Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 25
MQRGy^jLftEp^ ÞpiÐJUDAGUR 14. NQyEMfiER, 1989 25 Aukaþing Norðurlandaráðs: Deilt um afstöðuna til tillögu Gorbatsjovs Mariehamn. Frá Birni Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. ÞRÓUNIN í Austur-Evrópu setur ekki minni svip á lokafundina fyrir [jriója aukaþing Norðurlandaráðs sem efnt er til hér í höfuðstað Álandseyja í dag, þriðjudag, en umræðueftiið sjálft: Norðurlöndin og Evrópa. Forsætisnefnd hefur rætt hvernig haga skuli samskiptum við Sovétríkin án þess að komast að niðurstöðu. Voru þessi mál einnig á dagskrá funda norrænu stjórnmálaflokkanna í hinu glæsilega þing- húsi eyjanna í gær. Reuter Deng dregur sig í hlé Deng Xiaoping, einn helsti ráðamaður í Kína um margra ára skeið, segist vera sestur í helgan stein en í liðinni viku lét hann af síðasta valdaembættinu; formennsku í hermálanefnd kommúnistaflokksins. Eftirmaður hans í því er Jiang Zemin, formaður kommúnistaflokks- ins. Myndin var tekin á fundi með japönskum kaupsýslumönnum á mánudag en þá sagði Deng, að þeir væru síðustu opinberu gestim- ir, sem hann tæki á móti. Stj órnarmyndun í Grikklandi: Papandreou gefst upp Aþenu. Reuter. ANDREAS Papandreou, leiðtoga gríska sósiaiistaflokksins, tókst ekki að telja kommúnista á að ganga til samstarfs við flokk sinn er hann ræddi við leiðtoga þeirra á sunnudag. Kommúnistar eru sagð- ir hlynntir því að mynduð verði þjóðstjórn og nýtur sú hugmynd stuðnings hægri manna. Þegar Míkhaíl Gorbatsjov Sovét- forseti var í heimsókn í Finnlandi á dögunum lagði hann til að efnt yrði til fundar með sendinefnd frá Norð- urlandaráði og fulltrúum Æðsta ráðs Sovétríkjanna og síðan með fulltrú- um frá Æðstu ráðum í norðlægum Sovétlýðveldum eins og hann orðaði það án þess að skilgreina tillögu sína nánar. Þá hefur Anker Jorgensen, fyrrum forsætisráðherra Dana, ritað Forsaga málsins er að borgar- stjórinn hitti gamlan vin sinn, Charles Lewis, að máli á hóteli skammt frá Hvíta húsinu fyrir um ári. Lewis var síðar ákærður fyrir eiturlyfjasölu og játaði sekt sína gegn því að um tólf ákæruatriðum yrði sleppt. Dómari spurði Lewis hvort borgarstjórinn hefði verið forsætisnefnd Norðurlandaráðs bréf þar sem hann leggur til að rætt verði hvernig taka megi upp sam- band við Eystrasaltslöndin. Innan Norðurlandaráðs eru mjög skiptar skoðanir um það hvernig eigi að svara þessari tillögu Gorbatsjovs og bréfi Jorgensens og hvernig ráð- ið geti sinnt málum sem þessum. Sumir telja að Gorbatsjov þurfí að leggja málið fram með formlegri einn af viðskiptavinunum og því játaði sakborningurinn en Barry hefur vísað þessu á bug. Samkvæmt nýlegri skoðana- könnun vilja 54% borgarbúa að Barry dragi sig í hlé og mikill meiri- hluti þeirra vill að Jesse Jackson, sem hyggst gefa kost á sér, taki við embættinu. hætti. Á þessu stigi beri aðeins að svara honum úr ræðustól. Aðrir vilja að forsætisnefnd ráðsins eða fulltrú- ar á vegum hennar fari til Moskvu og Eystrasaltslandanna. Enn aðrir segja að ekki eigi að fara um Moskvu til Eistlands, Lettlands og Litháen heldur eigi að taka upp beint sam- band við þingin þar. Loks eru þeir sem segja að ekkert eigi að að- hafast í þessu efni nú þar sem breyt- ingar séu svo örar fyrir austan tjald, eins og atburðirnir í Austur-Þýska- landi sýni og skynsamlegast sé að bíða og sjá hver framvindan verður. Telja heimildarmenn að síðasti kost- urinn verði ofan á en embættismönn- um Norðurlandaráðs verði falið að kanna hvað fyrir Sovétmönnum vak- ir. Athyglin beinist því einkum að því hvað ræðumenn hafa að segja um tengslin við Austur- og Vestur- Evrópu á ráðsfundinum í dag. Þá ræða forsætisráðherrar landanna viðfangsefni fundarins þegar þeir hittast í dag og síðan á sameiginleg- - um fundi þeirra og forsætisnefndar ráðsins síðdegis. Hér eru fyórir íslenskir ráðherrar: Steingrímur Hermannsson, Júlíus Sólnes, Óli Þ. Guðbjartsson og Steingrímur J. Sigfússon, sjö þing- menn og tveir starfsmenn Norður- landadeildar Alþingis auk starfs- manna skrifstofu Norðurlandadeild- ar utanríkisráðuneytisins. Níu íslenskir embættismenn eru skráðir í þátttökuskrá þingsins og tveir full- trúar frá íslenskum æskulýðssam- tökum. Ólafur G. Einarsson alþingis- maður er formaður íslensku sendi- nefndarinnar. Ekki kom á óvart að Papandreou skyldi ekki takast að mynda stjórn en kommúnistar höfðu lýst yfir því fyrir kosningarnar þann 5. þessa mánaðar að ekki kæmi til greina að ganga til samstarfs við sósíalista undir forystu Papandreous. Komm- únistar munu nú fá þijá daga til að freista þess að mynda stjóm en ólíklegt er talið að það takist. Líklegast þykir að mynduð verði þjóðstjórn og að kosið verði á ný snemma á næsta ári. Forseti Grikk- lands, Christos Sartzetakis, mun hefja viðræður um myndun þjóð- stjómar í þessari viku en sósíalistar hafa ýmsa fyrirvara við hugmynd- ina. Washington: Borg-arstjóri sakað- ur um fíknieftiakaup Washington. Daily Telegrapb. MARION Barry, sem gegnt hefúr embætti borgarstjóra í Washington í tíu ár, þykir nú valtur í sessi vegna ásakana um að hann hafi keypt kókaín. .» - >: . «. ■ . >' ' ' - • . V"--~ '■■ ■ ■ ■___________________________________ Foldin er fjárhagsforritið Nýjung frá Kaupþingi hf.: Kaupþing hf. hefur hannað mjög fullkomið núvirðisforrit. sem fengfð hefur nafnið FOLD. Forritið er notað í verðbréfadeild Kaupþings hf. og í nokkrum sparisjóðum landsins og hefur reynst einstaklega vei. Því hefur verið ákveðið að gefa fleirum kost á að nýla sér það og bjóða það til sölu á al- mennum markaði. Foldin er bæði fljótvirk og cinföld í nolk- un og gerir þér m.a. kleift að reikna út; nú- virði skuldabréfa, væntanlegar afborganir miðað við ákveðna verðbólguforsendu, dráttarvexti, vaxta- og vfsitöluhækkanir á ákveðnu tímabili og lögfræðikostnaö. Foldin hentar jafnt smáum sem stórum fyririækjum og stuðlar að markvissu eftir- liti með öllum fjármálum fyrirtækisins. KAUPÞING Ml' Kringlunni 5,103 Reykjavík Simi 91-689080
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.