Morgunblaðið - 15.01.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1995 23
„Stjórnmálamenn þurfa að búa til al-
veg nýjar leikreglur fyrir fjárfesta sem
leiða til uppbyggingar atvinnustarf-
seminnar," segir Edda Helgason.
EDDA Helgason segir að reglur um fjárfestingar útlendinga séu
eins og að bjóða einungis verstu konfektmolana.
sem kvenmaður inn í karlaheim
fjármálanna.
„Ég velti því ekki svo mikið fyrir
mér þá,“ segir hún þegar þetta ber
á góma. „Þegar ég stofnaði Hand-
sal leit ég engan veginn svo á að
ég væri komin í fremstu röð heldur
sá ég tækifæri hér á landi sem ég
gat hugsað mér að fást við. Marg-
víslegar breytingar urðu á fjár-
magnsmarkaðnum, sem mér fund-
ust áhugaverðar. Þegar fyrirtæki
er stofnað er annað hvort að duga
eða drepast. Það hafði ég að leiðar-
ljósi og hef í raunar enn í dag.“
Valddreifing fjármagns
Edda segir fjármagnsmarkaðinn
hafa þróast hraðar en hún átti von
á. Frelsi sé orðið mun meira og þar
hafí EES-samningurinn haft tölu-
verð áhrif. „Það sem mér finnst þó
einna eftirtektarverðast, ef litið er
enn lengra til baka, er að peninga-
valdið hefur færst á miklu fleiri
hendur en það var áður.
Það er mjög áhugavert að skoða
hvernig markaðurinn hefur breyst.
Lífeyrissjóðirnir eru til dæmis orðn-
ir mun stærri en áður og saman-
lagðar eignir þeirra eru í raun meiri
en í bankakerfinu sjálfu. Auk þess
hefur aðgangur að tjármagni einnig
breyst verulega."
Þegar Edda er beðin að benda á
eitthvað sem hún saknar eða eitt-
hvað sem hefur ekki þróast í átt
til þeirra erlendu markaða sem hún
þekkir hvað best segir hún að þar
komi margt til greina. „Mér finnst
til dæmis ekki nægilega vel komið
í veg fyrir hagsmunaárekstra, en
það er ef til vill erfitt vegna þess
hversu þjóðfélagið er lítið.
í öðru lagi er ákvarðanataka á
íslandi mjög sein og einkennist af
nefndum. Erlendis gerast hlutirnir
miklu hraðar og ef eitthvað er að
gerast er þess vegna unnið alla
nóttina.
Ég skil að vissu leyti að þetta
kemur til vegna óöryggis og
reynsluleysis. Ég tel þó að ákveðnir
stjórnendur ættu að hafa leyfi til
að bregðast við fyrr og þurfa ekki
alltaf að leita til stjórna. Menn eru
kannski að íhuga málin í margar
vikur, en þá eru tækifærin ef til
vill liðin hjá. Markaðurinn er sí-
breytilegur, ekki síst nú þegar frels-
ið er orðið meira.
Sem betur fer held ég að skiln-
ingur fari vaxandi samhliða því að
stefnumótun eykst í fyrirtækjum.
Það verður gaman þegar hlutirnir
fara að gerast á fimm dögum í stað
fimm vikna!"
Telur sérhæfingu
af hinu góða
Edda telur mikilvægt að fjár-
málafyrirtækin séu með ákveðna
sérhæfingu og starfar Handsal
svotil eingöngu á fyrirtækja- og
stofnanamarkaði. „Við erum þó
með einstaklingsviðskipti en þau
eru þá í stærri kantinum," segir
hún.
- Þú hefur töluvert gagnrýnt að
önnur verðbréfafyrirtæki skuli vera
annað hvort í eigu banka eða í
tengslum við ákveðna banka. Er
erfitt að keppa á þessum grundvelli?
„Samkeppnin er mjög mikil en
ég held að þjónustan skipti verulegu
máli. Fyrirtækin eru ekki annað en
fólkið sem þar vinnur og við erum
þjónustufyrirtæki. Við stöndum
verr að vígi að því leyti að við höf-
um ekki þá sömu uppsprettu af
bankabréfum, sem bankarnir selja
og dótturfyrirtæki þeirra sjá um.
Það er í raun stór flokkur verðbréfa
sem við erum ekki aðilar að. Við
verðum því að benda viðskiptavin-
um okkar á að fara annað til að
kaupa bréfin, sem við erum ein-
göngu með á eftirmarkaði.
Sömuleiðis stöndum við kannski
hallari fæti varðandi ákveðna teg-
und ráðgjafaverkefna, þar sem
bankarnir hafa upplýsingar um að
fýrirtæki þarfnist aðstoðar. Því er
hugsanlega vísað til viðkomandi
verðbréfafyrirtækis. Auðvitað eru
það síðan fyrirtækin sjálf sem hafa
úrslitaorðið um val á verðbréfafyrir-
tækjum eða hvort þau vilja bjóða
verkið út.“
Tekjudreifing eykst
Þegar talið snýst að útboðum og
að gagnrýni Eddu þar að lútandi
segist hún hafa fundið fyrir smá-
vægilegum breytingum að undan-
förnu. Hún bendir á að þar komi
þróun markaðarins einnig inn í og
aðlögunin að EES-reglum. „En
kannski vegna þess að ég lét heyra
hátt í mér og vann jafnhliða að því
að fá fyrirtæki og stofnanir til að
leyfa okkur að bjóða í verk, sem
kostar þá ekkert, höfum við fengið
fleiri tækifæri. Þa'ð eru þó ákveðnar
stofnanir sem útiloka okkur ennþá.“
Hún tekur fram að hún telji ekki
nauðsynlegt að allir hafi útboð.
„Hins vegar finnst mér frumskilyrði
að ríkisstofnanir og -fyrirtæki sem
eru í eigu almennings reyni að fá
besta tilboðið með því að leyfa sem
flestum að taka þátt.“
Hún leggur einnig áherslu á að
hið opinbera verði einkavætt í aukn-
um mæli, enda sé það stefnan alls
staðar í heiminum. „Við erum mjög
aftarlega á merinni," segir hún og
nefnir dæmi af einkavæðingu pósts
og síma í ýmsum löndum.
„Með einkavæðingu eykst aðhald
og samkeppni. Af hveiju má al-
menningur ekki eiga fyrirtæki eins
og Landsvirkjun og bankan'a í formi
hlutabréfa?“ spyr hún svo. „Ég tel
þetta einu leiðina til að lækka skuld-
ir eða færa þær frá ríkinu, en póli-
tískur vilji er ekki fyrir hendi. Ég
held að með aukinni einkavæðingu
myndi raunverulegur markaður
myndast hér á landi, því breiddin
væri miklu meiri.“
Verðbréfaþingið marki sér
stefnu og skilgreini sig
Þegar Edda er innt eftir gagn-
rýni sinni á Verðbréfaþingið segir
hún að kominn sé tími til að þingið
skilgreini sjálft sig betur og marki
sér stefnu. „Ætla þeir til dæmis
að verða varðhundar á eiginfjár-
stöðu fyrirtækja? Þingið á að mínu
mati að passa upp á að upplýsinga-
flæði sé fyrir hendi og fylgja því
eftir. Þeir eiga að gæta þess að fjár-
festar hafi alltaf bestu upplýs-
ingarnar til þess að geta myndað
raungengið á bréfunum. Það er
ekki hægt að búa til fastar reglur
um lágmarks eigiðfjárhlutfall því
rekstur fyrirtækja er svo ólíkur.
Sum fyrirtæki geta verið með 5%
eigið fé og þurfa ekki meira, önnur
hafa aftur á móti þörf fyrir 50%
eigið fé. Hveijir eiga að dæma það?
Ef þeir ætla sér að vera dómarar
þá þarf að skilgreina það sérstak-
lega. Verðbréfaþingið er það nýtt
og þróunin hefur verið svo hröð.
Skilgreiningin um hlutverkið þarf
að vera til staðar. Lög og reglur
er eitt og hlutverk og markmið
annað.“
- Hvað finnst þér um að bjóða
almenningi hlutabréfakaup á rað-
greiðslum, eins og sum verðbréfa-
fyrirtækjanna gerðu nú fyrir jólin?
„Hlutabréfakaup eru alltaf
áhætta og þar af leiðandi á ekki
að slá lán fyrir slíkum kaupum,
sérstaklega ekki einstaklingar.
Þarna tel ég vera hagsmunaárekst-
ur, því verðbréfafyrirtækin vilja
selja hlutabréf og fá sölulaun en
hagsmunir einstaklinga eru ekki
endilega í fyrirrúmi. Ef fólk tapar
höfuðstólnum er skattaafslátturinn
aðeins brot af því.
Ég legg alltaf áherslu á við kaup-
endur hlutabréfa að þeir verði að
vera tilbúnir að tapa öliu fénu.
Auðvitað er hægt að ná góðri ávöxt-
un og það hefur sýnt sig í flestum
löndum að ef fjárfest er í hlutabréf-
um til lengri tíma gefur það vel af
sér. Hins vegar ef samsetningin er
ekki rétt eða keypt er á röngum
tíma þá getur allt farið niður á við.“
Fjárfestingin er engin
- Finnur þú fýrir auknum hag-
vexti hjá fyrirtækjum þannig að þau
séu farin að fjárfesta í meira mæli?
„Ég vil orða það svo að fyrirtæki
eru að ljárfesta á skammtímamark-
aði sem er ekki fjárfesting í raun.
Einstaklingar eru að selja eignir og
erlend fyrirtæki koma ekki hingað
með fjármagn. Því á sér stað nán-
ast engm fjárfesting um þessar
mundir. Ég held að stjórnmálamenn
geri sér ekki grein fyrir þessari
þróun. Þess má til dæmis geta að
áhættufjármagn er ekki frádráttar-
bært frá skatti. Ef fyrirtæki fjár-
festir og féð tapast er það ekki frá-
dráttarbært eins og víðast erlendis.
Stjórnmálamenn þurfa að búa til
alveg nýjar leikreglur fyrir fjárfesta
sem leiða til uppbyggingar atvinnu-
starfseminnar. Þeir eiga ekki að
ákveða hvaða atvinnugreinar á að
taka út heldur leyfa fólkinu í land-
inu að velja. Ég líki þessu alltaf við
listalífið, sem blómstrar hér á landi
af því listamenn hafa fijálsar hend-
ur. Ef fólk fengi að ráða myndu
áherslurnar ef til vill breytast okkur
til góða.
Sum fyrirtæki fjárfesta til að
hagræða og það er af hinu góða
en það þarf að fá sömu fyrirtækin
eða önnur til að fjárfesta í ein-
hveiju sem skapar störf.
- Hafið þið orðið vör við auknar
fyrirspurnir frá erlendum fjárfest-
um á síðustu mánuðum?
„Nei, markaðurinn hér er svo lít-
ill. Annað hvort vilja útlendingar
fjárfesta vegna þess að Island hefur
eitthvað fram yfír aðra eða vegna
áhuga á innlenda markaðnum.
Reglurnar eru þær að útlendingar
mega ekki fjárfesta í því sem raun-
verulega er áhugaverðast eins og
sjávarútvegi og orku. Þetta er sam-
bærilegt við að fá til sín gest og
hann má bara velja vondu konfekt-
molana. Það þarf að eiga sér stað
hugarfarsbreyting.“
- Að lokum langar mig til að
vita hvort þú varst kölluð í viðtal
þegar þú sóttir um stöðu Seðla-
bankastjóra fyrir tæpu ári?
Nú hlær Edda dátt um leið og
hún svarar: „Nei, nei, nei. Ég veit
ekki hversu margir voru kallaðir í
viðtal, þeir hafa eflaust verið fáir.
Ég gerði þetta af „prinsipp“-ástæð-
um. Mér fannst ég ekkert hafa síðri
þekkingu eða reynslu en ýmsir aðr-
ir til að sækja um stöðuna. Ég taldi
rétt að sækja um og láta heyra frá
mér til að sýna fram á að líka er
til fjöldi fagfólks og ekki væri úr
vegi að skoða þeirra mál einnig.“
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI