Morgunblaðið - 24.02.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 21
ERLENT
Stjórn Johns Majors í miklum vanda eftir afsögn þingmanns
Gæti neyðst til að
flýta kosningnm
London. Reuter.
SÚ ákvörðun breska þingmannsins Peters
Thurnhams að segja sig úr íhaldsflokknum
setur John Major í mikinn vanda og forsætis-
ráðherrann gæti neyðst til að boða til kosninga
á næstu mánuðum vegna þverrandi stuðnings
flokksins. íhaldsflokkurinn hefur nú aðeins
tveggja sæta meirihluta á þingi og stendur
frammi fyrir mikilvægri atkvæðagreiðslu um
niðurstöðu rannsóknar á sölu breskra vopna
til íraks á síðasta áratug.
Að minnsta kosti tveir þingmenn hafa sagt
að þeir séu að íhuga að taka afstöðu gegn
stjórninni í atkvæðagreiðslunni, sem fer fram
á mánudag. Major gæti því þurft að reiða sig
á stuðning þingmanna mótmælenda á Norður-
írlandi. Verði stjórnin undir í atkvæðagreiðsl-
unni gæti Major séð sig knúinn til að óska
eftir traustsyfirlýsingu frá þinginu og hætta á
að hún yrði felld.
Einn þingmanna íhaldsflokksins sagði
óhugsandi að stjórnin héldi velli lengur en fram
í október. Major kvaðst í gær „sár og vonsvik- -
inn“ vegna ákvörðunar Thurnhams en áréttaði
að hann væri staðráðinn í að boða ekki til
kosninga fyrr en í maí á næsta ári.
Thurnham ætlar að sitja á þingi utan flokka.
Hann er þriðji þingmaðurinn á fjórum mánuð-
um sem segir skilið við íhaldsmenn, hinir tveir
gengu til liðs við stjórnarandstöðuflokka,
Verkamannaflokkinn og Fijálslynda demó-
krata. Donald Dewar, talsmaður Verkamanna-
flokksins, sagði þetta sýna að stjórnin nyti
þverrandi stuðnings innan þingflokks íhalds-
manna. „Þetta bendir til þess að andinn innan
stjórnarinnar sé orðinn mjög, mjög slæmur og
hún sé byijuð að leysast upp.“
Ofbauð „afglöp“ flokksins
Thurnham hefur verið þingmaður Bolton í
13 ár og forystumenn íhaldsmanna í kjördæm-
Peter John
Thurnham Major
inu segja hann hafa sagt sig úr flokknum vegna
þess að hann hafi ekki verið valinn til fram-
boðs í öðru kjördæmi, Westmoreland, þar sem
hann býr. Verkamannaflokkurinn er talinn
öruggur um sigur í kjördæmi Thurnhams í
Bolton.
Thurnham neitaði þessu qg sagði að sér
hefði ofboðið „afglöp innan íhaldsflokksins“.
Hann sagði skýrslu sir Richards Scotts dómara
um vopnasölumálið alvarlegan áfellisdóm yfir
tveimur ráðherrum stjórnarinnar. „A hverri
blaðsíðunni á fætur annarri er afhjúpað mjög
slæmt klúður sem á engan hátt er hægt að
sætta sig við.“
Hjónavígsla
konu og
látins manns
stöðvuð
Marseille. Reuter.
HJÓNAVÍGSLA þar sem kona
hugðist giftast látnum sambýl-
ismanni var stöðvuð í Mar-
seille í Frakklandi á síðustu
stundu í gær af ættingjum
hins látna.
Patricia Montenez, sem er
35 ára, hafði fengið sérstakt
leyfi Jacques Chiracs forseta
til að giftast Claudie Darcy
lögreglumanni sem myrtur var
við skyldustörf 1994.
Eftir morðið leitaði Mont-
enez á náðir Francois Mitterr-
ands Frakklandsforseta og bað
um leyfi hans fyrir hjónavígslu
eftir dauða vegna sonar þeirra
Axels, sem nú er sex ára.
Halda átti fábrotna
vígsluathöfn í gær, en á síð-
ustu stundu kom babb í bátinn
vegna misskilnings milli ekkj-
unnar og tengdafólks. Að ósk
fjölskyldu hins látna lét réttur
í Marseille fresta athöfninni.
Skíðastretsbuxur
með púðum
Einlitar og marglitar.
Frábært veró.
Barnastærðir frá 7.900
Fullorðinsstærðir frá 8.900
SPOST
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
símar 551 9800 og 551 3072.