Morgunblaðið - 29.11.1986, Qupperneq 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
• Bjami Friðriksson
Júdó:
Bjarni
keppir í
Finnlandi
um helgina
BJARNI Friðriksson, júdó-
kappi, verður á meðal kepp-
enda á opna skandinavíska
meistaramótinu f júdó, sem
fram fer í Finnlandi og hefst
á morgun.
Mótið er mun sterkara nú
en oft áður, þar sem margir af
bestu júdómönnum frá Japan,
Sovétríkjunum og Vestur-
Þýskalandi keppa á mótinu.
Keppnin hefst í dag, en Bjarni
keppir á sunnudaginn. Gísli
Þorsteinsson er aðstoðarmað-
ur hans og fóru þeir til Helsingi
í gaer.
Knattspyrna:
Mannheim
kaupir
Dana
VESTUR-ÞÝSKA 1. deildarlið-
ið, Waldhof Mannheim, hefur
keypt danska framherjann Bo
Elvar Jörgensen frá Brönshöj
fyrir 200 þéund mörk, eða um
4 milljónir.
Jörgensen er 23 ára og mun
leika sinn fyrsta leik með Mann-
heim gegn Homburg í dag.
Afmælis-
hátfð ÍA
í TILEFNI 40 ára afmælis
íþróttabandalags Akraness
verður afmælishátíð í iþrótta-
húsinu við Vesturgötu á
morgun og hefst hún klukkan
14.
Dagskráin hefst með ræðu-
höldum, en áður mun lúðra-
sveit leika fyrir framan nýja
íþróttahúsið, sem bandalagið
er að byggja við íþróttavöllinn
á Jaðarsbökkum. Klukkan 14.35
hefst kynning á einstökum
íþróttagreinum og verður svo
fram eftir degi. Kaffisala verður
i íþróttahúsinu milli klukkan
14.30 og 17.
í tengslum við afmælishátí-
öina heldur Sundfélagið Akra-
nesmótið f sundi i Bjarnalaug
og hefst það klukkan 16.
Skorað er á alla félaga og
velunnara íþróttafélaganna á
Akranesi að taka þátt í hátíðar-
höldunum og minnast þessara
merku tímamóta í viðburðaríkri
sögu bandalagsins.
Tennisíþróttin getur
illa án McEnroe verið
JOHN McEnroe var númer eitt á
listanum yfir bestu tennisleikara
heims f fjögur af síðustu flmm
árum. í ár verður hann ekki einn
af tíu bestu. Ástæðan er ekki slök
frammistaða heldur sú staðreynd
að McEnroe tók sér margra mán-
aða algjört frí frá tennisleik
framan af þessu ári. McEnroe
segist ekki hafa saknað tennisins
hætishót á meðan, en flestir eru
sammála um að tennisíþróttin
hafi saknað hans.
Ekki nóg með að McEnroe hafi
verið sá besti heldur var hann, og
er, langvinsælasti og um leið óvin-
sælasti tennisleikarinn. Hann er
frægur fyrir stórkostlega frammi-
stöðu á tennisvellinum, en einnig
fyrir það hve erfitt hann á með að
hemja skapsmuni sína, fyrir rifrildi
við dómara, áhorfendur og and-
stæðinga.
Svíinn Mats Wilander og
Yannich Noah frá Frakklandi eru
sammála um að þegar hann tók
sér hvíldina hafi áhugi á tennis
dottið niður. „Það var greinilegt
að eitthvað vantaði þegar John dró
sig í hlé. Þegar hann er að leika
getur fólk bókað að eitthvað ge-
rist. í kringum hann er loftið ætíð
lævi blandið," sagði Noah í sam-
tali við fréttamann Rauters.
Áður en hann fór í hið langa frí
varð McEnroe þrisvar sinnum
Wimbledonmeistari, fjórum sinn-
um vann hann opna bandaríska
mótið og þrisvar Masters-keppn-
ina, svo einhverjir af ótal titlum
hans séu nefndir. En í febrúar á
þessu ári iét McEnroe undan þeim
þrýstingi sem fylgir því að vera
einn umdeildasti og umtalaðasti
íþróttamaður heimsins og lýsti því
yfir að hann væri hættur tennisleik
um óákveðinn tíma. Hann lét fara
eins lítið fyrir sér og hann gat á
heimili sínu í Kaliforníu, og snerti
ekki á tennisspaða.
„Þegar ég lít til baka er í viss
um að 1986 verður eitt af mínum
eftirminnilegustu árum“, sagði
John McEnroe. „Ekki vegna tennis-
ins, heldur vegna þess að ég
eignaðist son, Kevin, og gekk í
hjónaband." Eiginkona hans er
sem kunnugt er hin fræga leikkona
Tatum O’Neal.
McEnroe gat haldið sig frá tenn-
is í um sex mánuði. í ágúst tók
hann þátt í móti í Kanada og önn-
ur mót fylgdu í kjölfarið. Honum
hefur ekki gengið alltof vel að kom-
ast í hóp hinna bestu aftur. „Ég
gerði mér alltaf grein fyrir að það
yrði erfitt fyrir mig að komast á
toppinn á ný. Fyrsta skrefið er að
komast í hóp fimm bestu og ég
vonast til að ná því áður en langt
um líöur. En hvort ég næ'nokk-
urntíma að verða númer eitt á ný
verður reynslan að skera úr um,“
sagði hann.
Félagar hans á tennismótunum,
Mats Wilander, Mikael Pernfors
og Yannich Noah eru hinsvegar
ekki í nokkrum vafa um að hann á
eftir að verða númer eitt á ný.
„Það eina sem getur komiö í veg
fyrir það er hann sjálfur. Ef hann
missir þolinmæðina áður en hann
fer að sjá árangur. En það er eng-
inn vafi á því að hann er besti
tennisleikarinn. Hann er alveg sér-
stakur. Ég nenni yfirleitt ekki að
horfa á tennismót — mér nægir
að keppa í þeim. En ég horfi alltaf
á John McEnroe ef ég mögulega
get", sagði Yannich Noah.
0 John McEnroe hefur veriö þekktur fyrir ýmis uppátæki á tennisvell-
inum á undanförnum árum. Hann er mjög vinsæll meðal áhugamanna
um tennis.
íþróttir helgarinnar:
Ulf Carlsson keppir á
Flugleiðamótinu íborðtennis
- mikið um að vera í mörgum greinum
MIKIÐ verður um að vera í hinum
ýmsu íþróttagreinum um helgina.
Flugleiðamótið f borðtennis verð-
ur f dag, bikarkeppni 1. deildar f
sundi, sem hófst í gærkvöldi,
heldur áfram f dag og lýkur á
morgun, úrslit í Reykjavíkurmót-
inu f keilu fást f dag og auk þess
verða leikir f blaki, körfu og hand-
bolta um helgina.
Kvennalandslið Islands og
Bandaríkjanna í handknattleik leika
í dag í íþróttahúsinu á Digranesi í
Kópavogi og hefst leikurinn klukk-
an 14.
Borðtennis
Flugleiðamótið í borðtennis
verður í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans í dag og hefst keppni í
kvennaflokki klukkan 14 en í karla-
flokki klukkan 15. Úrslit hefjast
klukkan 17 og verða í beinni sjón-
• Ulf Carlsson hefur verið einn besti borðtennismaður heims um
árabil. Það er mlklll fengur að fá hann hingað til lands f keppni. Hár
er hann f undariegri stellingu.
varpsútsendingu.
Um boðsmót er að ræða og eru
fjórir keppendur í kvennaflokki en
átta í karlaflokki. Tveir frægir borð-
tenniskappar taka þátt, Svíarnir
Kjell Johannsson og Ulf Carlsson.
Johannsson er hættur atvinnu-
keppni, en keppir sýningarleiki fyrir
Stiga-fyrirtækið. Carlson er með
betri borðtennisleikurum í Evrópu,
var atvinnumaður í Þýskalandi í 5
ár, en sneri aftur heim til Svíþjóðar
ekki alis fyrir löngu.
Sund
Bikarkeppni 1. deildar í sundi
hófst í Sundhöll Reykjavíkur í gær-
kvöldi og heldur áfram í dag og á
morgun. Gert er ráð fyrir mikilli
baráttu á toppi sem á botni, en tvö
neðstu félögin falla í 2. deild.
Vestri, Bolungarvík, HSK, Ægir,
KR og SH eru Í1. deild, en í þess-
um félögum eru flestir landsliðs-
mennirnir. Keppnin hefst klukkan
14 í dag en klukkan 13.30 é morg-
un.
Mikið er í húfi hjá keppendum,
því landsliðið, sem tekur þátt í
Evrópubikarkeppninni í Svíþjóð um
miðjan desember, verður valið að
mótinu loknu.
Keila
Úrslitaleikirnir í Reykjavíkurmót-
inu í keilu verða spilaöir í dag og
á morgun í Keilusalnum við
Öskjuhlíð. Einstaklingskeppnin
hefst klukkan 11 og liðakeppnin
klukkan 16 í dag.
Körfubolti
Tveir leikir verða í úrvalsdeild-
inni um helgina. Leikur Fram og
KR hefst í íþróttahúsi Hagaskóla
klukkan 14 í dag, en Valur og Hauk-
ar leika í íþróttahúsi Seljaskóla
annað kvöld og hefst sá leikur
klukkan '20. Að honum loknum
leika ÍR og Haukar í 1. deild
kvenna.
ÍR og UMFG leika í 1. deild karla
í Seljaskóla í dag og byrja klukkan
14, en á sama tíma á morgun leika
ÍS og UMFT í Hagaskóla.
Blak
Þróttur, Neskaupsstað, leikur
gegn Víkingi í meistaraflokki karla
í íþróttahúsi Réttarholtsskóla í
kvöld klukkan 20 og gegn HK í
Kópavogi á morgun klukkan 14.
KA og HSK keppa í Glerárskóla í
dag klukkan 14.30 og Þróttur og
ÍS leika í íþróttahúsi Hagaskóla á
morgun og hefst viöureignin klukk-
an 19. Fimm stundarfjórðungum
síðar hefst leikur Þróttar og
Víkings í 1. deild kvenna og fer
hann fram á sama stað.