Morgunblaðið - 24.04.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993
35
MESSUR
Akureyrarprestakall: Vetrar-
starfi sunnudagaskólans lýkur með
stuttu ferðalagi sem hefst kl. 10.30
og verður komið til baka um kl.
12.30. Guðsþjónusta verður í kirkj-
unni kl. 14 á morgun. Þorgrímur
Daníelsson cand.theol predikar.
Ræðuefni: Ein hjörð og einn hirðir -
Hvers vegna þá stríð. Kór Verk-
menntaskólans syngur við athöfnina
undir stjórn Michaels Jóns Clarke.
Aðalsafnaðarfundur Kvenfélags Ak-
ureyrarkirkju verðu í Safnaðarsal
eftir guðsþjónustu. Æskulýðsfélagið
heldur fund í kapellunni kl. 17 og
biblíulestur verður í Safnaðarheimili
á mánudagskvöld.
Glerárkirkja: Fjölskylduguðs-
þjónusta á morgun kl. 11.
Tillaga meirihluta sveitarstjórnar Skútustaðahrepps
Skóli verði í Reykjahlíð
Rannveig Jósefsdóttir verður
104 ára í dag, en með henni á
myndinni er dóttir hennar Freyja
Jóhannsdóttir.
Rannveig
Jósefsdótt-
ir 104 ára
RANNVEIG Jósefsdóttir er 104
ára í dag, laugardaginn 24. apríl,
en hún dvelur nú á handlækninga-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Rannveig fæddist á Eyrarlandi,
sem þá var sveitabær ofan Akur-
eyrar, þar sem nú stendur Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Hún fluttist
að Kroppi í Eyjafirði níu ára gömul.
Hún stundaði kaupavinnu og var í
vist um nokkurra ára skeið, en
stærstan hluta starfsævi sinnar vann
hún hjá Gefjun, eða í um fjörutíu ár.
Morgunblaðið/Benjamín
Leikendur
HELGA Agústsdóttir og Stefán Guðlaugsson í hlutverkum sínum
í leikritinu Ljón í síðbuxum.
Freyvangsleikhúsið í Eyj afj arðarsveit
Sýningum á Ljóni í
síðbuxum fer fækkandi
SÝNINGUM Freyvangsleikhússins á verkinu Ljóni í síðbuxum fer
nú fækkandi, en leikritið verður sýnt í Freyvangi í kvöld, laugar-
dagskvöld og er það 7. sýning.
Leikritið Ljón í síðbuxum samdi fjallað er um íslenska brotamenn
höfundurinn, Björn Th. Björnsson á 18. öld sem dæmdir voru til
með hliðsjón af sögulegri skáld- betrunar í tugthúsum Kaup-
sögu sinni Haustskipum, þar sem mannahafnar.
Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar
Jón Laxdal hlýt-
ur starfslaun lista-
manns til eins árs
Björg Baldvinsdóttir o g Steindór
Steindórsson fá viðurkenningar
JÓN Laxdal hlaut starfslaun listamanns frá Akureyrarbæ,
en tilkynnt var um úthlutun starfslauna listamanns í hófi sem
menningarmálanefnd Akureyrarbæjar efndi til á Fiðlaranum
á sumardaginn fyrsta. Við sama tækifæri veitti nefndin Björgu
Baldvinsdóttur og Steindóri Steindórssyni viðurkenningar.
Jón Laxdal er fjórði listamaður-
inn sem hlýtur starfslaun bæjarins,
en áður hafa Kristjana F. Arndal,
Jón Hlöðver Áskelsson og Margrét
Jónsdóttir fengið starfslaun til eins
árs. Jón er Akureyringur, fæddur
árið 1950 en hann er skáld og
myndlistarmaður.
Viðurkenningar
Viðurkenningar menningarmála-
nefndar hlutu að þessu sinni þau
Björg Baldvinsdóttir óg Steindór
Steindórsson. Um þessar mundir
eru 50 ár liðin frá því Björg steig
fyrst á svið hjá Leikfélagi Akur-
eyrar, en á tímabilinu hefur hún
leikið og sungið í um 40 leikritum.
Auk leikstarfsins hefur hún tekið
mikinn þátt í sönglífi bæjarins.
Steindór hlaut viðurkenningu
fyrir fræðimanns- og ritstörf, en
hann er mikilvirkur rithöfundur og
þýðandi. Hefur hann ritað fjölmarg-
ar greinar og bækur um sérsvið
sitt, grasafræðina og einnig þýtt
og búið til prentunar mörg stórverk
um ísland og íslenska náttúru auk
þess sem hann ritstýrði tímaritinu
Heima er best um 33 ára skeið.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Starfslaun
JÓN Laxdal skáld og myndlistarmaður hlaut starfslaun listamanns
á Akureyri til eins árs, en það er Sigríður Stefánsdóttir forseti
bæjarstjórnar Akureyrar sem er með Jóni á myndinni.
o g skólasel á Skútustöðum
Björk, Mývatnssveit.
MEIRIHLUTI sveitarsljórnar Skútustaðahrepps leggur til að
aðalskóli sveitarinnar verði i Reykjahlíð, en skólasel verði
fyrir þrjá yngstu árgangana á Skútustöðum. Skýrsla Fræðslu-
skrifstofu umdæmisins um kennslufyrirkomulag í hreppnum
hefur verið til umfjöllunar I sveitarsljórn, en í henni kom
m.a. fram að ýmis rök er hníga að því að hagkvæmt sé fyrir
skólastarfið og rekstur grunnskólans að kennsla fari fram á
einum stað og að útilokað er að koma kennslu á einum stað
í framkvæmd nema nota til þess nýtt skólaliús i Reykjahlíð.
Helstu annmarkar á því eru að
því er fram kemur í skýrslunni, að
aðstaða til leikfimikennslu er óhent-
ug í Reykjahlíð og akstursleið til
skóla lengist umtalsvert fyrir hluta
nemendanna. I grunnskóla Skútu-
staðahrepps eru nú liðlega 80 nem-
endur og því um 8 nemendur í hveij-
um árgangi.
30 kílómetra leið
„Þegar skólahús er til staðar sem
rúmar skólastarfið getur vart nokk-
uð annað en langar akstursleiðir til
skólans réttlætt skiptingu nem-
endahópsins. Frá þeim bæjum sem
fjærst liggja Reykjahlíð.eru um 30
kílómetrar til skólans. Að öllu jöfnu
er hægt að skipuleggja skólaakstur
án lítils aukakostnaðar þannig að
nemendur þurfa ekki að fara venju-
lega lengri leið til skólans en stysta
vegalengd er. Fyrir þá sem lengst
eiga í Reykjahlíð munu 12 til 18
kílómetrar bætast við aksturleið til
skólans,“ segir í skýrslunni.
í samráði við skólastjóra hafa
verið kannaðir ýmsir kostir í skipu-
lagi skólastarfsins í þá veru að gera
vinnuviku nemenda þægilega og að
félagsstörf falli sem best að stunda-
skrá.
Þriðjungur á móti
Sveitarstjórn hefur kynnt skýrslu
fræðsluskrifstofunnar á almennum
fundi og hafa hörð viðbrögð komið
fram frá um þriðjungi íbúa sveitar-
innar í formi fundarsamþykktar og
undirskriftarlista þar sem lýst er
eindreginni andstöðu við allar
breytingar á kennslufyrirkomulagi
í sveitinni. Sveitarstjórn hefur beitt
sér fyrir viðræðum við foreldra og
talsmenn þeirra er mótmælt hafa
breytingum í þá átt að skólastarf
verði flutt að Reykjahlíð. Þessir
fundir leiddu ekki til lausnar á
ágreiningi sem uppi er um kennslu-
fyrirkomulag.
Sveitarstjórn hefur verið að leita
eftir stuðningi fræðsluskrifstofu við
þá hugmynd að kenna þrem yngstu
árgöngum barna úr suðurhluta
sveitarinnar að Skútustöðum næstu
þrjú ár, en með því móti yrði leit-
ast við að komatil móts við athuga-
semdir um langan skólaakstur auk
þess að nemendahópurinn á þessu
svæði næstu þrjú ár gefur tilefni
til að geta myndað bekkjardeild.
Fræðsluskrifstofan hefur lýst því
yfir að hún muni beita sér fyrir að
kennslumagni til skólahverfisins
verði úthlutað í samræmi við þetta
fýrirkomulag verði það ákveðið.
Kristján
ELDVARNIR OG ÖRYGGISKERFI
Rafmagnsverkstæði Tómasar og Vari halda
kynningu á eldvarna- og öryggiskerfum á
Hótel KEA þriðjudaginn 27. apríl kl. 16.00-19.00.
Raflagnaverkstæði
Tómasar
VARI
Kjarnalundur á Akureyri
Náttúrulækingahreyfingin óskar eftir að ráða verkefn-
isstjóra í sex mánuði. Verkefnið felst í áætlanagerð,
stefnumótun og markaðssetningu á fyrstu starfsemi
Kjarnalundar ásamt ýmsum öðrum verkefnum.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi menntun og
reynslu í stefnumótun og markaðssetningu.
Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 10. maí nk. til
Náttúrulækningafélags Akureyrar, pósthólf 327, 602
Akureyri, eða skrifstofu Náttúrulækningafélags ís-
lands, Laugavegi 20b, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veittar í símum 96-26200 virka
daga frá kl. 10-12 og 91-28191.