Norðurljósið - 01.01.1986, Síða 54
54
NORÐURIJÓSIÐ
heilagleika í samtali, en jafningja herra Fletchers hefi ég
ekki þekkt, nei, ekki á áttatíu árum ævi minnar.
Hann sinnti starfi sínu seint og snemma, hvernig sem
veðrið var góðviðri eða fúlviðri, skipti sér hvorki af hita né
kulda, regni eða snjó, hvort sem hann var á hestbaki eða
fótgangandi. En þetta veikti líkamskrafta hans, sem voru
orðnir veiklaðir af óaflátanlegu áframhaldi í starfinu, sem
hann stundaði án afláts, 14, 15, eða 16 stundir á dag.
Hann lét það ekki eftir sér að neyta þeirrar fæðu sem
nauðsynleg var til að halda líkamskröftum. Hann neytti
sjaldan reglulegra máltíða nema hann hefði gesti. Annars át
hann svolítið af brauði með osti eða ávexti tvisvar eða þrisvar
á sólarhring. í staðinn fyrir þetta drakk hann stundum
mjólkursopa og hélt þá áfram að skrifa.
Aftur vitnum við í eitt af bréfum herra Fletchers, sem sýnir
hans djúpu auðmýkt. „Ég undirbý sjálfan mig til að vera
líkur Drottni mínum í mínum litla mæli. Ég ætla að vera,
fyrirlitinn og útskúfaður af mönnum — maður sorgar og
kunnugur þjáningum — mest svívirtur fyrir það sem ég álít
best.“
„Ó, hvað ævin líður! Nú fer ég á harða hlaupum inn í
eilífðina. Hjól lífsins fer hratt niður bratta hæð tímans. Guð
hefir upp á síðkastið látið líf herra Wesleys hanga á þræði, en
eigi að síður trúi ég því að hann lifi mig. Svo að ég geri ekki
ráð fyrir að hjálpa til að fylla upp í skarðið þegar þetta stóra
tré fellur. Látum hverjum degi nægja sína þjáningu.“
Tilvitnunum úr bréfum hans til Charles Wesleys og
annara á þessum tíma má ekki sleppa.
„Ellin kemur fljótar til mín heldur en til þín. Ég er þegar
orðinn svo gráhærður, að ég skrifaði bróður mínum til þess að
vita hvort ég væri ekki fimmtíu og sex ára í staðinn fyrir
fjörutíu og sex. Hjól tímans snúast svo hratt að mér virðist ég
vera í nýju umhverfi en lofaður verði Guð, styrkur minn sem
varðveitir mig þó langtum betur en ég gæti vonast eftir.
Það getur verið að ég fari í eitthvert ferðalag á þessu vori:
hvert það verður veit ég ekki. Það getur orðið inn í eilífðina,
ég þori ekki að reiða mig á morgundaginn, en ef við hittumst
þá skal ég segja þér frá ýmis konar fjölskylduraunum, sem