Norðurljósið - 01.01.1986, Page 31
NORÐURIJÓSIÐ
31
arlest og sá mann sem var að lesa hók eftir Billy Graham.
Mér fannst ég kannast við hann og fór að velta því fyrir mér
hvar ég hefði séð hann áður. Þá rann það upp fyrir mér —
þetta var presturinn sem sló mig einu sinni í skólanum. Ég
spurði hvort hann myndi eftir mér. Nei, hann gerði það ekki.
Eg minnti hann á þennan atburð. Hann roðnaði og leit til
mín með tár í augunum. Frammi fyrir öllu fólkinu í lestinni
bað hann mig að fyrirgefa sér, og þegar ég sagði að ég gerði
það, þá faðmaði hann mig að sér. Hann sagði að hann hefði
beðið Guð að gefa sér tækifæri að hitta mig aftur. Hann var
trúaður maður og var að lesa bók, sem heitir „Friður við
Guð“.
Meiri hluti Spánar er allt öðruvísi en Benedorm, sem er
miðstöð ferðamanna með 33.000 rúm fyrir ferðamenn. í
öðrum landshlutum er fólkið trúrækið á yfirborðinu, en er
langt frá Guði. Fólkið fylgir gömlum venjum en er smám
saman að vakna til meðvitundar hvernig aðrar þjóðir Vest-
ur-Evrópu lifa.
Tekið úr „Evangelisin Today“.
I. G. þýddi.
Komið til mín
í guðspjalli Matteusar lesum við vel þekkt orð, sem reyndar
eru meir en orð, þau eru tilboð, sem enginn lifandi maður
hefur efni á að hafna. í frásögu þessari er sagt frá manni sem
talar til mannfjöldans og lýkur ræðunni með því að kalla:
„Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar,
og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt. 11.28).
Hver getur leyft sér að taka munninn svo fullan, að bjóða
fram slíkt tilboð? Það getur ekki verið nokkur maður, því að
hver hefur nóg með sjálfan sig í heimi þessum, sem hefur
aðallega erfiði og þungar byrðar að bjóða mönnunum.