Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1995, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
Fréttir
DV
Hörmuleg sjón mætti mönnum í Súðavík í gær:
Eyðileggingin gíf urleg
Eyðileggingin eftir snjóflóðið sem
féll á Súðavík á mánudagsmorgun
er gífurleg. Þegar rofaði til og lægði
í gær fengu blaðamenn og ljósmynd-
arar að fara til Súðavíkur. Aðkoman
var dapurleg. Rústir einar blasa við
mönnum þar sem snjóflóðiö féll.
Brak úr húsunum er á víð og dreif
um svæðið og bílar og annað sem
varð fyrir snjóflóðinu. Innan um
húsarústimar og gífurlegan snjó-
massann liggja síðan persónulegir
munir á víð og dreif, minning um það
Uf sem ekki virðist eiga eftir aö gróa
á þessum stað. Að minnsta kosti 22
hús eru gjörónýt eða stórskemmd en
um sjö tugir húsa vora í Súöavík.
Menn setur hijóða þar sem eyðilegg-
ingin blasir við og hugsa með skelf-
ingu til þeirra afla sem náttúran get-
ur leyst úr læðingi. Rammbyggð hús
hafa brotnað einS'Og væra þau úr
kubbum.
Meðal Súðvíkinga hefur það við-
horf orðið sterkara með hverjum
deginum að þeir vilji ekki fara inn í
þau hús sem enn standa í þorpinu.
Enn aðrir huga að brottflutningi.
Súðavík í þeirri mynd sem ísfending-
ar þekkja hana virðist ekki eiga
neina framtíð, veröur ekki til.
Sigríður Hrönn Elíasdóttir, sveit-
arstjóri í Súðavík, segir að fyrirhug-
að sé að hefja uppbyggingu á Eyrar-
dalslandi fyrir þá sem vilji snúa aft-
ur. Þar liggi aðalskipulag fyrir og þar
sé engin snjóflóðahætta. Hrepps-
nefndin reyni hins vegar að aðstoða
þá eftir megni sem vilji yfirgefa
Súðavík. Stefnt er að því að hefja
deiliskipulagningu á Eyrardalslandi
í vetur þannig að hægt verði að heíja
uppbyggingu í vor.
Hvarvetna blasir eyðileggingin við í Súðavík. Nú bendir allt til þess að þorpið í núverandi mynd tilheyri sögunni. DV-símamynd Halldór Sveinbjörnsson
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Vill aðstoða Súðvíkinga
Stjórn Sambands íslenskra sveit-
arfélaga hefur ákveðið að hefja und-
irbúning að samvinnu allra sveitar-
félaga í landinu um aðstoð við Súöa-
víkurhrepp vegna snjóflóðanna á
mánudag. Stjórnin hyggst senda öll-
um sveitarfélögum tillögur um fyrir-
komulag aöstoðarinnar strax og þær
liggja fyrir en formaður og fram-
Rafmagns-
laust vegna ís-
ingarogsjáv-
arseltu
Guðfinnur Finnbogason, DV, Hótmavik:
Nær öll Strandasýsla ásamt fsa-
fjarðardjúpi og hluti af Reykhóla-
sveit var rafmagnslaus þegar
óveðrinu slotaði í gærmorgun.
Aðeins var rafmagn á Hólmavík
og á Drangsnesi var keyrð vara-
aflsstöð.
„Þaö er hvergi um stórvægileg-
ar bílanir aö ræða sem við vitum
um. Aðallega ísing á línurn og
sjávarselta sem erorsökin," sagði
Þorsteinn Sigfússon orkubús-
stjóri á Hólmavík.
Vinnuflokkar hófu strax viö-
geröir og var fenginn liösauki,
m.a. flokkur frá Búðardal sem fór
í Hrútafjörð. í Árneshreppi og á
nokkram bæjum í Bitrafirði hof-
ur verið að mestu rafmagnslaust
síöan aöfaranótt 16. jan.
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga hafa boðist til að koma
vestur til fundar við hreppsnefndina
vegna þessa.
Samband íslenskra sveitarfélaga
hefur sent bréf til sveitarstjóra Súða-
víkurhrepps með samúðarkveðjum
til allra íbúa í Súðavík. í bréfinu
kemur fram að undirbúningur að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir að 1.660 milljóna króna
afgangur verði í rekstri borgarinnar,
samkvæmt flárhagsáætlun Reykja-
víkurlistans fyrir þetta ár, og fara
tæplega 1.300 milljónir króna í fram-
kvæmdir í skóla- og dagvistarmálum
í borginni á yfirstandandi ári. Borg-
arstjóri lagöi fram framvarp að fjár-
hagsáætlun borgarsjóðs fyrir árið
1995 til fyrstu umræðu á borgar-
stjórnarfundi í gær.
Fjárveitingar til skólamála og dag-
vistarmála hækka um helming á
þessu ári. Þannig er gert ráð fyrir
því að 830 milljónir króna fari í skóla-
byggingar árið 1995 meðan 445 millj-
samvinnu allra sveitarfélaga í land-
inu hefjist þegar í stað í nánu sam-
ráði við hreppsnefnd Súðavíkur-
hrepps. Þá hefur tilkynning veriö
send til allra sveitarstjórna í landinu.
„Við eigum eftir að átta okkur á
því í hvaða formi þessi aðstoð gæti
verið en mér finnst líklegast að þetta
verði í formi fjárframlaga. Við viíjum
ónir fóru í framkvæmdir í skólamál-
um á síðasta ári. Stærsti hlutinn, eða
270 milljónir, fer í annan áfanga við
Rimaskóla og 135 milljónir fara í að
ljúka Húsaskóla í Grafarvogi.
450 milljónir fara í framkvæmdir í
dagvistarmálum. Stærsti hluti þeirr-
ar upphæðar fer í byggingu þriggja
nýrra leikskóla, við Laufrima, Laug-
arnesskóla og í Bústaöahverfi, eða
227 milljónir króneuGert er ráð fyrir
að tveir þessara 80 bama leikskóla
verði teknir í notkun í lok ársins, að
sögn borgarstjóra. Þá fara 60 milljón-
ir í viðbyggingar við íjóra eldri leik-
skóla og 80 milljónir í breytingar á
öðrum leikskólum, svo nokkur dæmi
séu nefnd.
hafa náið samráð um það hvernig
aöstoðin verður skipulögð og hvað
hún verður umfangsmikil. Mikils-
verðast er að hreppsnefndin átti sig
á því hver þörfin sé. Svo getum við
brugðist hratt við því,“ segir Þórður
Skúlason, framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
í ræðu borgarstjóra í borgarstjórn
í gær kom meðal annars fram að
risna borgarinnar á síðasta ári hefði
numið um 28 milljónum króna, þar
af hafi um 17 mflljónir fallið tfl á
fyrstu sex mánuðum ársins en 11
mflljónir á síðari hluta ársins. Þann-
ig hafi meirihluti Reykjavíkurlistans
lækkað útgjöld vegna blómakaupa
úr 823 þúsundum króna á fyrstu sex
mánuðum ársins í 340 þúsund krón-
ur á síðustu sex mánuðum ársins
1994. Þá sé gert ráð fyrir aö skera
risnu borgarinnar niður um 20 millj-
ónir króna árið 1994, úr 71,5 mflljón-
um króna í 51,5 milljónir á þessu ári.
Stuttar fréttir
ísiandsferðir i Hollandi
Önnur stærsta ferðaskrifstofa
Hollands hefur hafið sölu á ferð-
um til ísland og þýðir það viðbót-
araukningu sem nemur um 500
feröamönnum i ár.
Áróður með framtalinu
Bæklingi um aðgerðir gegn
skattsvikum verður dreift með
skattframtölum landsmanna á
næstu dögum.
Hafnaforkaupsrétti
Bæjarráð Akureyrar hefur
hafhað forkaupsrétti aö togaran-
um Súlnafelli EA-840. Engar
veiðiheimildir fylgdu með í kaup-
unum.
Bama- og unglingavika
Samtökin Heimili og skóli
standa fyrir barna- og unglinga-
viku dagana 23.-29. janúar með
umræðu um stöðu barna og ung-
menna og kynningu sem varðar
umhverfi þeirra og framtíð.
Tilhæfu-
laus f rétt
Árni Grétar Finnsson, stjómarfor-
maður íslenskra aðalverktaka, sem
hafði milligöngu um sættir meðal
sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, segir
að frétt DV um að Jóhann Bergþórs-
son verði gerður að forstjóra ís-
lenskra aðalverktaka sé með öllu tfl-
hæfulaus. Slíkt hafi aldrei komið til
tals.
DV taldi frétt sína byggjast á
traustum heimildum en athugasemd
Árna Grétars er hér með komið á
framfæri.
Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt í borgarstjóm:
Blómakaup minnka
og risna skorin niður