Norðurljósið - 01.01.1986, Qupperneq 27
NORÐURIJÓSIÐ
27
Vantar — menn og konur
Nú á dögum vantar okkur menn sem eru líkir Enok og Nóa.
Um þá er sagt: „Hann gekk með Guði.“ (1. Mósebók
5.22.24., og 6.9.).
Menn líkir Sadrak, Mesak og Abed-Negó. Menn sem þjóna
Drottni trúlega, hugrakkir, skylduræknir, og sem treysta
Guði algjörlega, og hjálp hans. (2. Mósebók 20.4.5., Daníel
3.4-30.).
Menn með vald eins og Nehemía — hygginn, öflugur,
hugrakkur, ákveðinn að verja djarflega allt sem er rétt.
(Nehemíabók 13.4-9.).
Menn líkir Páli postula — staðráðnir í að fara eftir leið-
beiningu Heilags Anda — í blíðu og striðu. (Póst.24.16. — 1.
Kor. 2.2,13).
Menn líkir þeim sem bjuggu í Beröu — lærðir í Biblíunni,
þeir sem rannsökuðu heilaga ritningu (Jóh. 5.39., Post.
17.11.) vegna þess að „sérhver ritning sem innblásin er af
Guði er og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar til leiðrétt-
ingar, til mentunar í réttlæti, til þess að guðsmaðurinn sé
algjör, hæfur til sérhvers góðs verks.“ (2.Tim. 3.15,16).
Ungir menn eins ogJabes sem biðja kærleiksríka föðurinn,
og þrá að lifa í ráðvendni. (1. Kronikubók 4.9,10).
Ungar konur eins og Rut, þær sem eru tilbúnar, ef nauðsyn
krefur að yfirgefa heimili, lönd, venjur eða hvað sem er, til að
vera með Guðsbörnum. (Rutarbók 1.16,17 — 2.11,12).
Eldri konur guðhræddar og ráðvandar eins og konan í
Súnem (2. Konungabók 4.8-37) eða Abigail (1. Samúelsbók
25.2-33) þær sem nota heilbrigða skynsemi sem Guð hefur
gefið þeim.
Feður eins og Abraham sem kallaður var „vinur Guðs“ (2.
Kronikubók 20,7) Jesaja 41.8) Já, hvað er meiri heiður en að
vera þekktur sem vinur Guðs?
Brœður eins og Aron og Húr sem studdu og hjálpuðu Móse
í baráttu sinni við Amalekíta (2. Mósebók 17.9-12).
Systur eins og María og Marta, ávallt tilbúnar til að þjóna
Jesú, og hlusta á kennslu hans. (Lúkas 10.38,39 — Jóh.
12.2,3).