Morgunblaðið - 11.05.1991, Qupperneq 50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991
nKlA.lil/UOllOI/,
fclk í
fréttum
VÍN
Skenkjari skenkti
með tilþrifum
Meðal styrktaraðila að Fegurð-
arsamkeppni íslands sem
fram fór á dögunum var spænska
víngerðin Croft Jerez S.A. og komu
hingað til lands þrír fulltrúar henn-
ar og eignarhaldsfélagsins sem er
„Gilbey Wintners Ltd.“ í Lundún-
um. Sérkennileg uppákoma fylgdi
þátttöku Crofts við þetta tækifæri
og segir myndin ekki nema hálfa
söguna.
Þjónninn á myndinni er spænskur,
svokallaður „venciador“, en svo eru
kallaðir spænskir vínskenkjarar
sem bjóða gestum upp á veigarnar
beint úr hundrað ára gömlum eikar-
ámum. Þeir hella með miklum til-
þrifum eins og myndin ber með
sér, sveifla athyglisverðri ausu hátt
í loft upp og reyna að hafa vínbun-
una ekki mikið styttri heldur en
einn meter.
Aldargamalli ámu af því tagi sem
um er rætt var komið fyrir á svið-
inu á Hótel íslandi er lokakeppnin
um íslenska fegurð fór fram. Var
öllum gestum keppninar boðið upp
á fordrykk úr kútnum og var skenkt
með sveiflu...
Morgunblaöið/1 heodór
Hnáturnar leggja af stað í 500 metra hlaupið. Lengst til hægri er
Hrafnhildur Hrafnsdóttir sem að sigraði.
MANNAMÓT
Hlaupið og
grillað á
Seleyrínni
Nýverið stóð Ungmennasam-
band Borgarfjarðar, UMSB,
fyrir víðavangshlaupi á Seleyri
handan Borgamess og af því tilefni
bauð fijálsíþróttadeild Umf. Skal-
lagríms fólki upp á gos og grillaðar
pylsur. Frekar berangurslegt er á
Seleyrinni og nokkur næðingur var
þennan dag. Því var brugðið á það
ráð að fá flutningabíl frá kaupfélag-
inu sem söluvagn og til að mynda
skjól fyrir grillið. Keppt var í fimm
aldurshópum og hlaupið frá 500
metrum upp í 1.500 metra, eftir
aldri. Yngsti keppandinn var 5 ára.
TKÞ.
Skenkjarinn skenkir með tilþrifum.
Börn og fullorðnir gæddu sér á grilluðum pylsum eftir lystaukandi
víðavangshlaupið.
Fyrsti samlestur á „Gleðispili“ Kjartans Ragnarssonar.
Kjartan Ragnarsson leik-
stýrir í Þjóðleikhúsinu
NÚ ERU að hefjast í Þjóðleik-
húsinu æfingar'á nýju leikriti
eftir Kjartan Ragnarsson. Þetta
verður fyrsta leiksýningin sem Stef-
án Baldursson nýráðinn Þjóðleik-
hússtjóri mun hafa veg og vanda af.
Á þriðja tug leikara taka þátt í
sýningunni en með helstu hlutverk
fara Sigurður Siguijónsson, Örn
Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdótt-
ir. Leikmyndina gerir Grétar Reyn-
isson, Stefánía Adolfsdóttir sér um
búninga og Jóhann G. Jóhannsson
sér um tónlistina. Kjartan Ragnars-
son leikstýrir og er þetta í fyrsta
skipti sem hann stjórnar leiksýn-
ingu í Þjóðleikhúsinu.
Leikurinn „Gleðispilið“ gerist í
Kaupmannahöfn, París og á íslandi
á 18. öld. Aðalpersónan er Sigurður
Pétursson sýslumaður og leikskáld,
en vinur hans og verndari, Geir
Vídalín leikskáld og síðar biskup,
hefur einnig miklu hlutverki að
gegna.
Upplýsingin er á næsta leiti, nýj-
ar hugmyndir eru að festa rætur
og evrópski aðallinn er að missa
tökin. Sigurður Pétursson verður
sem ungur námsmaður fyrir sterk-
um áhrifum af hugmyndaólgunni
en réttlætiskennd hans á enga sam-
leið með dönsku yfii’valdi þótt hann
sé umboðsmaður þess. Frumsýning-
in er áætluð í septemberlok.
Vestmannaeyingar
Hið árlega veislukaffi Kvenfélagsins
Heimaeyjar verður haldið á Hótel Sögu,
Súlnasal, sunnudaginn 12. maíkl. 14.00.
Allir Vestmanneyingar velkomnir.
Stjórnin.
AF6REIBSLUTIMI
Á tímabilinu 13. maí til 30. september
er skrifstofa BSRB opin frá kl. 8-16.