Morgunblaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
Þetta er ein frseg'asta Ijósmynd kappaksturssögunnar. Louis Renault ásamt vélstjóra
sínum í París/Madrid-keppninni 1903. Bíllinn er svipaður þeim sem hann ók til Vínar-
borgar áríð áður. Bróðir hans, Marcel, var á eftir Louis þegar þessi mynd var tekin,
hann fór of geyst og velti bíl sinum og lést. Louis hætti þátttöku þegar er hann frétti
um slysið, yfirvöld gengu þó lengra og bönnuðu áframhald keppninnar: 10 manns
höfðu látið lifið og fjöldi slasast, á fyrsta degi. Þar með lauk hinni miklu aksturskeppni
á milli stórborga Evrópu og við tók keppni á lokuðum svæðum.
Frakkneskur
og fúm í tauinu
__________Bílar
Þórhallur Jósepsson
Frönsk bUasmiði stendur á
gömlum merg. Enn í dag eru
gerðir bílar með sömu nöfnum
og voru á þeim fyrír aldamótin
síðustu, þ.e. Peugeot og Renault.
Allt frá þeim tima hafa bílar
þessara verksmiðja boríð nöfn
frumkvöðlanna sem voru í hópi
hinna fyrstu brautryðjenda
bílasmíði i heiminum, i þeim hópi
voru m.a. Benz, Daimler, Ford,
Olds og Austin.
Hér skulum við víkja athyglinni
að Renault um stund. Eitt sinn
heyrði ég fróðan mann segja í út-
varpið, að Renault væri að uppruna
sama nafn og hið íslenska Rögn-
valdur og kemur þá óðara upp í
hugann jarlsnafnbót. Renault 21
er bíllinn sem nú verður skoðaður
og víst er hann nægilega ættstór í
samfélagi bílanna til að verðskulda
jarlstign, ef litið er til sögu Ren-
ault-bíla frá upphafi, en í nútíman-
um er orðspor forfeðranna eitt og
sér ekki nægilegt veganesti. Til að
öðlast aðalstign í augum kaupend-
anna verða bflamir sjálfír að sanna
ágæti ef nafnbætur eiga að vinnast.
Renault-bræður
Louis Renault fítlaði við bflasmíði
á síðasta áratug nítjándu aldarinn-
ar, með dyggri aðstoð bræðra sinna,
Marcels og Femands, og tókst að
gera nothæfa vagna undir Daiml-
er-vélar. 1899 tóku þeir fyrst þátt
í keppni, í þá daga vom keppnimar
einskonar þeysisprettrallý á milli
einhverra stórborga í Frakklandi.
Tveimur ámm eftir fyrstu keppnina
var heilt lið Renault-bfla í keppn-
inni París/Bordeaux og ári síðar
vannst fyrsti sigurinn. Það var í
stórkostlegustu keppninni til þess
tíma: París/Vínarborg. Leiðin var
löng og fádæma erfíð, yfír Alpana,
sem vom yfírferðar nokkumveginn
eins og þeir höfðu verið öldum fyrr,
er Rómverjar þrömmuðu þar yfir
með hersveitir sínar. Keppinautam-
ir vom yfírleitt helmingi öflugri og
mun stærri. En Louis treysti á að
þungir bflar andstæðinganna stæð-
ust litlum og léttum 35 hestafla
Renault-bflunum ekki snúning á
erfíðum Alpavegunum og þar
reyndist hann sannarlega sannspár.
Hann kom sjálfur svo langt á undan
hinum í mark, að móttökunefndin
var ekki tilbúin og hann átti fullt
í fangi með að sannfæra mannskap-
inn um að hann væri að koma frá
París og væri þar með sigurvegari
keppninnar!
Þessi keppni reyndist vera gífur-
lega öflug lyftistöng fyrir bflasmíði
í Evrópu. Þama hafði verið sýnt
fram á að bflamir komust alla þessa
erfíðu leið, þeir vom fljótari en jám-
brautarlestimar og léttbyggðu
bflamir dugðu betur en þeir stóm
og þungu. Menn geta svo ímyndað
sér hvað sigurinn hafði í för með
sér fyrir framleiðslu Renault-
bræðra, líklega er í þessum atburði
að fínna skýringuna á því að enn
í dag em smíðaðir bílar með nafni
þeirra bræðra og er ekki neinn bil-
bug að fínna í þeim herbúðum,
nýjar og fullkomnar gerðir líta
dagsins ljós. Hér emm við þá kom-
in aftur að þeirri nýjustu: Renault
21 og sjáum nú hvemig hann stend-
ur sig í reynsluakstri.
Frábær vél
Þessi bfll, sem reyndur var, er
af gerðinni RX og er með öflugustu
vélinni. Hún er 1995 sm8 og 120
hestöfl, staðsett langsum í bflnum.
Það er óvanalegt í framdrifsbfl,
þótt ekki sé það einsdæmi. Þessi
vél er með beinni innspýtingu og
rafeindastýringu á henni og kveikj-
unni. Stýringin tiyggir ömgga
gangsetningu við allar aðstæður og
passar uppá að vélin gangi hæfileg-
an hægagang. Aflið er fímagott,
mun betra en búast má við, þegar
ekið er í bfl sem ekki er gefínn út
fyrir að vera neitt meira en þokka-
lega vel búinn fjölskylduvagn. Eg
varð ekki var við að henni yrði afls
vant fyrr en snúningshraðamælir-
inn var kominn niður undir 1,500
snúninga í fjórða gír og eldsnöggt,
þó mjúkt, skutlaði hún bflnum af
stað úr kyrrstöðu.
Gírkassinn er fímm gíra og með
óaðfínnanlegum hlutföllum. Það
má finna að skiptinum, að hann er
fremur stirður í fyrsta gírinn, en
að öðm leyti mjög liðugur.
Drifið er að framan eins og áður
greinir og kemur vel út, þyngdar-
dreifíng er góð, bfllinn er í ágætu
jafnvægi í beygjum og gætir ekki
tilhneigingar til að missa annan
hvom endann út úr beygjunni á
góðum vegi. í hálku leitar þó fram-
endinn út í kröppum beygjum.
Fjöðmnin er byggð á sömu
gmndvallarlögmálum og í Renault
5 GT Turbo, sem þykir einstaklega
fímur á því sviði. Reyndar er sama
tölvuforritið notað til að hanna þeta
íjaðrakerfi. MacPherson-gorma-
fjöðrun er að framan, en að aftan
er vindingsfjöðrun. Þetta kerfí virk-
ar, það sýnir sig þegar ekið er um
holótta malarvegina sem gera hvað
þeir geta til að skekkja hvem bíl
og afvegaleiða. Ég gat aldrei fund-
ið að bflnum fípaðist rásfestan,
hvemig sem holumar komu sér
fyrir í veginum! Fjöðmnin er stinn,
þó án þess að gera bflinn hastan,
stærri ójöftiur eins og hvörf eða
hiyggir þvert á veginn gera manni
engan grikk og hraðahindranimar
á götum Reykjavíkur þjóna ekki
tilgangi sínum þegar Renault 21
er á ferð, nema þá af því að öku-
maðurinn taki sérstaklega tillit til
þeirra!
Hemlamir em veikur blettur á
Renauit 21. Ástigið er stíft nokkuð
og erfítt að stjóma því af ná-
kvæmni, a.m.k. þarf tíma til að
venjast því. Diskar em að framan
Morgunblaðið/Einar Falur
Mælaborðið er einfalt og skýrt, vel sýnilegt.
Morgunlaðið/Einar Falur
Nýjasta tíska í baráttunni við loftmótstöðuna og
vindhvininn. Framrúðan er límd í karminn og listar
eru því mjög fyrirferðarlitlir, frágangur hurða og
hliðarglugga miðar að sama marki sem og lögun
spegils og hurðahúnanna.
Renault 21 RX. Rúmgóður og aflmikill alhliða fjölskyldubOl.
Morgunblaðið/Einar Falur
og em þeir með kæliraufum, að
aftan em skálamar enn og þykir
mér illt að þar skuli ekki ennþá
vera stigið skrefið ti' fulls jrfir í
diskahemla, skálamar em það eina
í þessum bfl sem ekki uppfyllir nýj-
ustu kröfur um öryggi, sem bfll í
þessum stærðar- og verðflokki á
að gera.
Stýrið er tannstangarstýri og án
hjálparafis. Það leiðir af sér að snúa
þarf 4,5 hringi borð í borð og getur
því orðið starfsamt á stýrinu í snún-
ingunum innanbæjar. Ekki er það
þó til vandræða, stórátök þarf eng-
in og í akstri er stýrið létt og
nákvæmt. Undirstýring er lítils-
háttar, ýkist e.t.v. nokkuð vegna
hinna mörgu snúninga. Aflstýri er
fáanlegt og em þá 3,2 snún. borð
í borð.
Vel upplýstur
Renault 21 er með öllum venju-
legum ljósabúnaði sem núorðið
tíðkast í bflum og að auki er RX-
gerðin með þokuljós að framan, þau
em staðsett í vindkljúfnum undir
stuðaranum og virka mjög vél sem
nærljós. Að innanverðu em tvenn
ljós, þ.e. eitt sem lýsir upp innrým-
ið og kviknar við hurðaopnun (allra
hurða) og síðan er hreyfanlegt les-
ljós.
Belti em í öllum sætum og eink-
ar auðveld í notkun.
Útsýnið er gott, enda gluggaflöt-
ur stór. Innspegillinn skyggir að
vísu á fyrir stærri ökumönnum.
Aðeins er einn útispegill og er það
galli. Hann er stillanlegur innanfrá.
Þurrkumar em þriggja hraða og
hafa þann leiða ókost, að vera há-
værar og taka ekki yfír allan
rúðuflötinn, þ.e. of stórt svæði verð-
ur eftir vinstra megin við þær og
ofan við.
Handbremsan er létt og óað-
fínnanleg.
Stjómtæki
Stýrishjólið ber Renault-svip og
er þægilegt í alla staði og veldur
ekki þreytu við langvarandi akstur.
Rofar em aðgengilegir og ekki
hætta á mistökum við notkun
þeirra, en heldur skýtur skökku við
að sjá gömlu sleðatakkana fyrir
miðstöðvarstillingamar. Mælaborð-
ið er einfalt og smekklegt og vel
sýnilegt allt sem þar er að sjá.
Aðvömnarljós em skýr og fer ekki
á miili mála við hveiju er varað.
Þægindin í besta lagi
Geta sæti verið aðlaðandi? Víst
er svo! A.m.k. em sætin í Renault
21 RX aðlaðandi og lofa því að
seint verði sá tvisvar feginn sem í
þau sest! Þau halda vel við hrygg-
inn og sleppa manni ekki lausum í
beygjunum, en gætu kannski verið
full þröng breiðvöxnustu mönnum.
Rými er afbragðsgott, bæði
frammí og afturí og sérlega þægi-
legt að komast inn og út aftur. Til
að halda loftinu heitu og hreinu er
öflug miðstöð og blæs hún vei um
allt framrýmið sem og upp á rúð-
umar, en ekki er stokkur fyrir
blástur afturí í þessari gerð.
Hljóðeinangrunin hefur tekist
bærilega, en þó er nokkuð veghljóð
á grófum vegum og steinkast mal-
arveganna smellur í hjólaskálunum
með allnokkmm glymjanda. Það
ætti að vera hægt að laga með
aukalagi af þykku ryðvamarefni.
Vindhljóð er nánast ekkert, enda
er bfllinn hannaður með það í huga
að kljúfa loftið á átakalítinn og
hljóðlátan hátt. T.d. em bæði fram-
og afturrúður límdar í karmana,
það bæði minnkar loftmótstöðuna
Morgunblaðið/Einar Falur
Þannig er farangursgeymslan I Renault 21, alklædd og aðgengileg
til hleðslu eða tæmingar. Vel nýtt rými.