Morgunblaðið - 15.01.1995, Síða 52
póst gíró
Ármúla 6 • 150 Reykiavík
© 563 7472
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181,
IVSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
ISHSll
Tillaga um sparnað hjá Reykjavíkurborg
Dregið verði úr
framlagitil
Vinnuskólans
SPARNAÐARNEFND Reykjavík- i um á síðasta ári í llO milljónir í ár.
urborgar hefur lagt til að dregið Að sögn borgarstjóra er umfjöll-
verði úr framlögum til Vinnuskól- un ekki lokið í stjórn Vinnuskólans
ans í sumar, úr 170 til 180 milljón- | og er reiknað með að hugmyndin
verði reifuð milli umræðnanna í
borgarstjórn um fjárhagsáaitlun
borgarinnar fyrir árið 1995.
„Við vildum hins vegar koma
þessu á dagskrá," sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
„Ástæðan er ekki síst sú að það
er mjög erfítt að bjóða átta tíma
vinnu á dag fyrir 15 ára unglinga
á sama tíma og mörg hundruð ung-
linga eða ungs fólks á aldrinum 16
til 25 ára eru á atvinnuleysisskíá.
Þau eru komin á vinnualdur og
þurfa að sjá um sig sjálf en eru
atvinnulaus. Þannig að við höfum
frekar hugsað okkur að veita fjár-
munum í þann hóp.“
Skólinn mikilvægur
Ingibjörg sagði að verið væri að
kanna möguleika á útfærslu á til-
högun Vinnuskólans: Skólinn væri
mikilvægur og ljóst að unglingamir
þyrftu að hafa eitthvað fyrir stafni
á sumrin. Það þyrfti að tryggja
áfram en hvort vinnutíminn yrði
átta tímar á dag það fyndist henni
álitamál. Sagði hún að í raun hefði
Reykjavíkurborg lagt meira til
unglingavinnu og Vinnuskólans en
flest önnur sveitarfélög. Benti borg-
arstjóri á að í Kópavogi og Hafnar-
firði væri gert ráð fyrir að 15 ára
unglingar ynnu í 3'/2 tíma á dag í
fjórar vikur næsta sumar.
Veittist að
vag’nstjóra
PILTUR veittist að strætis-
vagnastjóra hjá SVR og veitti
honum áverka um kl. 23.30 á
föstudagskvöld.
Vagnstjórinn hafði sam-
band við stjórnstöð SVR og
tilkynnti að hann ætti í vand-
ræðum með 10 til 15 unglinga
í vagninum sem þá var staddur
í Aðalstræti. Stjómstöðin lét
vita af þessu til lögreglu.
Skömmu síðar lét stjórnstöð
SVR lögreglu vita að vagn-
stjórinn hefði tilkynnt að ungl-
ingamir væm farnir úr vagn-
inum og hann kominn í Hafn-
arstræti. Piltur úr hópnum
hafði þá veist að vagnstjóran-
um og veitt honum áverka á
augabrún. Vagnstjórinn fór
sjálfur á slysadeild og lét gera
að sárum sínum.
Síðar um nóttina handtók
lögreglan pilt úr hópnum á
Skúlagötu, en hann reyndist
ekki vera sá sem áverkann
veitti.
Verulegiir launamunur er
á milli starfsgreinanna níu
VERULEGUR launamunur er á milh
starfsgreinanna níu innan Verslun-
armannafélags Reykjavíkur, og einn-
ig milli einstakra starfsheita, sam-
kvæmt niðurstöðu kjarakönnunar
sem gerð var í nóvember.
Afgreiðslufólk matvöruverslana,
stórmarkaða og þeir sem starfa við
framleiðslustörf þiggja laun sam-
kvæmt lágmarks launataxta félags-
ins og hafa að meðaltali um 55 þús-
und krónur í laun. Þetta sama fólk
vinnur jafnframt mestu yfírvinnuna
sem er um 30% af laununum þegar
upp er staðið. Þetta kemur fram í
VR-blaðinu, sérútgáfu um kjaramál,
sem dreift verður til félagsmanna í
Verslunarmannafélagi Reykjavíkur
eftir helgina.
Kjarakönnunin var gerð í byijun
nóvember í öllum starfsgreinum inn-
an VR meðal 4.000 félagsmanna í
150 fyrirtækjum. Spurt var um laun,
yfirvinnu og aðrar greiðslur í októ-
ber, og jafnframt var spurt um fjölda
yfirvinnustunda, menntun, starfsald-
ur o.fl. Markmiðið var að fá upplýs-
ingar um hin raunverulega greiddu
laun innan hverrar starfsgreinar og
einstakra starfsheita.
Hvað meðalheildarlaun á mánuði
varðar leiddu niðurstöður kjarakönn-
unarinnar eftirfarandi í ljós:
í apótekum eru meðallaun starfs-
fólks með grunnskólapróf 92.160 kr.
á mánuði, en meðallaun þeirra sem
eru með stúdentspróf eru 101.481
kr. á mánuði. í bíla- og vélasölum
eru meðallaun kvenna 120.525 kr.
og meðallaun karla 140.166 kr., í
byggingarþjónustu eru meðallaun
kvenna 127.535 kr. og meðallaun
karla 149.166 kr. og í ferðaþjónustu
eru meðallaun kvenna 104.088 kr.
og meðallaun karla 116.176 kr.
Hæstu meðallaun karla
eru hjá tryggingafélögum
Hjá flutnings- og olíufélögum eru
meðallaun kvenna 122.605 kr. og
meðallaun karla 146.595 kr., hjá
heildsölum eru meðallaun kvenna
133.239 kr. og meðallaun karla
147.172 kr. Hjá iðnfyrirtækjum eru
meðallaun kvenna 117.317 kr. og
meðallaun karla 134.242 kr., hjá
tryggingafélögum eru meðallaun
kvenna 116.625 kr. og meðallaun
karla 159.413 kr. og hjá stórmörk-
uðum eru meðallaun kvenna 82.686
kr. og meðallaun karla 101.590 kr.
Kjarakönnun Verslunarmannafélags Reykjavíkur í nóvember 1994
Launakjör starfsgreina og skipting launa í grunnlaun og önnur laun
Laun,
I 1 Önnur laun
Grunnlaun
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
Stór- Apótek
markaðir
24.676
25.049
106.901
98.264
111.103
19.885
.602
23.136
17.070
36.372
106.571
Ferða- Iðn-
þjónusta fyrirtæki
Flutnings-
og olíufél.
Bíla- og
vélasölur
félög
Heild-
sölur
Bygginga-
þjónusta
Kjarakönnun í starfsgreinum iiman Verslunarmannafélags Reykjavíkur
Tuggunni fegnir
Morgunblaðið/RAX
KRISTMANN Óskarsson tré-
smiður heldur á þriðja tug
hrossa á Litla-Moshvoli í Fljóts-
hlíð og segir hann hestamennsk-
una vera tómstundagaman.
Hrossin eru vel í holdum og loð-
in á þessum árstima og eiga í
skjól að venda nærri bænum ef
veðrið gerir þeim glettur. Þeim
er annars gefið úti. Kristmann
gefur þeim úr heyrúllu og var
að ljúka við eina slíka þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að
garði. Þá höfðu hestarnir safn-
ast í hálfhring um húsbónda sinn
og líkaði tuggan vel.
Hólmanes SU 1
Allir
mættu
nema
tveir
ALLIR nema tveir úr áhöfn
togarans Hólmaness mættu til
skips kl. 13 í gær. Skipveijar
á Hólmatindi voru boðaðir til
skips kl. 20 í gærkvöldi. Boðað
var til skips á grundvelli fisk-
verðstilboðs útgerðarinnar frá
9. janúar síðastliðnum.
Skipveijar Hólmaness fengu
boðsent bréf frá skipstjóra þar
sem sagði meðal annars að
mættu þeir ekki til skips kl. 13
í gær liti útgerðin svo á sem
um fyrirvaralausa riftingu
ráðningarsamnings væri að
ræða og „mun útgerðin áskilja
sér allan rétt til að krefjast
bóta, jafnframt því að ráða
annan í þinn stað, ef til þess
kernur". Með bréfinu fylgdi
afrit af fiskverðstilboði útgerð-
arinnar.
Að sögn Guðna Þ. Gunnars-
sonar, yfirvélstjóra á Hólma-
nesi og annars þeirra sem ekki
mættu, urðu snörp viðbrögð á
meðal skipvetja þegar þeim
barst bréfið og sögðust menn
þá ekki ætla að mæta til skips.
Guðni er búinn að bera allt sitt
dót í land eftir yfir 20 ár á
skipum með nafni Hólmaness.
„Meginið af mínum starfsaldri
hefur verið í þjónustu þessa
fyrirtækis,“ sagði Guðni.
Er haft var samband við
Magnús Bjarnason, fram-
kvæmdastjóra hraðfrystihúss-
ins, í gærmorgun sagðist hann-
eiga von á að reynt yrði að
ráða nýja menn í stað þeirra
sem ekki mættu.