Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1918, Page 129
Carl Joakim Brandt
129
var í nokkur ár heimiliskennari hjá etatsráð Rosenvinge; þar
komst hann í kynni við ýmsa af hinum frægustu mörnum,
sem þá voru uppi, svo sem Thorvaldsen, Oehlenschláger, Myn-
ster, 0rsted o. fl.; hann tók guðfræðispróf 1841 og var síðan
kennari ( mörg ár við uppeldisstofnunina.
Brandt var iðjumaður mikill og mjög hneigður að vís-
indalegum störfum. Eftir að hann hafði tekið embæltispróf,
lagði hann mjög mikla
stund á danska tungu
fyr á tíðum og elstu
bókmentir Dana, og
gaf út ýmsar bækur,
er þær snerta. Hjer
skulu talin helstu rit
hans: » Gammeldansk
Læsebog«; »Ældre
danske Digtere« I;
»Romantisk Digtning
i Middelalderen* I—
III; »Chr. Pedersens
danske Skrifter* I—V;
»Den danske Salme-
digtning« I—II; »Le-
gender«; »Bibelsk Bil-
ledbog*; »Lundekan-
niken Chr. Pedersen
og hans Skrifter«.
1845 stofnaði Brandt
»Dansk Kirketidende«,
og var útgefandi þeirra
1 30 ár.
Brandt tók prests-
vígslu 1860, var prestur
í Ronnebæk á suður-
hluta Sjálands frá 1860
— 72; það ár varð hann eftirmaður Grundtvigs við Vartov
kirkjuna í Kaupmannahöfn, og þjónaði því embætti til dauða-
dags. Hann dó 27. desember 1889.
Brandt var höfðinglegur ásýndum, »þjetturá velli og þjettur
í lund,« hreinn og beinn í allri framkomu. Hann þótti ágætis-
prestur, ræðumaður góður; heyrt hef jeg látið mikið af því, hve
mikil og góð áhrif hann hafði á fermingarbörn sín. Hann
var einn af hinum bestu fylgismönnum Grundtvigsstefnunnar.
9