Morgunblaðið - 24.04.1993, Qupperneq 33
■ DR. prófessor Marek Pod-
hajski kennari við Tónlistarskólann
á Akureyri flytur fyrirlestur á sal
skólans sem hann nefnir Andrzej
Koszewski, meistari kórtónlistar.
Kór Glerárkirkju mun flytja tón-
dæmi með fyrirlestrinum, en hann
verður fluttur á ensku og er öllum
opinn.
(Fréttatilkynning)
-------» ♦ 4---------
■ DR. Rögnvaldur Hannesson
flytur fyrirlestur sem nefnist
„Markaðsbúskapur og sjávarút-
vegur“ í dag, laugardaginn 25.
aprfl, en hann hefst kl. 14 og verð-
ur haldinn í stofu 25 á 2. hæð í
húsi Háskólans á Akureyri. Rögn-
valdur er prófessor í fiskihagfræði
við Verslunarháskólann í Björgvin
í Noregi. Hann ólst upp á Höfn í
Hornafirði og stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri, Há-
skóla íslands, Háskólann í Lundi í
Svíþjóð og víðar um heim.
(Fréttatilkynning)
-------♦ ♦ ♦
■ BLÁSARASVEIT æskunnar
heldur tónleika í Samkomuhúsinu
á Akureyri annað kvöld, sunnu-
dagskvöldið 25. apríl kl. 20.30. Á
efnisskránni er létt tónlist með
djassívafí. Stjómandi er Roar
Kvam. Með Blásarasveitinni leika
Sigurður Flosason, saxófónn,
Finnur Eydal, klarinett, Andri
Már Þórarinsson, básúna, Jacqu-
eline Simm, óbó og enskt hom,
Richard Simm, hljómborð, Pálmi
Sigurhjartarson, píanó og Ingvi
Rafn Ingvason, trommur.
í fyrrasumar varð Blásarasveit
æskunnar í 3. sæti í alþjóðlegri
keppni blásarasveita ungs fólks sem
fram fór í Ziirich í Sviss.
-------♦ ♦ ♦
■ FILMUMENN í samvinnu við
Kvikmyndafélag íslands efna til
stuttmyndahátíðar á Akureyri á
morgun, sunnudaginn 25. apríl, í
skemmtistaðnum 1929. Sýndar
verða 10 stuttmyndir, en flestar
þeirra voru sýndar á stuttmynda-
dögum sem haldnir voru í Reykja-
vík í byijun aprfl. Aðeins verður
um eina sýningu að ræða, en hún
hefst kl. 20.30.
-------♦ ♦-♦---------
■ APRÍL hraðskákmótið á vegum
TR verður haldið sunnudaginn 25.
apríl klukkan 21. Þátttökugjald er
krónur 500. 1. verðlaun verða 50%
þátttökugjalda. Þijár medalíur
verða einnig veittar.
Mosfellskórinn verður með tvær söngskemmtanir í Hlégarði um
næstu helgi.
Mosfellskórinn með
söngskemmtanir
MOSFELLSKÓRINN verður með tvær söngskemmtarnir í Hlégarði.
Hin fyrri verður föstudaginn 30. apríl nk. kl. 20.30, þar sem sérstak-
ir gestir kórsins verða Vorboðar, söngfélag eldri borgara í Mos-
fellsbæ, og kór félags eldri borgara í Reykjavík.
Að venju er eldri borgurum í
Mosfellsbæ boðið á þessa söng-
skemmtun. Aðalsöngskemmtun
Mosfellskórsins verður laugardag-
inn 1. maí nk. kl. 20.30. Báða dag-
ana verða kaffiveitingar í hléi og
dansleikur að lokinni söngskemmt-
un kórsins 1. maí.
Einsöngvari með kórnum er Ann
Andersen og hljómsveit kórsins
skipa Páll Helgason (píanó), Jón
Bjarni Jónsson (bassi) og Guðjón
Haraldsson (trommur). Söngstjóri
Mosfellskórsins er Páll Helgason.
Málþing Barnaheilla um
ofbeldi og áþján barna
MÁLÞING Barnaheilla um of-
beldi verður haldið í dag, 24.
apríl, í Háskólabíó, kl. 10.00-
15.00.
Fyrir nokkrum mánuðum ákvað
Barnaheill að halda málþing um
ofbeldi á og meðal barna. Frá þeim
tíma hafa fréttir af ofbeldi barna
og unglinga aukist talsvert. Ofbeldi
sem snýr að börnum verður skipt
í þijá meginflokka. í fyrsta lagi
ofbeldi á börnum, í öðru Iagi of-
beldi meðal barna og að síðustu
ofbeldi í umhverfí bama.
Almennt virðist ofbeldi verða
orðið snar þáttur í samfélagi okk-
ar, en í þessu sem ýmsu öðru virð-
ist tómlæti og afskiptaleysi ein-
kenna viðbrögð okkar gagnvart
börnunum.
Þetta málþing Barnaheilla miðar
að því að vekja alla til umhugsunar
um vaxandi ofbeldi í lífi barna okk-
ar og hvernig stofnanir, skólar og
foreldrar ætla að bregaðst við því.
í auglýsingu í Morgunblaðinu
22. apríl er birt dagskrá málþings-
ins. Því miður misritaðist nafn eins
fyrirlesarans. í auglýsingunni
stendur að Dr. Helgi Gunnarsson,
lektor flytji erindi um Borgarlíf og
ofbeldi. Hið rétta er að Dr. Helgi
Gunnlaugsson, lektor flytur þetta
erindi. Er beðist Velvirðingar á
þessum mistökum.
Allir eru velkomnir á málþingið.
----------♦ ♦ ♦------
■ HLJÓMSVEITIRNAR
Todmobile og Jet Black Joe
standa fyrir dansleik í Njálsbúð
Vestur-Landeyjum. Þetta er í
fýrsta skipti sem þessar hljómsveit-
ir leika saman. Dansleikurinn hefst
klukkan 23 og stendur fram eftir
nóttu. Þess má geta að Todmobile
er nú að hefja sumaryfirreið sína
og verður á næstunni t.d. í Borgar-
nesi og á Akureyri, en Jet Black
Joe er að hverfa af landi brott og
þetta er því eitt af síðustu skiptum
sem þeir spila á landinu í bili.
íslandsmeistaramót bar-
þjóna á sunnudaginn
ÍSLANDSMEISTARAMÓT barþjóna verður haldið sunnudaginn
25. aprU nk. á Hótel Sögu. Þijátíu og tveir barþjónar keppa á
mótinu, en að þessu sinni verður keppt í fordrykkjum. Keppend-
Dagskráin á sunnudaginn hefst
með því að 14 umboðsaðilar munu
kynna vörur sínar og að því loknu
verður framreiddur kvöldverður.
Að loknum kvöldverði hefst ís-
landsmeistarakeppnin og einnig
verður boðið upp á fjölbreytt
skemmtiatriði. Að lokinni verð-
launaafhendingu mun hljómsveitin
Sambandið leika fyrir dansi til
klukkan þijú eftir miðnætti.
íslandsmeistarinn mun, ásamt
Margréti Gunnarsdóttur og Þor-
keli Ericssyni, en þau sigruðu á
mótinu 1991 og 1992 taka þátt í
Heimsmeistaramóti barþjóna sem
haldið verður í Vín í Austurríki í
nóvember nk. Keppnin á sunnu-
daginn er öllum opin og verð miða
er 3.900 með kvöldverði. Miðasala
verður föstudaginn 23. aprfl og
laugardaginn 24. apríl í söludeild
Hótels Sögu.
Barþjónaklúbbur íslands heldur
upp á 30 afmæli um þessar mund-
ir, en klúbburinn var stofnaður 29.
maí 1963. Af þessu tilefni koma
hingað formenn allra barþjóna-
klúbba á Norðurlöndum og einnig
varaformaður alþjóðabarþjóna-
samtakanna. Þessir aðilar verða
gestir klúbbsins á íslandsmeist-
aramótinu.
í tilefni af þessum tímamótum
gefur klúbburinn út sitt fyrsta
félagsblað og er það 44 síður að
stærð.
(Fréttatilkynning.)
Bjöllukórinn
Yortónleikar hjá bjöllu- og
barnakórum Bústaðakirkju
A VEGUM Bústaðakirkju starfa
bjöliukór og tveir barnakórar.
Kórarnir efna til sameiginlegra
tónleika í lok vetrardagskrár
sunnudaginn 25. apríl kl. 17.00.
Yngri barnakórinn syngur
nokkur lög. Bjöllukórinn bæði leik-
ur og syngur. Eldri barnakórinn
flytur söngleikinn Annie, sem seg-
ir frá ungri stúlku á munaðarleys-
ingjahæli sem býðst stutt dvöl hjá
milljónamæringi sem síðan ætt-
leiðir stúlkuna.
Tónlist er eftir Martin Charnin
og söngtextar eftir Aðalstein Ás-
berg Sigurðsson. Lovísa Friðleifs-
dóttir þýddi lesinn texta.
Erla Þórólfsdóttir stjórnar
barnakórum og Guðni Þ. Guð-
mundsson stjórnar bjöllukór.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Fréttatilkynning