Morgunblaðið - 24.04.1993, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993
Minning
Skúli Pálsson
Fæddur 8. október 1906
Dáinn 31. mars 1993
Langri lífsgöngu merkismanns
er lokið. Skúli Pálsson andaðist
fyrir stuttu, á 87. aldursári. Hann
skilaði drjúgu dagsverki og verður
minnst sem eins af þeim mönnum
er „settu svip á öldina“. Framsýni
hans og brautryðjendastarf í fisk-
eldi vegur þar þyngst - auk margs
annars sem hann tók sér fyrir
hendur.
Starfssaga Skúla á Laxalóni er
kunn flestum sem komnir eru á
miðjan aldur og þar yfir. Hann
gerði henni og skil ásamt öðrum
þáttum lífs síns í ævisögu sinni,
Baráttusögu athafnamanns, sem
Æskan gaf út árið 1988. Það verð-
ur því ekki tíundað hér.
Það var einmitt í tengslum við
ævisögu Skúla sem við kynntumst
sumarið 1987 er ég var ráðinn til
að rita hana. Sú vinátta, sem þá
tókst með okkur, hélst alla hans
tíð. Þó að rúm hálf öld skildi okk-
ur að í árum þá mættumst við í
sameiginlegum áhuga okkar á líf-
inu og tilverunni - og aldursmun-
urinn hvarf sem dögg fyrir sólu.
Skúli var einstakur maður og
eftirminnilegur fyrir margra hluta
sakir. Hann var skarpskyggn á
samtíð sína, hugmyndaríkur og
áræðinn. Hann var maður athafna
en ekki orða, stórlyndur og fylginn
sér í öllum málum. Hann var ör-
geðja og afar fastur fyrir ef því
var að skipta enda þótti flestum
betra að eiga hann að vini en óvini.
Undir hrjúfu yfirborði hans sló þó
funheitt hjarta eins og títt er um
skapríka menn. Það fékk sá sem
þetta ritar oft að reyna.
Skúli fylgdist alla tíð vel með
því sem var að gerast í kringum
hann. Fyrir utan fiskeldið og kirkj-
unnar mál áttu þjóðmálin huga
hans. Þar hafði hann eindregnar
skoðanir og var gagnrýninn á
margt, hvort sem hans eigin stjóm-
málaflokkur átti í hlut eða ekki.
Hann hafði verulegar áhyggjur af
minnkandi þorskstofni kringum
landið og lagði til á opinberum
vettvangi að menn athuguðu
möguleika á því að rækta þorsk á
landi og í sjókvíum, líkt og gert
er með silung og lax. Starfssaga
Skúla sýnir að hann hefur alla tið
verið framsýnn og því kæmi það
ekki á óvart að þessi hugmynd
hans ætti eftir að verða að veru-
leika í nánustu framtíð - þó að
mörgum finnist þorskræktun í
landi heldur langsóttur veruleiki
nú sem stendur.
Það var gæfa Skúla að eignast
Svövu Skaftadóttur fyrir lífsföru-
naut, þá miklu gæðakonu. Þau
lifðu í farsælu hjónabandi í meira
en hálfa öld og eignuðust þijá syni
sem allir eru kunnir af dugnaði
og drengskap. Það leyndi sér ekki
í samræðum við Skúla hve fjöl-
skyldan var honum kær - enda
mátti hann líka vera stoltur af
henni.
Það er sjónársviptir að Skúla
gengnum. Eg sakna hlýja hand-
taksins og auðnustundanna sem
við áttum saman á fallegu heimili
þeirra Svövu. Stundum er sagt að
maður komi í manns stað - en það
er ekki rétt. Enginn kemur í stað-
inn fyrir Skúla á Laxalóni. Hann
var stórbrotinn maður og átti eng-
an sinn líka. Margir drúpa nú höfði
við fráfall þessa heiðursmanns og
minnast hans með virðingu og
þökk.
Guð blessi minningu Skúla Páls-
sonar.
Eðvarð Ingólfsson.
Eins og títt var' um unga pilta
er ólust upp við sjávarsíðun á Vest-
íjörðum, fór Skúli Pálsson frá
Kirkjubóli í Korpudal til sjós ungur
að árum. Fyrst á smábátum, síðar
á togurum. Þá var landhelgin þijár
mílur frá ströndinni og toga mátti
inn í hveijum firði. Skafið var þvers
og langs yfír öll hrygningarsvæði
án nokkurs tillits til hveijar afleið-
ingarnar yrðu. Þessi nýja veiðiað-
ferð að drepa allt kvikt, sem botn-
vörpunni var strokið yfir, ofbauð-
hinum unga manni. Hvemig gæti
þessi rányrkja endað nema á einn
veg og hann fór að hugsa um fram-
tíðina. Væri ekki hægt að ala upp
físk til manneldis í tjörnun eða
nótum innan íjarðar? Þessi hugsun
gagntók hann algjörlega svo að
hann axlaði sinn sjópoka og gekk
í land. Hann hafði lesið um fískteg-
und sem ræktuð var í Danmörku,
sem hafði' meiri vaxtarhraða en
aðrir fískar sem við þekktum. Var
því ekki staldrað lengi við í landi,
heldur siglt til Danmerkur. Þar
kynnti hann sér eldi á regnbogasil-
ungi.
Síðan kemur hann heim með
þeim ásetningi að setja hér á stofn
fiskirækt. Fyrsta verkefnið var því
að leita fyrir sér að landi sem hefði
þá höfuðkosti til að bera að hafa
hreint vatn með stöðugu vatns-
magni, bæði vetur sem sumar,
heitt vatn svo hægt væri að ala
upp fiskinn á vetrum og hallandi
land svo vatnið nýttist betur. Fór
Skúli víða um nágrenni Reykjavík-
ur, m.a. upp að Grafarholti. Kom
hann þar að læk sem spratt undan
holti handan Rauðavatns. Var hér
um uppsprettuvatn að ræða sem
þrýtur ekki í þurrkum og frosti. í
bakaleiðinni gekk hann fram á
græna laut í holtinu. Þetta fannst
Skúla einkennilegt, svona seint á
haustdögum. Við athugun sá hann
að heitt vatn seitlaði undan klöpp
í holtinu. Er hann hafði rótað til
með staf sínum óx vatnið. Fleiri
orð um þetta eru þau, að innan
tíðar var Skúli kominn með leigu-
samning á 17 ha. úr Grafarholts-
landi. Fyrirstöður voru hlaðnar,
dammar voru grafnir og regnboga-
seiði fékk hann frá Danmörku.
Eftir tvö ár bauð hann konu
sinni og börnum inn í nýtt íbúðar-
hús að Laxalóni. Tekjur af fyrir-
tækinu voru litlar fyrstu árin. Því
byggði hann sér bakhús þar sem
hann hafði hænsni. Seldi hann egg
til Hjartar á Bræðraborgarstíg og
fékk matvörur í staðinn.
Laxalón er í þjóðbraut fyrir þá
sem leið eiga úr bænum. Því við-
aði Skúli að sér miklum fræðiritum
um ræktun á ánamöðkum og ætl-
aði að hefja ánamaðkaframleiðslu
fyrir veiðimenn sem höfðu öngla í
farteskinu. En ekkert varð úr þeirri
framleiðslu.
A þessum árum fékk Skúli oft
mikinn storm í fangið eins og vill
verða hjá mörgum frumheijanum.
Við þær aðstæður hafa margir
gefíst upp eða flust úr landi. En
Skúli fór hvergi en beitti öllum
sínum seglum til að halda sjó.
Fyrir tveim áratugum kom Skúli
austur yfír Fjalla og bað mig um
að koma með sér niður í Ölfus og
skoða þar læk. Það var norðan-
kuldi og það marraði í snjónum.
„Hvað er maðurinn nú að fara og
það um hávetur?" spurði ég konuna
hans. „Það veit ég ekkert, en ég
ætla inn að fá mér kaffí hjá henni
Geiru.“ Þegar við vorum komnir
niður að Þurá sagði ég: „Héma
er lækur.“ „Já, við látum þennan
vera.“ Niður við Þóroddsstaði var
stoppað og við fórum út úr bílnum.
„Hér er lækur sem ég ætla að
mæla hitann í og svo skulum við
ganga upp að fjallinu og athuga
lækinn þar og mæla.“ Upp við fjall-
ið þrýstist vatnið upp úr jörðinni.
„Þú elur engan físk í þesu kalda
vatni,“ sagði ég. „Nei, en sérðu
ekki gufuna, sem stígur upp af
engjunum hans Engilberts á
Bakka. Hér er hiti undir alls stað-
ar, það er bara að bora eftir hon-
um. Hér er vatn, hér er hiti og hér
er halli,“ sagði Skúli. Innan stutts
tíma var hann búinn að kaupa
sneið af Þóroddsstaðalandi, sem
hann nefndi Fiskalón.
Nokkrum áram síðar var hann
búinn að kaupa jarðirnar Hvamm
og Hvammsvík í Kjós. Hóf hann
þar sjóeldi. Síðar ætlaði hann að
bora fyrir heitu vatni og grafa vog
inn í landið. Ef hann yrði heppinn
með boran ætlaði hann að veita
heita vatninu út í víkina til að at-
huga hvaða áhrif það hefði á ís-
myndun þar.
Nú er dagur að kveldi. Fyrir
tveim áram ókum við vítt og breitt
um Ölfusið. Hans vökulu augu sáu
þar líf í hveijum hlut.
Nú hefur hann hneigt höfuð sitt
fyrir hinum stolta sáðmanni lífsins.
Ef til vill sest hann að við bæjar-
lækinn heima sem öldum saman
hafði það hlutverk að brynna bú-
peningi, en með hugkvæmni
mannsins gæti hann kannski mett-
að þúsundir manna.
Eitt af síðustu orðum hans var
um vatn sem fossaði fram milli
steina þar sem það tók í sig súr-
efni til að færa fiskihjörðinni líf.
Innandyra í hlýjunni á Laxalóni,
skortir mig eiginlega orð til að
lýsa réttilega móttökunum þar. Til
að afgreiða málið fljótt væri hægt
að segja: „Þar réði konan.“ En það
er ekki rétt, því að bóndinn hafði
þar engu síður áhrif og líka dreng-
irnir meðan þeir bjuggu heima.
Útífrá vora þau hjónin sem einn
maður. Ef einhvers staðar þurfti
að rétta hjálparhönd vora þau
bæði mætt þar.
Ég var heimagangur hjá þeim
hjónum um áraraðir. Var þá oft
tekið í spil. Þegar Ólafur var heima
var spilað brids, en spilaður manni
ef við voram þijú. Skúli var góður
spilamaður og var ekki um annað
að gera fyrir okkur Svövu en að"
reyna að spila saman svo hann
ynni ekki alltaf, en það gekk oft
brösótt.
Svava kona hans er Skaftadóttir
af Varmadalsætt á Kjalarnesi. Ef
sameiginleg ættareinkenni fylgja
þeirri ætt þá er það ást og blíða.
Því er ekki hægt að segja um
SvÖvu að eftir lát manns síns
standi hún uppi ein. Hún mun aldr-
ei standa uppi ein, því að hún er
umvafin kærleik ættar sinnar.
Við hjónin og ættingjar okkar
sendum Svövu og aðstandendum
öllum alúðarkveðjur. Guð blessi
Skúla Pálsson.
Oddgeir Ottesen.
jllesíííuc
r
a
morgun
ÁSKIRKJA: Ferming og altaris-
ganga kl. 14. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Org-
anisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson. Tónleikar
Barna- og Bjöllukórs kirkjunnar
kl. 17.
DÓMKIRKJAN: Kl. 9. Helgistund
Zontakvenna. Kl. 11. Ferming og
altarisganga. Dómkórinn syngur.
Organisti Marteinn H. Friðriks-
son. Prestarnir. Barnastarf í
safnaðarheimilinu á sama tíma.
Eftir messu verður í safnaðar-
heimilinu fundur í Safnaðarfélagi
kirkjunnar. Efni: Tónlistarstarf.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 14. Prest-
ur sr. Halldór S. Gröndal. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson. Þriðju-
dag: Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
leikur í 10 mínútur. Fyrirbænir,
altarisganga og léttur hádegis-
verður. Þriðjudag: Biblíulestur kl.
14. Sr. HalldórS. Gröndal annast
fræðsluna. Kaffiveitingar.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
stund kl. 10. Hin dulda Evrópa.
Einar Karl Haraldsson. Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Barnastarf á sama tíma. Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð
syngur undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur. Organisti Hörður
Áskelsson. Listvinafélag Hall-
grímskirkju: Orgeltónleikum
Hauks Guðlaugssonar, sem vera
áttu kl. 20.30, er frestað um viku
vegna veikinda. Þriðjudag: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgun-
messa kl. 10. Sr. Arngrímur Jóns-
son. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Kirkjubíllinn fer um Hlíðar og
Suðurhlíðar á undan og eftir
messu. Messa kl. 14. Sr. Tómas
Sveinsson.
Mánudag: Bilbíulestur kl. 21.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru í
kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.
Fimmtudag: Kvöldsöngur með
Taizé tónlist kl. 21.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Fermingar-
messa kl. 11. Prestur sr. Flóki
Kristinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kór Langholtskirkju
(hópur lljsyngur. Barnastarf á
sama tíma. Aftansöngur alla
virka daga kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Jón D. Hróbjarts-
son. Organisti Ronald Turner.
Guðspjall dagsins:
(Jóh. 10). Ég er góði
hirðirinn.
Barnastarf á sama tíma í umsjá
Þórarins Björnsson. Heitt á
könnunni eftir messu. Fimmtu-
dag: Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
leikur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Munið kirkjubílinn. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Miðvikudag: Bæna-
messa kl. 18.20. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Fermingarmessa kl. 10.30 og kl.
13.30. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Organisti Há-
kon Leifsson. Barnastarf á sama
tíma. Börn vinsamlega gangi inn
í kjallara. Miðvikudag: Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta Árbæjarsafnaðar
kl. 11. Altarisganga. Organleikari
Sigrún Steingrímsdóttir. Barna-
guðsþjónustur verða í Ártúns-
skóla og Selásskóla kl. 11. Ferm-
ingarguðsþjónusta Grafarvogs-
safnaðar kl. 14. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 við lok
barnastarfsins. Barnakórinn
syngur. Organisti Daníel Jónas-
son. Vorferð barnastarfsins eftir
hádegi. Brottför frá kirkjunni kl.
13.30. Stórsamkoma KFUM og
K, SÍK og KSH, kl. 17. Samkoma
ungs fólks með hlutverk kl.
20.30. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í Safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson.
Prédikun: Sigfús B. Ingvason.
Lestur: Ragnhildur Hjaltadóttir
og Valdimar Ólafsson. Organisti
Violeta Smid. Aðalsafnaðarfund-
ur Hólabrekkusafnaðar verður
haldinn eftir guðsþjónustuna.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. í Fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn. Ferm-
ingarguðsþjónusta í Árbæjar-
kirkju kl. 14. Organisti Sigurbjörg
Helgadóttir. Vigfús Þór Arnason.
HJALLAKIRKJA: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 10.30 og kl. 14.
Kór Hjallakirkju syngur. Organisti
Oddný Þorsteinsdóttir. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11. Síðasta samvera vetrar-
ins. Tónleikar í Kópavogskirkju
kl. 17. Kirkjukórinn flytur lög eftir
innlenda og erlenda höfunda og
þýska messu eftir F. Schubert.
Tónleikunum lýkur með helgi-
stund. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Dagur Kvenfélags
Seljasóknar. Guðsþjónusta í um-
sjón kvenfélagskvena kl. 14. Sig-
rún Viggósdóttir prédikar. Kór
félagsins syngur. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Kaffisala að lok-
inni guðsþjónustu. Sóknarprest-
ur.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjón-
usta kl. 14. Aðalfundur safnaðar-
ins eftir messu. Kaffiveitingar.
Safnaðarprestur.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Einar
Eyjólfsson.
KFUM/KFUK, SÍK, Háaleitis-
braut 58-60: Stórsamkoma í
Breiðholtskirkju kl. 17. Upphafs-
orð hefur Jón Baldvinsson.
Ræðumaður sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson. Barnastundir fyrir
eldri og yngri börn. Bænastund
kl. 16.30.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Aðalfundur safnaðarins verður í
safnaðarheimilinu að messu lok-
inni kl. 15. Kaffiveitingar. Sóknar-
prestur og sóknarnefnd.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 14.
Aðalsafnaðarfundur að lokinni
messu. Svavar Stefánsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 14. Pylsuveisla
á Stað eftir messu.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14. Ólafur Þórisson
prédikar.
BESSASTAÐAKIRKJ A: Guðs-
þjónusta kl. 14. Biskup íslands,
herra Ólafur Skúlason, prédikar.
Séra Bragi Friðriksson.
GARÐASÓKN: Sunnudagaskól-
inn efnir til vorferðar í Húsdýra-
garðinn. Farið verður frá Kirkju-
hvoli kl. 13. Foreldrar eru vel-
komnir með. Sr. Bragi Friðriks-
son.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma í dag laugardag kl. 11.30
í kirkjunni í umsjón Hauks Jónas-
sonar. Kirkjuskóli yngstu barn-
anna í safnaðarheimilinu kl. 13 í
umsjón Axels Gústafssonar.
Skráðir verða þátttakendur í vor-
ferðalag barnastarfsins 1. maí
nk. á báðum stöðum. Fermingar-
guðsþjónustur sunnudag kl. 11
og kl. 14. Altarisgagna ferming-
arbarna og aðstandenda mánu-
dag kl. 19.30. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Síðasta
barnaguðsþjónusta vetrarins
verður í Borgarneskirkju á morg-
un kl. 11. Sóknarprestur.
HRAUNGERÐISKIRKJA: Ferm-
ing kl. 13.30. Barnaguðsþjónusta
leikskólabarna i Þingborg nk.
þriðjudag kl. 16. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson.
VILLINGAHOLTSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta leikskóla-
barna í Þjórsárveri nk. þriðjudag
kl. 14. Barnaguðsþjónusta
grunnskólabarna í Villingaholts-
skóla nk. miðvikudag kl. 14.10.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.