Morgunblaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
Fjármálaráðherra:
Aukin valddreifing á vinnumarkaði
dregur úr sveiflum í efnahagslífinu
ÞORSTEINN Pálsson fjármála-
ráðherra, telur tímabært að
stefna að meiri valddreifingu á
vinnumarkaðinum og draga úr
miðstýringu við samningsgerð.
Með þeim hætti telur hann að
koma megi í veg fyrir þau miklu
sveifluáhrif á efnahagslífið sem
óhjákvæmilega verði þegar öll
launþegafélög í landinu geri
samninga á einum og sama tíma.
Þorsteinn Pálsson sagði að það hlyti
að hafa veruleg áhrif á framvindu
íslensks efnahagslífs hvernig kjara-
samningar þróuðust á næstu árum.
„Við höfum búið við heildaruppgjör
á vinnumarkaðinum lengi," sagði
Þorsteinn. „Ég er þeirrar skoðunar
að sú aðferð hafi að vísu borið mjög
góðan árangur í vetur sem leið og
að þær pólitísku aðstæður kunni
að vera í þjóðfélaginu alltaf öðru
hvoru að hjá slíku verði ekki kom-
ist. Mín skoðun er eigi að síður sú
að það væri mjög æskilegt að dreifa
valdinu meir í þessu efni og draga
úr miðstýringu við samningsgerð
um kaup og kjör, m.a. í þeim til-
gangi að koma í veg fyrir þær miklu
sveiflur sem óhjákvæmilega verða
þegar öll launþegafélög í landinu
gera samninga á einum og sama
tíma. Það bendir margt til þess að
með því að dreifa samningum þá
sé unnt að framkalla þær breyting-
ar sem verða á launum með jafnari
hætti, þannig að þær hafí ekki sömu
sveifluáhrif á efnahagslífíð. Enn-
fremur hygg ég að með því móti
muni þau fyrirtæki sem raunveru-
lega hafa mest áhrif á þróun
kjaramálanna, ýta meira á eftir
þeim fyrirtækjum sem lakar standa
og minni framleiðni hafa — í sumum
tilfellum ýta þeim út af markaðinum
en í öðrum tilfellum knýja þau til
að standa sig betur og ná þannig
áfram í samkeppninni um vinnuaf-
lið.“
Sauðárkrókur:
Viðræður við landeigendur og
sýslunefnd um flugvailarmálið
Sauðárkróki.
Á FUNDI bæjarstjómar Sauðár-
króks sl. mánudag urðu miklar
umræður um flugvallarmál, en eins
og kunnugt er liggur fýrir stjóm-
völdum að taka ákvörðun um
staðsetningu varaflugvallar fyrir
millilandaflug. Mun það vera álit
flestra er til þekkja, að Sauðárkrók-
ur sé vænlegasti kosturinn í þeim
efnum. í umræður um þetta mál
undanfarið hafa fléttast vangavelt-
ur um áhuga Atlantshafsbanda-
lagsins á stækkun Sauðárkróks-
flugvallar og því jafnvel haldið
fram, að það sé reiðubúið til að §ár-
magna framkvæmdir að einhveiju
eða öllu leyti. Einkum virðast Al-
þýðubandalagsmenn sitja uppi með
þá vitneskju, enda gerðu þeir þetta
að kosningamáli í bæjarstjómar-
kosningunum í vor, en höfðu þó
ekki erindi sem erfiði. Á nýafstöðnu
kirkjuþingi höfðu sumir fulltrúar
þungar áhyggjur af auknum hem-
aðarumsvifum, sem peningar frá
NATO myndu valda. Er illt til þess
að vita, ef gerð varaflugvallar við
Sauðárkrók eikur kvíða kirkjunnar
manna, æmar eru peningaáhyggjur
þeirra fyrir.
Fyrir áðumefndum fundi bæjar-
stjómar lá svohljóðandi samþykkt
bæjarráðs:
„Bæjarráð samþykkir að óska
eftir viðræðum við landeigendur á
Sjávarborg um flugvallarmálið.
Einnig samþykkti bæjarráð að óska
eftir samvinnu í þessu máli við
sýslunefnd Skagafjarðar." í um-
ræðum á fundinum óskuðu þrír
bæjarfulltrúar sérstakrar bókunar.
Bjöm Sigurbjömsson fulltrúi Al-
þýðuflokksins lagði fram svofellda
bókun:
„Þar sem Alþýðuflokkurinn átti
ekki fulltrúa í síðustu bæjarstjóm
tel ég undirritaður rétt að fram
komi:
Alþýðuflokkurinn á Sauðárkróki
lýsir því yfír að vinna beri að því
að hér á Sauðárkróki verði byggður
alþjóðlegur varaflugvöllur og mun
gera sitt til þess að hugmyndin
geti orðið að veruleika. — Hvet ég
alla bæjarfulltrúa til að vinna sam-
an að þessu hagsmunamáli bæjarins
hér eftir sem hingað til.“
Hörður Ingimarsson fulltrúi
óháðra óskaði eftirfarandi bókunar:
„Vegna fréttar í Þjóðviljanum 13.
nóv. sl. sem ber yfírskriftina „Málið
þagað í hel“ og byggir á viðtali við
Ónnu Kristínu Gunnarsdóttur vil
ég undirritaður taka eftirfarandi
fram:
Algjör samstaða hefur verið inn-
an bæjarstjómar um fyrirhugaða
uppbyggingu Sauðárkróksflugvall-
ar. Naégir í því sambandi að benda
á samþykkt bæjarráðs frá 8. febr.
1985 og sem staðfest var og samþ.
af öllum bæjarfulltrúum á bæjar-
stjómarfundi 19. febr. 1985 þ.m.t.
fulltrúa Alþýðubandalagsins, Stef-
áni Guðmundssyni. Það hefur því
farið fram mikil og opin umræða
um flugvallarmálið innan bæjar-
stjómar.
Aldrei hefur verið gerð nein til-
raun til þess að þegja þetta mál í
hel á vegum bæjarstjómar. Ég hvet
því fulltrúa Alþýðubandalagsins til
þess að kynna sér gang mála ítar-
lega áður en yfirlýsingar eru settar
fram í fjölmiðlum, sem auðveldlega
geta haft stórskaðleg áhrif á gang
sjálfsagðra framfaramála, sem
flugvallarmálsins.“
Anna Kristín Gunnarsdóttir bæj-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins sagði
að ekki væri að öllu leyti rétt eftir
sér haft í Þjóðviljanum. Hún lagði
fram eftirfarandi bókun:
„Fulltrúi Alþýðubandalagsins í
bæjarstjóm lýsir því yfír að hann
getur haft samstöðu með öðmm
bæjarfulltrúum um að varaflugvöll-
ur við Sauðárkrók sé bænum mikið
hagsmunamál. Hinsvegar lýsir full-
trúi Alþýðubandalagsins yfír mikilli
andstöðu við þær hugmyndir sem
komið hafa fram, að NATO fjár-
magni gerð flugvallarins að hluta
eða öllu.“
Síðan var tillaga bæjarráðs sam-
þykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Verður því ekki annað séð en ein-
hugur ríki um flugvallarmálið og
þess að vænta að það fái farsælan
endi. Kári
Hugmyndir fjármálaráðherra
féllu í misjafnan jarðveg meðal þátt-
takenda í hringborðsumræðum á
spástefnunni. Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, benti t.d. á að
heildarsamflot verkalýðshreyfíng-
arinnar í heildarkjarasamningunum
.fyrr á árinu hefði verið forsenda
þess að sá árangur náðist sem nú
blasir við. Hann sagði hins vegar
að til lengri tíma litið væri hins
vegar sú þróun sem fjármálaráð-
herra lýsti vafalaust æskileg. Undir
þetta sjónarmið tóku fleiri - sem
sagt að eins og nú háttaði væri
þessi valddreifing tæpast tímabær
enda þótt lítill vafi væri á því að
þetta væri það er koma skyldi.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, hélt því einnig fram að
öll teikn bentu til þess að menn
ættu eftir að sjá mun faglegri
verkalýðshreyfíngu en nú væri.
Víglundur Þorsteinsson, formaður
Félags ísl. iðnrekenda, lýsti þeirri
skoðun sinni að núverandi fyrir-
komulag kjarasamninga, þar sem
aðilar vinnumarkaðarins væru m.a.
að semja um röðun einstakra starfs-
manna í launastiga og um starfsald-
urshækkanir, hefði gengið sér til
húðar. Nærtækara væri að aðilar
vinnumarkaðarins semdu einungis
um heildarlaunabreytinguna á
hveijum tíma miðað við ríkjandi
aðstæður í þjóðfélaginu. í framhaldi
af því ættu síðan fyrirtækin og
starfsmenn þeirra að hafa tiltölu-
lega fijálsar hendur um tekjuskipt-
inguna út frá sjónarhóli frammi-
stöðu og afkasta.
Michael S. Voslensky.
Hádegisfundur í dag:
Voslensky
talar um leið-
togafundinn
DR. MICHAEL S. Voslensky,
prófessor í MUnchen, flytur er-
indi á ensku og svarar fyrir-
spurnum á hádegisfundi, sem
Samtök um vestræna samvinnu
(SVS) og Varðberg lialda sameig-
inlega í Átthagasalnum í Hótel
Sögu í dag, 29. nóvember. Salar-
kynni verða opnuð kl. 12.00.
Fundurinn er aðeins opinn fé-
lagsmönnum og gestum þeirra.
Umræðuefni dr. Voslenskys er:
Leiðtogafundurinn í Reykjavík.
1. Hver voru hin raunverulegu
ágreiningsefni?
2. Hin tvö kerfi: Hið opna, banda-
ríska þjóðfélag og hið lokaða,
sovéska þjóðfélag. Er hægt að bera
þau saman? Sé svo, þá hvemig?
Dr. phil. Amór Hannibalsson,
dósent við Háskóla íslands, kjmnir
ræðumann í upphafí fundar.
Annað bindi minninga
Huldu A. Stefánsdóttur
BÓKAÚTGÁFAN Öm og Örlyg-
ur hefur gefið út annað bindi
endurminninga Huldu Á. Stef-
ánsdóttur sem ber undirtitilinn
Æska.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir m.a.: „I þessu bindi minninga
sinna tekur Hulda upp þráðinn þar
sem frá var horfíð í fyrsta bindi og
segir frá æskuárum sínum á fyrsta
ijórðungi aldarinnar — frá því að
hún fluttist frá Möðruvöllum til
Akureyrar og þangað til hún kvaddi
Eyjafjörð tuttugu og sex ára gömul.
Hulda kemur víða við eins og að
líkum lætur. Á Akureyri mótast
bæjarbragurinn í byijun aldar af
dugnaði og skapfestu íslensks al-
þýðufólks og erlendri verkkunnáttu
og menningaráhrifum sem þangað
bárust með danskættuðum kaup-
mönnum, konsúlum og, iðnaðar-
mönnum sem settust að á íslandi
og tóku að rækta garðinn sinn í
friðsældinni við Pollinn.
Þar bregður þeim ljóslifandi fyr-
ir, etasráðinu á Oddeyri, Önnunum
með ættamöfnin Schiöth og Step-
hensen, Maríu á Barði og séra
Matthíasi.
Inn í bemskuleiki krakkanna
berst andblær hins ókunna með
ferðamönnum utan úr heimi sem
koma og fara. Gangar Gagnfræða-
skólans bergmála af söng og
æskugleði og skólastúlkan sem þar
á heimili um skeið verður þar kenn-
ari áður en lýkur. Hún kynnir fyrir
okkur jafn geðrík og ólík skáld og
Ólöfu á Hlöðum og Tryggva Svörf-
uð. Hún er „hestasveinn" í Mý-
vatnsferð og kastar blómum á veg
Friðriks áttunda í Reykjavík 1907.
Við fylgjum henni fram og aftur
um Atlantshaf í skugga heimsstyij-
aldar og inn á heimili dr. Valtýs
Guðmundssonar í Kaupmannahöfti,
dveljumst með henni sumarlangt á
kvennaskóla í Vodingborg og verð-
um þátttakendur í lífí og örlögum
íslenskra ungmeyjar, lista- og
menntamanna á Hafnarslóð.
Loks rifjar Hulda upp gömul
kynni af æskuvini sínum, Davíð
Stefánssyni frá Fagraskógi, og
bregður upp myndum frá samveru-
stundum þeirra uns leiðir skiljast.
í bókinni eru rúmlega 80 gamlar
ljósmyndir sem varpa lífí og lit á
horfinn tíma og umhverfi þeirrar
ævi- og menningarsögu sem þar
er sögð.“
Minningar Huldu Á. Stefáns-
dóttur eru settar og prentaðar í
Prentstofu G. Benediktssonar og
bundnar hjá Amarfelli hf. Kápu
hannaði Sigurþór Jakobsson en
kápumyndin er af málverki af
Huldu frá Hafnarárunum sem
Kristín Jónsdóttir málaði.
Hans Christiansen listmálari
IV
Morgunblaðið/Einar Falur
Málverkasýn-
ing í Asmundarsal
HANS Christiansen listmálari
opnar málverkasýningu í Ás-
mundarsal við Freyjugötu í dag
laugardaginn 30. nóvember.
Á sýningunni eru um 30 myndir,
mest vatnslitamyndir en einnig
nokkrar pastel myndir auk teikn-
inga. Sýningin er opin milli kl. 14
og 20 dag hvem. Henni lýkur 7.
desember.
Þetta er ellefta sýning Hans sem
sýnt hefur víða um land á undanf-
ömum ám, þó mest í Reykjavík.
Framan af var málaralistin ein-
vörðungu áhugamál hans en á
síðustu tveim til þrem árum hefur
hann sinnt henni nær eingöngu.