Morgunblaðið - 03.08.1991, Side 50

Morgunblaðið - 03.08.1991, Side 50
►50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1991 Ágúst G. Ásgeir. íttémR FOLK H SNÆVAR Hreinsson, sem hefurn leikið með Val, fer til Bandaríkjanna um miðjan ágúst. Þá getur svo farið að tveir aðrir Valsmenn fari til náms vestur um haf áður en kepgnistímabilið er ' búið. Það eru þeir Agúst Gylfason og Lárus Sigurðsson, varamark- vörður. ■ ÁSGEIR Elíasson, þjálfari Fram, er í London, þar sem hann mun sjá gríska liðið Panathinai- kos leika á móti á Highbury, en gríska liðið mætir Fram í Evrópu- ^keppninni. ■ FRAMARAR hafa leikið^ sautj- án leiki í röð án taps þegar Asgeir Elíasson hefur verið meið veiðihúf- una frægu á höfðinu. Asgeir, sem var búinn að leggja húfunni, púss- aði rikið af henni eftir þrjár umferð- ir í ár, en þá hafði Fram ekki unn- ið leik. Eftir það hefur allt gengið eins og í sögu hjá Fram. ■ RON Atkinson, sem tók við stjórninni hjá Aston Villa fyrir tveimur mánuðum, snaraði pen- ingabuddunni á borðið í gær og 'keypti írska landsliðamanninn Steve Staunton, 22 ára, frá Liverpool á 1,1 millj. stelingspund. Atkinson hefur keypt átta leik- menn á stuttum tíma fyrir 3,8 millj. pund. Staunton skrifaði undir þriggja ára samning. ■ EYJÓLFUR Sverrisson og fé- lagar hans hjá Stuttgart mæta áhugamannaliðinu Bremen í 2. umferð þýsku bikarkeppninnar. Bikarmeistarar Werder IBremen leika heima gegn Hamburger SV og meistarar Kaiserslautern mæta Duisburg úti. ■ VALSMENN standa fyrir Af- mælismóti í körfuknattleik síðustu helgina í þessum mánuði. Mótið er ' haldið vegna áttatíu ára afmaglis félagsins og var öllum úrvalsdeild- arliðunum boðin þáttaka. Forráða- menn átta þeirra hafa þegar til- kynnt um þáttöku. Aðeins eitt lið verður örugglega ekki með, - það er Grindavík. Þá hafa forráðamenn Tindarstóls ekki enn gefið svar. KNATTSPYRNA Fimmtán I leikbann Fimmtán leikmenn voru úrskurð- aðir í leikbann á fundi aga- nefndar KSÍ í vikunni. Þrír leik- menn í 1. deild fengu eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda; | Grétar Einarsson, Víði, Heimir Erl- ingsson, Stjörnunni og Þorvaldur Örlygsson, Fram, sem getur ekki leikið gegn sínum gömlu félögum úr KA þegar Fram leikur á Akur- eyri. Aðalsteinn Aðalsteinsson, Leiftri, ^jSarðar Níelsson, Reyni Á. og Öm Gunnarsson, Þrótti Nes., fengu eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. Árni Vilhjálmsson, Keflavík, Björn Ingimarsson, Þrymi, Gísli Sigurðsson, Fjölni, Jón Pétur Zim- sen, TBR, Viktor Viktorsson, Aftur- eldingu og Þorsteinn Guðbjörnsson, - • Dalvík, fengu eins leiks bann vegna brottvísana. KORFUBOLTI / EVROPUKEPPNI KR leikur báða leikina í Vín Kaplakriki verður heimavöllur Njarðvíkinga í Evrópukeppni meistaraliða KR-ingar hafa ákveðið að leika báða leiki sína í Evrópu- keppni bikarhafa f körfuknatt- leik gegn STI frá Austurríki ytra usturríska liðið sýndi strax áhuga á því á að kaupa heimaleik KR og leika báða leik- ina í Vínarborg. Félagið sendi KR tilboð um frítt uppihald og pen- ingagreiðslu og KR sendi gagntil- boð um hæl sem STI samþykkti. Leikdagar liðanna eru 10. og 17. september og telst fyrri leikur- inn heimaleikur KR. Sigurvegar- arnir mæta síðan bikarmeisturum ísraels, Hapoel Galil Elion í 2. umferð. Islandsmeistarar Njarðvíkur sem sitja hjá í 1. umferð mæta Júgóslavnesku meisturunum Cibona í 2. umferð 3. október og hafa Njarðvíkingar ákveðið að leika heimaleik sinn í íþróttahús- inu í Kaplakrika. KNATTSPYRNA Guðni Bergsson á feðinni með Tottenham. HANDKNATTLEIKUR Sovéskur mark- vörður til Gróttu? FLEST bendir til þess að Sovéskur markvörður verði á milli stanganna f marki Gróttu í handboltanum fvetur. Hann heitir Alexander Rivine og hefur leikið í Sovésku 1. deildinni síðustu fimmtán ár með Kunseva. Rivine er 32 ára og honum er ætlað að leysa skarð Þorláks Árna- sonar sem hyggur á nám erlendis. Annar markvörður sem reynd- ar lék ekki með liðinu í fyrra, Sigtryggur Albertsson hefur þegar til- kynnt félagaskipti í Fram. Gróttumenn eru einnig að velta því fyrir sér hvort að þeir eigi að fá til sín hægri handar skyttu frá Sovétríkjunum. Þar sem aðeins einn erlendur leikmaður má vera á leiksskýrslu í senn gæti Grótta ekki notað þá báða í leik heldur þyrfti að gefa þeim tækifæri sitt í hvoru lagi. 1111iiIf!ií11ilt í;íiiií(yiíi{iiiíliiiiíiiíiiíiilitiííl ,- <;) ci ic'i i«m -•> itrwiM tnHM „Kann betur viðmigá miðjunni" segirGuðni Bergsson sem leikið hefursem miðvörður í síðustu leikjum Tottenham GUÐNI Bergsson virðist veraá góðri leið með að vinna sér fast sæti í liði Tottenham. Hann hefur verið í byrjunarliði félagsins í öilum fimm vináttu- leikjum liðsins og leikið í stöðu miðvarðar ásamt fyrirliðanum Gary Mabbutt. Eg kann mun betur við mig á miðjunni heldur en í bakverðin- um. Ég vonast til að halda stöðu minni í byijunarliðinu og leika um Góðgerðarskjöldinn gegn Arsenal um aðra helgi,“ sagði Guðni Bergs- son við Morgunblaðið, en Totten- ham-liðið hefur verið á keppnisferð í Noregi. Liðið lék fimm leiki á níu dögum og gerði síðast jafntefli, 1:1, gegn Brann og skoraði Paul Stewart mark Lundúnarliðsins. Síðustu vin- áttuleikir Tottenham fyrir keppn- istímabilið verða gegn norska liðinu Bryne og Celtic. Að því búnu hefst undirbúningurinn fyrir Góðgerðar- skjöldinn, viðureign Englands- meistara Arsenal og bikarmeistara Tottenham á Wembley. Það getur farið svo að tveir ís- lendingar Ieika í fyrsta skipti á þessum gamalkunna velli - Guðni með Tottenham og Sigurður með Arsenal. „Reynum aðláta verkin tala“ - segir Pétur Ormslev, fyrirliði Framara, sem fagna nú stuttu sumarfrfi „STUNDIN er runnin upp sem við höfum lengi beðið eftir - að komast í stutt frí og fá algjöra afslöppun frá knatt- spyrnu í nokkra daga. Ekki skemmir það fyrir hvernig staðan er nú í deildinni," sagði Pétur Ormslev, fyrirliði Fram- liðsins, sem hefur á stuttum tíma náð ótrúlegu forskoti í baráttunni um íslandsmeist- aratitilinn. egar þijár umferðir voru bújiar voru Framarar í níunda sæti í deildinni, með aðeins eitt stig. Þeg- ar ar fimm umferðir voru búnar voru þeir með sjö stig, en KR og Breiðablik á toppnum með þrettán stig. Framarar, sem hafa ekki tapað níu leikjum í röð - átta sigrar og eitt jafntefli, hafa ná ellefu stigum meira en KR-ingar út úr síðustu sjö umferðum. „Þetta sýnir að skjótt skipast veður í lofti. Þetta talnadæmi gefur ekki villandi mynd, en aftur á móti getur þannig talnaleikur gefið falskar vonir. Við vitum hvernig er að vera sex stigum á eftir efsta liði. Þegar staðan var þannig vorum við ákveðnir að minnka þann mun og við höfum heldur betur gert það,“ sagði Pétur, sem sagðist varast stór Pétur Ormslev. orð. „Við reynum frekar að láta verkin tala.“ „Það hefur verið mikið álag á okkur að undanförnu og í leiknum gegn Val kom í ljós að við vorum orðnir þreyttir. Við fögnum því stuttu fríi og byijum ekki að æfa aftur fyrr en á þriðjudaginn. Þá hefst undirbúningur okkar fyrir þriðja hluta keppnistímabilsins og lokaslaginn um meistaratitilinn,“ sagði Pétur Ormslev, fyrirliði Fram- liðsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.