A-riðli sl. mánudag:
Kristinn Sölvason
— Stefán Gunnarsson 205
Ámi Halldórsson
— Þorsteinn Sigurðsson 188
Úrslit I B-riðli:
Bemharð Linn
— Anton Guðjónsson 182
Gunnar Oddsson
— Páll Vilhjálmsson 179
Síðasta umferðin verður spiluð á
mánudaginn kemur í Hreyfilshús-
inu kl. 19.30.
Bridsdeild
Rangæingafélagsins
Staðan I sveitakeppninni eftir 3
umferðir:
Gunnar Helgason 202
Sigurleifur Guðjónsson 180
Loftur Pétursson 172
Lilja Halldórsdóttir 168
Gunnar Guðmundsson 160
Næsta umferð verður spiluð 3.
desember nk. I Armúla 40.
Bridsdeild Húnvetn-
ingafélagsins
Fjómm kvöldum af fimm er lokið
í hraðsveitakeppninni og er hörku-
keppni um efsta sætið.
Staðan:
Sigrún Straumland 2374
Halldóra Kolka 2351
Guðni Skúlason 2333
Kári Siguijónsson 2329
Cyrus Hjartarson 2309
Hæstu skor fengu eftirtaldar
sveitir á síðasta spilakvöldi:
Sigrún Straumland 661
Lovísa Eyþórsdóttir 645
Bjöm Ámason 629
Spilað er í Félagsheimili Hún-
vetningafélagsins í Skeifunni á
miðvikudagskvöldum kl. 19.30.