Morgunblaðið - 29.11.1986, Page 55
55
hafa skoðanir, og standa við þær.
Hvað skyldi annars hafa verið gert
við stjómarskrárákvæðið um það,
að þingmenn skuli einungis vera
bundnir af samvizku sinni?
Virðist þessi óánægja einkum
einkenna skoðanir unga fólksins,
sem hefur eðlislæga skömm æsk-
unnar á skoðanakúgun og kerfis-
mennsku. Unga fólkið er nefnilega
að einhveiju leyti vaxið frá stjóm-
málaflokkunum, eins og Ellert
Schram lýsti því svo eftirminnilega
í Dagblaðinu nú í haust. Það þarf
ekkert sérstaklega á pólitíkusum
að halda, sem halda að frelsið og
lýðræðið sé afstætt og jafnvel mál-
efni miðstjómar fremur en lands-
fundar flokksins. Og flokkur, eins
og Sjálfstæðisflokkurinn, sem nú
berst helst fyrir uppsetningu stór-
kostlegasta niðurgreiðslukerfí
Islandssögunnar, í sambandi við
virðisaukaskattsfmmvarpið, hann
höfðar tæplega til ungs fólks með
nútímahugsunarhátt. Enda virðist
flokkurinn vera tiltölulega einangr-
aður í þessari niðurgreiðsludýrkun,
þar sem Framsókn er komin á visst
undanhald í virðisaukaskattsmálinu
í fyrirliggjandi mynd og aðrir flokk-
ar andsnúnir slíkum hugmyndum.
Flokkurinn þarf því ef til vill ekki
lengi að leita til þess að finna skýr-
ingamar á hmninu, ef hann þá
kærir sig um. En svo fer sem fer.
Margir telja líka heldur til minnk-
unar fyrir stærsta flokks landsins,
að gefast upp á því í stómm kjör-
dæmum, að velja frambjóðendur
fyrir opnum tjöldum. En láta tiltölu-
lega litlum klíkum, sem fljótt verða
kallaðar ljótar, það verk eftir, með-
an helstu flokkar andstæðinganna
ganga beint fram fyrir kjósendur,
að Alþýðubandalaginu frátöldu að
sjálfsögðu.
Stöku þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins hefur látið heyra í sér
varðandi skattamál, þó nú sé orðið
minna um bæði málflutning og
hlustun. Enda á bara víst að heyr-
ast ein rödd í hveiju máli út á við,
samkvæmt því sem mér skildist á
formanni. Þó er hér um mikið
grundvallaratriði fyrir Island og
Islendinga að ræða. í Bandaríkjun-
um hefur skattakerfið verið einfald-
að og skattar lækkaðir. Margaret
Thatcher hefur lýst áhyggjum
sínum vegna þess að lægsti skattur
í Bretlandi sé orðinn hærri en hæsti
skattur í Bandaríkjunum. Við ís-
lendingar höfum nýverið rekið
okkur á það, að vöruverð er allt að
þrisvar sinnum lægra heima hjá
Thatcher en hjá okkur og mörg
okkar þekkja verðlag í Banda-
ríkjunum, sem er jafnvel enn lægra
en í Glasgow.
Verða Islendingar ekki að fara
að gera áér ljóst, að þeir geta ekki
haldið úti einhverri háskatta- og
Aðventu-
samkoma
Digranes-
safnaðar
í Biblíunni er talað um bók, skrif-
aða utan og innan. Bækur Biblíu-
tímans voru bókroðlar. Það, sem
utan á stóð, var augljóst, en til
þess að sjá letrið á innra borði varð
að opna bókina.
Aðventunni er eigi alls kostar
ólíkt farið. Hún á sitt ytra borð er
blasir við öllum, en það hið innra,
sem hún bendir á og býr yfír, er
einatt ekki jafnáberandi.
Með aðventuhát
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
hátollaeyju mitt í samfélagi þjóð-
anna, þegar aðrar þjóðir fara í
öfuga átt?
Það er kannski tímanna tákn,
að kröfur um úrbætur á skatta-
kerfí landsmanna skuli nú koma frá
Guðmundi J. Guðmundssyni og fé-
lögum hans, fremur en fijáls-
hyggjumönnum eins og Hannesi
Hólmsteini og Sjálfstæðisflokknum.
En hvaðan sem það kemur, þá er
það góðs viti, að íslendingar séu
farnir að gera sér þetta ljóst eins
og Thatcher. Fólk framtíðarinnar
mun ekki kaupa stjómmálaþjónustu
á hvaða verði sem er. Verði hún
of dýr einhvers staðar, þá flytur
það sig um set, bæði fólk, fjármagn
og fyrirtæki.
Stærsta málið
Stærsta mál þjóðarinnar er og
verður frelsi hennar og lýðræði.
Umræður um lýðræðið hafa legið
niðri nú um nokkra hríð. Einhveija
áfangaleiðréttiingu á að gera nú í
næstu kosningum á hinni íslenzku
„apartheid“-stefnu, sem felst í því
að atkvæði manna eru misþung
eftir því hvað þeir búa á landinu.
En hér er um miklu meira stórmál
að ræða en menn vilja muna eftir
daglega.
Eitt lítið dæmi um háska þess,
að svokölluð byggðasjónarmið ráði
ferðinni í atvinnumálum, er þróun
mála í viðræðunum við Rio Tinto
Zinc um kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfírði. En það hefur verið
sameiginlegt baráttumál þúsundat-
kvæðaþingmannsins Hjörleifs
Guttormssonar og sautjánhundruð-
atkvæðaþingmannsins Sverris
Hermannssonar, (Geir féll með
þijúþúsund), að koma þessari verk-
smiðju á legg fyrir atkvæðin sín.
Til viðbótar fjárfestingunni í okkar
hlut í sjálfri fabríkkunni upp á ein
tvö Útvegsbankafallítt eigum við
eftir að byggja raflínu þangað aust-
ur fyrir ein 3 slík fallít, höfn fyrir
eitt stykki, vatnsveitu og þorp fyrir
guð má vita hvað o.s.frv. o.s.frv.
(Mælieiningin Útvegsbankafallítt =
600—800 milljónir króna).
Nýlega rakst ég á tölur um það
að heimsmarkaðurinn væri um
480.000 tonn af þessari vöru, kísil-
málmi, en nvuerandi framleiðslu-
geta um 622.000, sem árið 1991
verður orðin 812.000 tonn, að því
tilskyldu að Islendingar byggi enga
bræðslu. En þá verði heimseftir-
spumin orðin 570.000 tonn. (Metal
Bulletin sept. 1986). Mér fínnst það
persónulega heldur glæfraleg
stefna að gera íslendinga að 40%
hluthöfum í þvílíku fyrirtæki, haf-
andi reynslu af jámblendifyrirtæk-
inu á Grundartanga og fjáraustrin-
um í það fyrir augunum. Ef átt
hefði hins vegar að byggja þessa
bræðslu með arðsemina eina fyrir
augum, þá em bæði raflína og höfn
fyrir hendi á Grundartanga, auk
fleiri þæginda, sem hefði sparað
áðumefndar stærðir í fjárfesting-
unni. En á slíkt má ekki minnast
þegar hagsmunir landsbyggðar-
þingmannanna em annars vegar.
Lýsa ekki gjaldþrot grasköggla-
verksmiðjunnar á Vallhólmi og
þörungaverksmiðjunnar á Reyk-
hólum, sjálf Kröfluvirkjun og
Byggðalínan, því vel fyrir okkur
hversu hættulegt það er, að sumir
hafí meiri rétt til fjárins en aðrir,
sem leggja það fram að jöfnu?
Virkisvetur
Framundan er virkisvetur í póli-
tíkinni. Ahrifamestu stjómmála-
menn okkar ætla að virkja
virðisaukaskattinn til eflingar
sínum glæstu áformum um aukna
búsæld ríkisins. Margir hafa illan
bifur á áformunum um virðisauka-
skatt og telja, að almenningur muni
sitja uppi með stóraukna skattbyrði
áður en sá skattur er allur. Enda
skulu menn athuga, að sjálf skatt-
skyldan verður bundin í lög en
bætumar, sem flutningsmenn lofa
gjaldendum með niðurgreiðslunum,
em þokukenndar og ótímasettar,
þannig að þeim má hvenær sem er
hætta. Enda viðurkenna þeir að-
spurðir að úr niðurgreiðslunum
verði fjótlega dregið. Þeir sem trúa
því að þeir munu lækka skattpró-
sentuna rétti upp hönd! Þeir sem
trúa því, að 25% hækkun á matvæl-
um og á allri vinnu iðnaðarmanna
við húsbyggingar sé ekki verð-
bólguhvetjandi, gjöri svo vel að
gefa merki!
Astimar á stjómarheimilinu fara
nú hægt kólnandi. Um margt hefur
vel til tekist, en annað miður. Samn-
ingamál hafa þróast allvel á
vinnumarkaði og á stjómin lof skil-
ið fyrir að samþykkja það sem þar
var um samið. Ifyllsta ástæða er til
að vona að hinir hófsamari menn
ráði ferðinni á samningamálunum
framundan og þannig megi takast
betur en oft áður að tryggja kjör
hinna verr settu, sem ekki hafa
notið góðæris og launskriðs til jafns
við aðra.
Argæska hefur verið til lands og
sjávar. Og væntanlega fyrir mikla
stjómvizku okkar leiðtoga lækkaði
olían hjá aröbum og færði okkur
búhnykk, sem nam meir en vöxtun-
um af öllum erlendum skuldum
okkar. Þannig gátu leiðtogar vorir
haldið úti glæsilegri fastgengis-
stefnu og lamið á verðbólgunni.
Allur almenningur hefur nú saman-
burð á verðbólgu nú og á fyrri
tilverustigum. Samtök launafólks
munu vonandi móta stefnu sína
með tilliti til þess.
Við höfum fyllstu^ ástæðu til að
vera bjartsýn þjóð, íslendingar, ef
við bemm gæfu til þess að láta
skynsemina ráða. Þá getum við lag-
fært margt það sem aflaga fer í
dag.
Við skulum því forðast að henda
út mörsiðranu til þess að blekkja
okkur sjálf. Því við emm bæði fyr-
ir utan og innan virkið.
Þá mun virkisveturinn líða og
aftur koma vor.
Höfundur er verkfræðingur og
annar af forstjórum Steypu-
stöðvarinnar hf.
Sýning
/ dag, 29. nóv. kl. 10—16
Gjörið svo vel og lítið inn.
Við sýnum eldhúsinnrétt-
ingar, innihurðir, fata-
skápa, viðarþiljur eða allt
í íbúðina eða húsið. Not-
um eingöngu 1. flokks
hráefni. Vönduð vinna.
Sérsmíðum. Fagmenn
með 20 ára reynslu verða
á staðnum.
Hatíð í Bústaðakirkju
Fyrsti sunnudagur í aðventu hef-
ur á liðnum ámm haft yfir sér hið
rétta svipmót hátíðar í Bústaða-
söfnuði. Upphaflega var tilefnið
einvörðungu nýtt kirkjuár og þau
geðhrif, sem slíkt veldur með ná-
lægð jóla, en síðan bættist það við
til enn aukins hátíðartilefnis, að
Bústaðakirkja var vígð hinn fyrsta
sunnudag í aðventu 1971. Og síðan
hefur mnnið saman í eitt aðventu-
hátíð og afmæli. Næsti sunnudagur
verður hluti þeirrar hefðar, sem
árin hafa mótað. Dagurinn hefst
með bamasamkomu kl. ellefu ár-
degis, en þær hafa leitt kennaramir
Elín Anna Antonsdóttir og Guðrún
Ebba Ólafsdóttir við miklar vin-
sældir og síðan er hátíðarmessa kl.
2 síðdegis. Og eftir messuna býður
Kvenfélag Bústaðasóknar til veizlu
og er ekki að efa það, að þar verða
borð hlaðin hinum lystilegustu
kræsingum, enda hafa konumar
fengið það orð á sig, að betra verði
vart fáanlegt heldur en þeirra fram-
lag. Stjóm kvenfélagsins biður þær
konur, sem gefa kökur og annað
þess háttar, að koma þeim á
sunnudasgmorguninn upp í safnað-
arheimili eftir kl. 10.30.
Um kvöldið er síðan boðið til
hinnar vinsælu aðventusamkomu
og vel til alls vandað eins og vana-
lega. Ber þar fyrst að nefna, að
biskupinn yfir íslandi, herra Pétur
Sigurgeirsson, flytur ræðu kvölds-
ins og kirkjukórinn og níu manna
hljómsveit flytur ýmis verk undir
stjóm organista kirkjunnar, Guðna
Þ. Guðmundssonar. En einsöngvar-
ar verða Ingibjörg Marteinsdóttir,
Einar Örn Einarsson, Eiríkur
Hreinn Helgason og Reynir Guð-
steinsson. Avarp flytur formaður
Bræðrafélags Bústaðakirkju, Jónas
Gunnarsson og samkomunni lýkur
með helgistund, sem presturinn
annast, og kveikt verður á kertun-
um, sem allir fá við kirkjudyr, en
flytja síðan með sér heim eins og
litla kveðju frá kirkju sinni, sem
minnir á tengsl heimilis og kirkju,
sem ekki er sízt vel virði að ræltja
vel á aðventunni. Eins og ævinlega
Aðventusamkoma
Breiðholtssóknar
EINS OG undanfarin ár verður
aðventukvöld Breiðholtssafnað-
ar í hátíðarsal Breiðholtsskóla
fyrsta sunnudag í aðventu, sem
að þessu sinni er á morgun,
sunnudaginn 30. nóvember, og
hefst samkoman kl. 20:30.
Að venju verður fjölbreytt dag-
skrá: Kór Breiðholtskirkju flytur
aðventu- og jólasöngva undir stjóm
Daníels Jónassonar organista,
Ragnheiður Guðmundsdóttir söng-
kona syngur einsöng við undirleik
gítarleikarans Þórarins Sigurbergs-
sonar og bassaleikarans Jóhanns
Georgssonar. Valgerður Helgadótt-
ir les jólafrásögu, Helgi Eliasson
flytur aðventuhugleiðingu og kvöld-
inu lýkur með stuttri helgistund við
kertaljós.
Eru sóknarbúar hvattir til að
hefla jólaundirbúninginn með því
að ijölmenna við þessa athöfn.
Gísli Jónasson
Innihurð, gerð:
París.
Ein sú vinsælasta í dag
JPinnréttingar
Skcifan 7- Reykjavik - Simar 83913 -31113
eru allir hjartanlega velkomnir í
Bústaðakirkju á meðan húsrúm
leyfír.
Ólafur Skúlason
Masötiblad á hverjum degi!
PRÓFKJÖR
ASTU RAGNHEÐI
í AnnaðSætð
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir er
landsþekkt fyrir farsœl
störf að fjölmiðlun og
ferðamólum,
Fylkjum okkur um Ástu
Ragnheiði T 2. sœti í
prófkjöri Framsóknar-
manna í Reykjavík
29.-30. nóvember.
Stuðningsmenn.
FRAMSÓKNARFLOKKSINS