Morgunblaðið - 24.04.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993
9
Nýr leikskóli við Viðarás í Árbæjarhverfi
0,30% munur á
lægstu tilboðum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka rúmlega 41,1 milljón króna
tilboði lægstbjóðanda Múrtækni hf. og Þórhalls Einarssonar í bygg-
ingu leikskóla við Viðarás 9 í Árbæjarhverfi. Sextán tilboð bárust
í verkið og munaði 0,30% á lægsta og næst lægsta tilboði.
Tilboð lægstbjóðanda er 85,30%
af kostnaðaráætlun en hún er rúmar
48,2 milljónir. Næst lægsta boð átti
Markús hf., sem bauð 41,3 millj. eða
85,61% af kostnaðaráætlun. Munur
á milli lægsta og næst lægsta tilboðs
var því 0,31%.
Þriðja lægsta boð var frávikstilboð
frá Byggingarfélagi Ásmundar og
Halls sf., en það var 86,26% af kostn-
aðaráætlun. Þeir áttu einnig fjórða
lægsta boð sem var 88,02% af kostn-
aðaráætlun. Aðrir sem buðu voru Jón
Gunnar Gíslason, sem bauð 89,40%
af kostnaðaráætlun, Ártak hf., sem
bauð 90,88% af kostnaðaráætlun,
Sigurður Bjarnason, sem bauð
91,57% af kostnaðaráætlun og
Sveinbjörn Sigurðsson hf., sem bauð
92,89% af kostnaðaráætiun.
Þá bauð Byggingarfélagið Virki
hf., 92,98% af kostnaðaráætlun,
Halldór Svansson hf., bauð 94,04%
af kostnaðaráætlun, Sel sf., bauð
97,37% af kostnaðaráætlun, Bygg-
inga og verktakafyrirt. S.Þ. hf., bauð
99,14% af kostnaðaráætlun. Al-verk
hf., bauð 99,54% af kostnaðaráætl-
un, Byggða - Múr hf., bauð 100,60%
af kostnaðaráætlun, Fjarðarmót hf.,
bauð 101,34% af kostnaðaráætlun
og Sigurður K. Eggertsson hf., bauð
104,98% af kostnaðaráætlun en einn
lið vantaði í tilboð Braga Guðmunds-
sonar sem bauð 124,99% af kostnað-
aráætlun.
Lokað útboð í gólfefni
Fyrri samningi rift
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að rifta samningi við Einar Þorvarðar-
son og Co. hf./Veggfóðrarann hf. en taka þess í stað tilboði Víðis
Finnbogasonar hf. Teppalands-Parketgólfa i gólfefni og vinnu við
Lindargötu 57 til 61 og 64 til 66.
í erindi stjórnar Innkaupastofn-
unar Reykjavíkurborgar til borgar-
ráðs segir að eftir að borgarráð
hafi samþykkt fyrri samning, birtist
auglýsing um að fyrirtækið hafi
verið tekið til gjaldþrotaskipta. Á
grundvelli þess er lagt til að tekið
verði tilboði Víðis Finnbogasonar
hf. Teppalands-Parketgólfa sem er
17.746.817 krónur eða 63,70% af
kostnaðaráætlun.
Bént er á að um lokað útboð var
að ræða og að Veggfóðraranum hf.
hafi verið boðin þátttaka en ekki
Einari Þoi'varðarsyni og Co. hf.
Franskir dömukjólar
og dragtir
frá stœrð 3U
TESS
v NEt
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga 9-18,
laugardag 10-14.
"ólar m/skemmli
mikið úrval
Svefnsófar
jrnsófar m/svefnsófa
Sófasett, hornsófar
læði
Hvíldarstóll
VALHUSGOGN hf.
Ármúla 8, símar 812275 og 685375
Opið laugardag frá kl. 10-14
m/ skemmli
kr. 25.000 stgr.
Blóðbaðið í Bosníu
Dagblöð í Evrópu hafa mikið fjallað um
átökin í Bosníu-Hersegóvínu á síðustu
dögum og mörg hver gagnrýnt stjórnvöld
á Vesturlöndum harðlega fyrir úrræða-
leysi við að stöðva blóðbaðið í Bosníu.
Signr Serba
Franska dagblaðið Le
Monde segir í forystu-
grein í vikunni, undir
fyrirsögninni „Friðarvið-
ræður í andarslitrunum",
að sú ákvörðun öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóð-
anna, að lýsa bæinn
Srebrenica í Bosníu
griðasvæði og senda
þangað kanadiska friðar-
gæsluliða, sé sigur fyrir
Serba og liinar óhugnan-
legu sveitir herforingj-
ans Ratko Mladics, sem
hlotið hefur viðumefnið
„Slátrarinn frá
Sarajevo". Þetta vigi
múslima í austurhluta
Bosníu sé þar með fallið.
„Það á enn eftir að
sýna sig hvort Serbar
muni nú hætta sókn sinni
og hefja friðarviðræður
af alvöru eða hvort þeir
muni halda áfram að
sækja að múslimabæjum
á borð við Gorazde, Zepa
og Tuzla, sem eru mun
mikilvægari hernaðar-
lega. Meta þeir stöðuna
sem svo að þeir hafi náð
fram markmiðum sínum
varðandi þjóðernis-
hreinsanimar, sem þeir
hafa ástundað í um ár
án þess að gripið hafi
verið til teljandi aðgerða
á alþjóðavettvangi, og nú
sé kominn timi til að
„sen\ja“ um eða skipta á
landsvæðum við Króata
og múslima?
Friðaráætíun Vance
og Owens, sem Slobodan
Milosevic, forseti Serbíu,
telur vera hinn rétta
samningsgrundvöll, og
leggur til grundvallar
hagsmuni og réttindi
„þjóðanna" þriggja [sem
byggja Bosníu] er orðin
ansi illa litleikin. Sú
skipting landsvæða, sem
samningamennirnir tveir
leggja til, og myndi
skipta Bosníu-Hersegóv-
ínu upp í tíu svæði sem
hvert fyrir sig nyti veru-
legrar sjálfstjómar, er
faUin úr gildi vegna
hemaðarávinninga
Serba.“
Kröfur
Karadzics
Le Monde segir að þó
að Alija Izetbegovic, for-
seti Bosníu, hafi ítrekað
hótað að hætta þátttöku
í friðarviðræðunum í
New York, þá sé það
Radovan Karadzic, leið-
togi Bosníu-Serba, sem
neiti að midirrita friðar-
samkomulagið. Ástæðan
er að sú samfella land-
svæða Serba í Bosníu og
Serbíu sjálfrar, sem hann
er svo hrifinn af, er ekki
tryggð í samkomulaginu.
„Fyrst hann fékk ekki
þennan „naflastreng"
samþykktan í friðarvið-
ræðunum - af þeirri
ástæðu að Owen og
Vance vom ekki tU við-
ræðu um Stór-Serbíu -
reynir hann að ná fram
markmiðum sinum með
hemaði til að sjá tU þess,
að Evrópubúar og
Bandaríkjamenn standi
franuni fyrir gjörðum
hlut.“
Hætta Serbar
þátttöku?
Síðar segir að ef Serb-
ar þrjóskist við að neita
að samþykkja friðaráætl-
unina hafi BiU Clinton,
forseti Bandarikjanna,
hótað að grípa til frekari
aðgerða og ekki útílokað
neitt nema að senda land-
gönguliða á vettvang.
„Enn einu sinni stefnir
sem sagt í að refsiað-
gerðimar gegn Serbum
verði hertar og rikið
hugsanlega eingangrað
algjörlega í þetta skipti.
Karadzic hefur lýst því
yfir að viðbrögð hans við
slíkum aðgerðum yrðu
þau að hætta endanlega
þátttöku í friðarviðræð-
unum. Frá þvi að stríðið
hófst hafa Serbar ávallt
gert það sem þeir hafa
lýst yfir að þeir hyggist
gera. í Króatíu jafnt sem
Bosníu-Hersegóvinu.“
Fuglaskoðun í Hafnarfírði
Hafnarfjarðarganga skátafé-
lagsins Hraunbúna verður eins
og venjulega síðasta sunnudag
hvers mánaðar núna á sunnudag-
inn 25. apríl.
í þetta sinn verður farið frá tjald-
svæðinu á Víðistaðatúni kl. 14 og
Helgi Guðmundsson kennari og
leiðsögumaður mun leiða gönguna
vestur með firði og kanna m.a.
hvaða farfuglar eru komnir í bæ-
inn. Fólk er hvatt til að taka með
sér sjónauka og fuglabók ef slíkt
er til á heimilinu. Allir eru velkomn-
ir í skátagönguna,'hún hentar öll-
um, tekur um 1 ‘A klst. og er ókeyp-
is.
(Fréttatilkynning)
VorLit±icilfL
á sturtuklefum,
babkarshurðum,
hreinlœtistœkjum
og innihurbum.
20 - 50%
afsláttur
Rabgreibslur allt
upp í 18 mánubi.
Opib laugardag kl. 70 - 16
sunnudag kl. 13 - 17
SHOWIK PKOC
CABINKS m: D
DOITHEPROG
BYGGINGAVÖRUR
SKEIFUNNI 11B- SIMI 681570.
M 9304