Morgunblaðið - 24.04.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRIL 1993
29
Yfirlýsingar bandaríska dómsmálaráðuneytisins um atburðina í Waco vefengdar
Engin skotsár sögð hafa
fundist enn á líkunum
Waco. Reuter.
HALDIÐ var áfram í gær að
bera lík út úr trúboðsstöð
Davids Koresh í grennd við
Waco í Texas, sem brann til
kaldra kola á mánudag, og
heimildum bar ekki saman
um hvort einhverjir þeirra
87 sem létust hefðu fengið
skotsár. Nizam Peerwani,
sem stjórnar rannsókn yfir-
valda í Texas, vefengdi yfir-
lýsingar bandaríska dóms-
málaráðuneytisins um að þrjú
lík hefðu fundist með skotsár.
Bandaríska alríkislögreglan
(FBI) rannsakaði hins vegar
möguleikann á þvi að mörg
fórnarlambanna hefðu látið
lífið í fjöldamorði frekar en
fjöldasjálfsmorði.
Nizam Peerwani sagði að enn
hefði ekkert lík fundist með skot-
sár. Hann kvað aðeins 35 lík hafa
fundist en bandaríska dómsmála-
ráðuneytið sagði á miðvikudag að
40 lík hefðu komið í leitirnar, þar
af tíu konur og börn.
Carl Stern, talsmaður dómsmála-
ráðuneytisins, gekk hins vegar út
frá því að skotsár hefðu fundist á
þremur líkanna og sagði þijár skýr-
Reuter
Leitað að fórnarlömbunum
RANNSÓKNARMENN leita að líkum þeirra sem biðu bana í brunan-
um í trúboðsstöð Davids Koresh við Waco í Texas í gær.
ingar koma til greina; safnaðarmeð-
limirnir gætu hafa framið sjálfs-
morð, orðið fyrir skotárás annarra
í söfnuðinum eða fyrir skotum úr
vopnabirgðum sém sprungu í brun-
anum. Embættismaður alríkislög-
reglunnar sagði að verið væri að
rannsaka hvort framið hefði verið
fjöldamorð í trúboðsstöðinni fyrir
brunann.
Ekki íkveikja?
Þeir sem björguðust úr brunanum
vefengdu yfirlýsingar dómsmála-
ráðuneytisins um að framið hefði
verið fjöldamorð eða að meðlimir í
söfnuðinum hefðu" kveikt í trúboðs-
stöðinni. Þeir segja að eldurinn hafi
blossað upp þegar skriðdrekar, sem
notaðir voru til að bijótast inn í
byggingarnar og dreifa táragasi,
hafi velt lömpum um koll á hey-
bagga sem söfnuðurinn notaði til
að veija sig.
Féllst Koresh á uppgjöf?
Phillip Arnold, guðfræðingur frá
Texas, sem reyndi að fá Koresh til
að gefast upp, kvaðst telja að leið-
togi safnaðarins hefði ætlað að fall-
ast á uppgjöf áður en lögreglan
réðst til atlögu við trúboðsstöðina á
mánudag. Hann hefði verið að leita
að biblíutúlkun- sem gæti réttlætt
uppgjöf. „Eina leiðin til að fá þau
út var að benda þeim á spádóm í
Opinberunarbókinni sem sýndi að
þau losnuðu úr vandanum," sagði
hann.
Arnoid er sérfræðingur í sértrú-
arsöfnuðum, sem byggja helst á
Opinberunarbókinni, og sendi Kor-
esh segulbandsupptöku þar sem
hann reyndi að fá hann til að breyta
túlkun sinni á ritningunni. Guðfræð-
ingurinn fékk bréf frá Koresh þar
sem hann kvaðst ætla að gefast upp
um leið og hann sæi að Arnold fengi
eintak af ritgerð um Opinberunar-
bókina sem Koresh var um það bil
að ljúka. Ritgerðin fjallaði um inn-
siglin sjö sem Opinberunarbókin
segir að opnist á heimsenda. „David
Koresh sagði að hann ætlaði að
ijúka við innsiglin sjö og koma síðan
út,“ sagði Arnold.
Repúblikanar sýna
Clinton tennurnar
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti beið sinn fyrsta ósigur á
þingi þegar öldungadeildarþingmönnum repúblikana tókst
á miðvikudag með málþófi að ráða niðurlögum frumvarps,
sem ætlað var að skapa atvinnu og glæða efnahagslífið.
í frumvarpinu var lagt til að 16
milljörðum dollara yrði veitt til
vegagerðar, starfsþjálfunar, bólu-
setninga og annarra mála, en eftir
að minnihluti repúblikana í öld-
ungadeildinni undir forystu Bobs
Dole hafði beitt þrætubókarlistum
sínum stóðu aðeins eftir íjórir millj-
arðar, sem samþykkt var að veita
til atvinnuleysisbóta.
Samkvæmt reglum öldunga-
deildarinnar þarf 60 atkvæði til að
stöðva málþóf. í öldungadeildinni
sitja 57 demókratar og 43 repúblik-
anar og hefðu demókratar því þurft
á liðhlaupum úr röðum repúblikana
að halda til að binda enda á málþóf-
ið. í atkvæðagreiðslunni á miðviku-
dag greiddu 56 atkvæði með því
að stöðva umræður um frumvarpið,
en 43 voru á móti. Hafði frumvarp-
ið þá verið óafgreitt í mánuð.
„Þetta er ekki ósigur fyrir mig,
sagði Clinton á miðvikudagskvöld.
„Þetta eru mikil vonbrigði fyrir
mörg hundruð þúsund Bandaríkja-
menn, sem hefðu fengið atvinnu."
Repúblikanar voru hins vegar
sigri hrósandi og kváðust nú hafa
sýnt forsetanum fram á að erfitt
yrði að koma endurbótum á heil-
brigðiskerfinu og öðrum málum
gegnum þingið án samráðs við sig.
Clinton tókst að fá ijárlagafrum-
varp sitt afgreitt á svipstundu í
síðasta mánuði og ef til vill var ein
ástæðan fyrir því hve fljótt það
gekk að repúblikanar gátu ekki
beitt málþófi í því tilviki. Sigurvím-
an kann hins vegar að hafa stigið
forsetanum til höfuðs. Hann kynnti
atvinnusköpunarfrumvarp sitt
rækilega fyrir þjóðinni, en láðist
að reka áróður fyrir því á þingi.
„Stundum ættu þeir að ráðfæra sig
við leiðtoga repúblikana," sagði
Dole, sem dagblaðið The New York
Times vændi í gær um að láta
pólitískt þref ganga fyrir þegar
ástandið krefðist heilinda. Dole
kvaðst hins vegar hafa forðað
skattborgurunum frá því að ausa
fé í gæluverkefni og óráðsíu.
Kosið um sjálfstæði
Keuter
ERITREAR gengu að kjörborðinu í gær til að segja af eða á um sjálfstæði
landsins og var búist við, að það yrði samþykkt með næstum öllum greidd-
um atkvæðum. Hér er Isayas Afewerki, Ieiðtogi bráðabirgðastjórnarinnar,
að kjósa en Eritrear börðust í 30 ár fyrir sjálfstæði sínu frá Eþíópíu.
Kaupir In-
dependent
Observer?
BRESKA dagblaðið Evening
Standard skýrði frá því í gær
að b’reska fyrirtækið Lonrho
Plc hefði ákveðið að selja
sunnudagsblað sitt, The Obser-
ver, til Newspaper Publishing,
sem á dagblaðið Independent
og sunnudagsblaðið Independ-
ent on Sunday. Donald Trel-
ford, ritstjóri Observer vísaði
þessu þó á bug. „Orðrómur um
andlát Observer á 202. aldurs-
ári eru, svo vitnað sé í Mark
Twain, stórlega ýktar,“ sagði
hann.
Vaxtalækkun
í Þýskalandi
ÞÝSKI seðlabankinn tilkynnti
vaxtalækkun á fimmtudag.
Lombard-vextir, sem hafa áhrif
á vexti þýsku viðskiptabank-
anna, voru lækkaðir úr 9% í
8,5% og forvextir bankans
lækkuðu um 0,25 prósentustig
í 7,25. Ákvörðun bankans kom
mjög á óvart þar sem hann
hefur hingað til verið tregur til
að lækka vexti sína þrátt fyrir
harða gagnrýni erlendis frá.
Franskir sjó-
menn mót-
mæla
FRANSKIR bændur og sjó-
menn tilkynntu í gær að þeir
hygðust efna til frekari mót-
mæla á næstu dögum gegn
innflutningi á ódýrum matvæl-
um, allt frá jarðarbeijum til
þorsks. Sjómennirnir segja að
fiskverð fari enn Iækkandi
vegna mikils innflutnings og
lítillar eftirspurnar undanfarna
daga.
Treurnieht
látinn
ANDRIES
Treurnicht,
leiðtogi
íhaldsflokks-
ins í Suður-
Afríku, lést á
fimmtudag,
72 ára að
aldri. Tre-
Treurnicht
urnicht var
prestur, ritstjóri, ráðherra og
síðan leiðtogi Ihaldsflokksins
og barðist gegn afnámi kyn-
þáttaaðskilnaðar.
VZterkur og
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ANDRES
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22A - SÍM118250
UTSALA
Mikið úrval í öllum stærðum.
Jakkaföt á kr. 4.500-8.400
Stakir jakkar á kr. 3.900-11.900.
Stakar buxur á kr. 2.800-5.400.
Sendum í póstkröfu
REYKVIKINGAR!
NÚ ER KOMINN TÍMI FYRIR SUMARDEKKIN
NAGLADEKKIN AF SUMARDEKKIN Á
GATNAMÁLASTJÓRI