Morgunblaðið - 29.11.1986, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
63
unni — 200 dansara í kjólfötum,
eimreið sem kæmi út um tjaldið í
kvikmyndahúsi o.s.frv. — en Virgin
vildi ekki heyra á það minnst. Þá
stungum við upp á því að fá allt
það fólk sem við höfum kynnst í
gegn um árin til þess að koma sam-
an og láta þau ganga í vitlausa átt
á færibandi, svo það stæði í stað,
en við gáfumst líka upp á þeirri
hugmynd“, segir Suggs.
Að lokum fór svo að aðeins
hljómsveitin sjálf gekk eftir færi-
bandinu og Lee var látinn fljúga
eins og venjulega. „Við urðum að
láta hann fljúga! Hann hefur flogið
öllum hinum myndböndunum. Hon-
um er sama — hann hefur gaman
af því að lifa hátt. Það var í raun
og veru hann sem stökk út úr flug-
vélinni, en hann hefur gert það
áður í góðgerðarskyni, svo að hann
var óhræddur."
Hljómsveitin hefur haft á sér orð
fyrir að klæðast skringilega og svo
er einnig nú. í fyrsta lagi kemur
Carl fram sem skripta og froskur,
en auk þess er öll hljómsveitin
klædd í jakkaföt úr dagblöðum.
I raun var engin sérstök ástæða
fyrir því að Carl var í froskabún-
ingi, fyrir utan það að hann hefur
langað til þess að vera froskur frá
bamæsku", lýgur Suggs alúðlega
og Carl tekur undir þau orð: „Já,
mig langaði alltaf til þess að vera
eins og hinir strákamir í hljómsveit-
inni!“
Dagblaðafötin em þó líklega það
sem mesta athygli vekur. „Reyndar
eru þetta ekki ekta dagblöð", viður-
kennir Carl. „Þetta er sérstakt
plastefni, sem var prentað á og
fötin síðan sérsaumuð úr“.
„Ekki láta hann gabba ykkur“,
varar Suggs við. „Bróðir hans
reyndi að selja þennan fatnað sem
tískuvöru fyrir 14 ámm, en seldi
bara tvenn föt. Barry Manilow
keypti önnur, svo nú er hann að
reyna að koma þeim út eftir að
allir em búnir að gleyma Barry og
fatasmekk hans!“
Hver sem sannleikurinn í málinu
er, er víst að strákamri í Madness
eru ekki búniraðglata kímnigáf-
unni.
Jón Páll er hér með 140 kg hnullung f fanginu. — Barnaleikur!
„Eru þeir
ekki sætir?“
Þessar myndir rákumst við á í erlendu blaði með ofangreindri fyrir-
sögn. Þar var greint frá keppninni pSterkasti maður heims", en hana
sigraði Jón Páll Sigmarsson á dögunum. I meðfylgjandi texta sagði m.a.:
„Hinn mjúkvaxni maður er ekki lengur í tísku. Þeir taki það til sín sem
eiga það. (Orlítil vandamál vegna bjórvambarinnar em að sjálfsögðu allt
annað mál). Hér em menn framtíðarinnar, stórir og stækltir."
Og við tökum undir þau orð.
Kanadamaðurinn Dan Marcovich veltir bilum eins og aðrir naga
neglur.
Hjartans þakkir fyrir heillaskeyti, blóm, gjafir,
bréf og góÖar kveðjur d 85 ára afmœli minu.
Um leiÖ og ég þakka framámönnum, konum
og körlum, stjórn og starfsfólki Slysavarnafé-
lags íslands, leyfi ég mér aÖ vœnta góÖrar
samvinnu um aukna menntun og öryggi
íslensku sjómannastéttarinnar.
Ársxll Jónasson.
Lokað í kvöld
vegna einkasamkvæmis
VEITINGAHÚS
Vagnhöfða 11, Reykjavík. Sími 685090.
Gógópartý
1" músikmyndband Stuðmanna er einhvers-
staðar í vanskilum. Finnandi vinsamlegast
snúi sér sem allra fyrst til Skífunnar, Borg-
artúni 24, sími 29544.
Góðum fundarlaunum heitið.