Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 93
NORÐURIJÓSIÐ
93
hann enga húfu eða skýlu af nokkru tagi — því að þetta
fáfróða fólk heldur að Guði sé þóknanlegt að það þjáist og
það sem getur borið þjáningarnar með mestri þolinmæði sé
mest elskað af Guði. Nanoc, því að svo hét gamli maðurinn,
kom fast að turninum og kallaði hátt: „Heilagi fakír, hlustið
á mig vesælan mann sem leitar hjálpar."
Fakírinn rétt aðeins lét svo lítið að líta í áttina til hans en
hvorki hreyfði sig eða talaði. „Sjá,“ hrópaði Nanoc aftur,
„Sjáið þetta blað: það er ritað orðum guðlegs vísdóms, út-
skýrið það fyrir mér, ó, heilagi maður, hvað þessi orð
merkja.“
Ennþá neitaði fakírinn að gefa beiðni hans nokkurn gaum.
Nanoc tók langan vönd sem lá á jörðinni, gjörði rifu í
annan endann og stakk blaðinu í rifuna. Síðan lyfti hann því
hægt upp og hélt því á lofti.
„Farðu,“ hrópaði fakírinn, um leið og hann greip blaðið
og kastaði því burtu, „truflaðu mig ekki i guðrækni minni.“
Nanoc tók aftur upp blaðið sem hafði svifið um í loftinu.
Hann sá nú að hann gæti ekki fengið neina hjálp hjá fakírn-
um og fór því burt.
Meðan Nanoc sneri sér undan, þá fór hann aftur að líta
yfir blaðið, sem hann hafði fundið og er hann gjörði það, datt
honum í hug, að það væri ef til vill blað úr einu af þessum
miklu Hindúaritum. Satt að segja var það algjörlega ólíkt þvi
sem hann hafði heyrt prestana lesa en þó, þetta gæti verið
einn af þessum heilögu leyndardómum sem væru huldir fyrir
fólkinu.
Gagntekinn af þessum hugmyndum gekk hann hratt í
burtu til musterisins sem var reist guði viskunnar, þar sem
hann vonaði að fá leyst úr erfiðleikum sínum. En orðin,
„Guð er ljós,“ höfðu gefið honum nýjar hugmyndir um Guð,
svo að þegar hann kom að musterinu og sá þessi skrímslis-
legu skurðgoð með stóran uppblásinn líkama og fílshöfuð —
þó hafði hann séð það þúsund sinnum áður — þá fann hann
að þetta var gagnslaust og ekki til nokkurrar fræðslu svo að
hann sneri sér burt í örvæntingu.
Langan tíma reikaði Nanoc stað úr stað og frá musteri til
musteris í von um að hann gæti einhvers staðar hitt einhvern