Morgunblaðið - 21.09.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.09.1997, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1997 % FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf .PÐINSGÖTU 4. SIMAR 551-1540. S52-1700. FflX 562-0540 Opið hus - Suluhólar 4, Rvík. Mjög falleg 51 fm 2ja herb. íb. á 3. hæð með stórum suðursvölum. Baðherb. og eldhús endurnýjað. Áhv. byggsj./ húsbr. 3,2 millj. Verð 5,4 millj. Eignin verður til sýnis i dag, sunnudag, frá ld. 15-17.Gjörið svo vel að líta inn, Katrín og Jón Gunnar. rgj, FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf ----- tf=J ÓÐINSGÖTU4, Sl'MAR 551-1540, 552-1700. FAX 562-0540 . Mosgerði — einbýli Til sölu þetta glæsilega einbýlishús, hæð og ris, gólfflötur 160 fm) ásamt 35 fm bílskúr. Húsið er að mestu endurnýjað að innan sem utan. Glæsilegar innréttingar, lagnir o.fl. 4 svefnherb. Fallegur suðurgarður. Verð 14,5 millj. Nánari upplýsingar veita eigandi Þórir Lárusson í síma 553 1813 eða Bárður Tryggvason í síma 896 5221. Valhöll fasteignasala, Mörkinni 3 sími 588-4477 4 ' -HÓLL- ' ^ af lífi og sál j Þverholt - Mos. Falleg og óvenjuleg 100 fm 3ja herb. penthouse-íbúð í góðu fjölbýli í hjarta bæjarins, öll þjónusta við höndina. Tvö góð herb., rúmgóð stofa, góð lofthæð, fallegt útsýni, suðvestur svalir. Áhv. 5,1 millj. byggsj. Hér þar ekkert greiðslumat. Lækkað verð 7,3 miilj. Guðrún býður ykkur velkomin(n) í dag milli kl. 14—17. Nú er bara að drífa sig! (3539) NII EIGN4M1ÐUMN * 9090 • l'ax 5«8 9095 • Si<Tuiiiúla 2 I Sverrir Krlstinsson lögg. fasteignasali, sölustjóri. Selvogsgrunn — Glæsieign Þetta einstaklega vandaða einbýlishús á einum af eftirsóttustu stöðum borgarinnar er nú til sölu. Hér er um að ræða eign í sér- flokki. Skipulag hússins er bæði glæsilegt og hagnýtt en það er teiknað af Skarphéðni Jóhanrtssyni. Húsið er 364 fm auk 33 fm bílskúrs. Á 1. hæð eru m.a. glæsilegar stofur með arni, bókaher- bergi sem og mjög gott eldhús með vönduðum tæjum. Á 2. hæð eru m.a. 3 svefnherbergi með snyrtingu og auk þess hjónaher- bergi með baðherbergi og fataherbergi innaf. Mjög rúmgóðar suðursvalir eru útaf 2. hæð. Glæsilegur stigi er á milli hæðanna. Möguleiki er á 2ja-3ja herbergja íbúð með sérinngangi í kjallara. Glæsilegur gróinn garður. Verð 24,0 millj. 7069. MINNINGAR BJARNIKRISTINN HELGASON + Bjarni Kristinn Helgason fædd- ist í Hafnarfirði 13. júlí 1948. Hann lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 16. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Helgi Kristján Guðlaugs- son, sjómaður í Hafnarfirði, f. 16.8. 1908, d. 26.3. 1991, og Ingigerður Ey- jólfsdóttir, f. 19.6. 1913, d. 26.12. 1995. Systkini Bjarna eru: Guðrún, f. 1935, Ingólfur, f. 1937, Jóhanna, f. 1939, Gísli, f. 1942, Unnur, f. 1944, Arnar, f. 1946, Viðar, f. 1950, Gerður, f. 1952, og Leifur, f. 1954. Bjarni lauk gagn- fræðaprófi frá Flensborgarskóla árið 1964. Hann stundaði ýmis störf um ævina, en lengst af vann hann við verslunarstörf hjá Kaupfélagi Hafn- firðinga eða þar til hann varð að láta af störfum vegna heilsubrests árið 1993. Utför Bjarna verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Bjarni Kristinn lést í Hafnarfirði langt um aldur fram. Hann var sjö- undi í röðinni af tíu systkinum. Kunningsskapur okkar Bjarna hófst þegar ég á barnsaldri bjó á Suður- götunni en hann á Blómsturvöllum við Jófríðarstaðaveg. Við fylgdumst að í gegnum ungdómsárin og til hinsta dags Bjarna. Síðustu sam- verustundirnar voru þegar ég ók honum af Suðurgötunni og á St. Jósefsspítala þar sem hann dvaldi síðustu mánuðina vegna veikind- anna. Þar lést Bjarni. Við Bjarni störfuðum saman hjá Miklagarði í Hafnarfirði en þar starfaði Bjarni um árabil í kjötdeild- inni. Bjarni gat sér svo gott orð í kjötvinnslunni að fólk dreif að um langan veg til að kaupa „Bjarna saltkjöt“ eins og það var kallað. Bjarni var léttur í lund og gaman- samur. Þess vegna var hann vina- margur. Kveðskapur og lausavísur voru honum mjög að skapi. Hann lét sér oft um munn fara það sem honum þótti athyglisvert. íþróttirn- ar voru ofarlega á dagskrá og það þurfti oft að fylgjast með því sem var efst á baugi. Bjarni var drengur góður og mátti ekkert aumt sjá. Það kom oft í ljós í versluninni á Miðvangi. En fyrir fjórum árum kenndi Bjarni sér þess sjúkdóms sem dró hann til dauða. Með fátæklegum orðum vil ég þakka góðum dreng samfylgdina. Góð vinátta verður seint fullþökkuð. Ég vil votta ættingjum og vinum Bjarna mína dýpstu samúð. Hilmar Kristensson. Góður kunningi minn er látinn eftir langa og erfiða baráttu við ill- vægan sjúkdóm, langt um aldur fram. Bjarni Helgason var ekki hár maður vexti, rauðbirkinn, snagg- aralegur og léttur í spori. Hann var gamansamur, orðheppinn og minnti oft á föður sinn í því sambandi. Bjarni skipaði ætíð sérstakan sess í huga fjölskyldu minnar, þar sem hann bar nafn föðurafa míns Bjarna Sigurðssonar frá Móakoti á Vatns- leysuströnd en Helgi Guðlaugsson faðir Bjarna ólst upp á því heimili frá tíu ára aldri. Bjarni ólst upp og bjó hér í Hafn- arfirði alla tíð. Fyrst hjá foreldrum sínum á Blómsturvöllum, eins og húsið á Jófríðarstaðavegi 7 var nefnt, og nú síðustu árin í eigin íbúð á Suðurgötu 78. Bjarni var sjöundi í röð tíu systkina. Eftir að Bjarni lauk gagnfræða- prófi frá Flensborgarskóla stundaði hann ýmis störf til sjós og lands. Frá árinu 1976 til 1993 vann hann við verslunarstörf hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga. Kaupfélagið, eins og matvöruverslunin hér í Norðurbæ í Lækjarberg 12 - Hf. Opið hús í dag milli 14.00 og 17.00 er sögu ríkari Margrét og Kristján munu taka vel á móti ykkur og sýna þetta fallega 187 fm einbýli, ásamt 36 fm bíl- skúr. Húsið er vel staðsett í hverf- inu. 4 svefnherbergi. Sólskáli. Eign sem vert er að skoða nánar. Áhvílandi mjög góð lán. Verð: Tilboð. Nánari upplýsingar á Ás fasteignasölu í síma 565 2790. HULDULAND Rúmgóð 5 herb. íbúð á 2. hæð. Stærð 120 fm. Útsýni af suðursvöium. 4 svefnherb. Þvhús innaf eldhúsi. Eikarparket. Flísalagt baðherb. Eign í góðu ástandi. Áhv. 5,8 millj. húsbr. Verð 10,7 millj. Laus fljótlega. 8825. FUNAFOLD BÍLSKÚR Góð 128 fm neðri sérhæð í tvíbýli með bílskúr. 3 svefnherb., góð stofa. Vandaðar innr. Parket. Fallegur garður. Áhv. 5 millj. byggsj. Verð 11,5 millj. 8748. BRATTHOLT MOS. Mjög gott 196 fm endaraðhús sem er hæð og kj. 5 svefnherb. Arinn í stofu, sólstofa. Suðurverönd, fallegur garður. Verð 11,8 millj. 8830. FURUBYGGÐ MOS. Fallegt og vandað 110 fm raðhús á einni hæð ásamt sólstofu. Vandaðar innr. Parket og flísar. Sólpallur. Verð 9.950 þús. 8827. KLYFJASEL Einbhús, hæð og ris, á steyptum kj. m/innb. bílskúr efst í botnlanga. Hægt að hafa séribúð á jarðhæð. 4 svefnherb. 2 stofur. Góð staðsetning. Falleg lóð. Útsýni (ekki alveg fullbúin eign). Verð 12,8 millj. 7749. Ármúla 21 DAN V.S. WIIUM. hdl. lögg.fasteignasali. Sími 533 4040. Opið sunnudaga kl. 12-15. Hafnarfirði er ennþá nefnd, er í mínum huga staðurinn þar sem ég kynntist Bjarna einna best. Má segja að í hvert sinn sem komið var við í „Kaupfélaginu" tækjum við Bjarni tal saman. í þeim viðræðum kom skýrt fram ágæt greind Bjarna og að hann fylgdist vel með þjóð- málum. Talaði hann jafnan fyrir og með þeim sem börðust fyrir jafn- rétti. Lífshlaup Bjarna Helgasonar þau 50 ár sem hann lifði var ekki ætíð blómum skrýtt. Bjarni greindist með sjúkdóm á sínum yngri árum sem háði honum alla tíð. Þegar svo háttar til er mikilvægt að til staðar sé bakhjarl sem gott er að leita til. Þessi bakhjarl var móðir hans Ingi- gerður Eyjólfsdóttur sem Bjarni sótti styrk og stuðning til alla tíð. Móðir mín og við systkinin kveðj- um Bjarna Kristin Helgason og þökkum samfylgdina. Systkinum Bjarna og fjölskyldum þeirra er vottuð samúð. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Blessuð sé minning hans. Sigurður Þórðarson. Fallinn er frá langt um aldur fram félagi og vinur, sem mörg undanfarin ár hefur barist hetju- legri baráttu við erfiðan sjúkdóm. Ég kynntist Bjarna þegar við vorum ungir menn á kafi í starfi hjá FH. Hann var einstaklega lag- inn með fótboltann og kunni allar helstu listir knattspyrnunnar og ég minnist þess hversu yngri drengirn- ir í FH fylgdust af athygli með tæknibrellum Bjarna og reyndu síð- an að taka þær eftir honum. Bjarni var einlægur stuðnings- maður FH og bræður hans og mág- ur voru þar afreksmenn í handbolta og knattspyrnu. Meðan heilsan ent- ist honum mætti hann á alla leiki félagsins og hafði ákveðnar skoðan- ir á öllu er varðaði leik og starf í félaginu okkar. Þrátt fyrir mjög erfiðan sjúkdóm missti Bjarni aldrei af því sem var að gerast hjá FH og þegar við hitt- umst var árangur FH alltaf efst í huga hans og einnig ræddum við pólitík, en Bjarni hafði mikinn áhuga á bæði lands- og bæjarmál- um og ekki fóru nú skoðanir okkar alltaf saman, en við skildum alltaf sem félagar og vinir. Ég veit að ég tala fyrir munn allra eldri FH-inga þegar ég þakka Bjarna samveruna og hans þátt í félaginu okkar og sendi öllum ást- vinum hans innilegar samúðar- kveðjur frá stórum vinahópi. Ingvar Viktorsson. Frágangur afmælis- og minning- argreina Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úr- vinnslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.