Norðurljósið - 01.01.1986, Side 35
NORÐURIJÓSIÐ
35
hægt að koma með til Jesú Krists. Hann vill að menn iðrist
synda sinna og fái þannig fyrirgefningu. Hann vill ekki að
nokkur reyni að kaupa sér fyrirgefningu, t.d. með góðverk-
um. En maður sem er dauður í syndum og misgjörðum,
hvaða góðverk getur hann framkvæmt?
Kom, já, kom sem fyrst með tómar hendur og hann mun
fylla þær. Kom í öllum veikleika og hann mun lækna mein-
semdir þínar. Kom þú sem ert hungraður og hann mun metta
þig. Kom til hans með alla sekt þína og hann mun réttlæta
þig. Kom þú sem ert dauðvona og hann mun veita þér eilíft
líf.
Aðrar raddir heyrast líka kalla „kom“.
Heimurinn kallar. Hann býður mönnum frægð, ríkidæmi,
ánægju og góða stöðu í heiminum. Og ekki er að vefengja, að
„Komið til mín allir“, er vel þess virði að athuga það. Já, þótt
menn séu algerlega á valdi Satans þá eiga þeir von, en eina
vonin er Jesús Kristur. Komdu þess vegna til Hans. Snúðu
þér til hans af öllu hjarta. Kalla á hann hvar sem þú ert
staddur, Hann mun heyra kall þitt og frelsa þig.
J. C. Ryle. (P. S. þýddi).
Fletcher frá Madeley
1. kapituli
Fyrir meira en tvö hundruð árum, nánar tiltekið, 12. sept-
ember 1729 fæddist í Sviss einn af hinum merkilegustu
mönnum í allri mannkynssögunni, þekktur víða um heim
undir nafninu „Fletcher frá Madeley“. Að margra áliti hefir
enginn farið fram úr honum á sviði, andlegleika og heils-
hugar guðrækni.
Ef sérhver orðsins þjónn, trúboði og kristniboði yfir landið
þvert og endilangt gæti átt eintak af þessari frásögu þá
mundu koma andlegir lífgunartímar sem vart yrði við um