Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1995, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
Fréttir
Enn hætta á snjóflóðum á Flateyri:
Snjóflóðavarnir komu
í veg f yrir stórtjón
- segir Kristján J. Jóhannesson sveitarstjóri
Guörramdur Sigurðsson, DV, Flateyri:
„Þaö er ljóst aö ef ekki hefðu verið
þessar snjóflóöavarnir heföi flóðið
falliö á byggðina meö miklu tjóni,“
segir Magnús Már Guðmundsson,
sérfræðingur Veðurstofunnar í snjó-
flóðavörnum, vegna snjóflóðanna
sem féllu úr Eyrarfjalli.
Snjóflóðið, sem féll við Ólafstún og
Goðatún á Flateyri, eyðilagði íbúðar-
húsið Goöatún 14. Flóöið lyfti þaki
hússins og braut innveggi og út-
veggi. í gær rofaði til á Flateyri og
þá kom í ljós að húsið, sem er timbur-
hús, er nánast ónýtt. Þar er því um
milljónatjón að ræða. Þá skemmdust
jarðýta og hjólaskófla sem stóöu fyr-
ir utan húsið. Húsið Ólafstún 14
skemmdist aftur á móti óverulega.
Þar gekk inn hurð á bakhlið og rúður
brotnuðu á sömu hlið. Snjóflóðið sem
olli þessu var hið síðara af tveimur
flóðum sem féllu úr Eyrarfjalli.
Fyrra flóðið staðnæmdist á snjó-
flóðavömum fyrir ofan þorpið en
hluti þess síðara féll utan við varn-
imar. Það er mál manna að varnirn-
ar hafi forðað byggðinni við Ólafstún
og Hjallaveg frá stórtjóni. Þarna er
um að ræða hóla og varnargarða fyr-
ir neðan þá. Seinna flóðið hljóp yfir
hólana og á milli varnargarðanna og
kastaðist á húsin sem eru þau ystu
við þessar tvær götur.
Magnús Már segir að enn sé eftir
lokaáfanginn við varnirnar.
„Það er eftir að setja varnir efst í
gilið. Það felst í því að sett verður
stoövirki á upptök. Þetta er þriggja
metra hátt vírnet sem sett verður
efst í gilið og gegnir því hlutverki að
stöðva upptök snjóflóöanna," segir
Magnús Már.
„Það er mín skoðun aö snjóflóða-
vamirnar hafi forðað frá stórtjóni.
Það er óbreytt ástand hér ennþá hvaö
varðar snjóflóðahættu og mjög mik-
ill snjór í fjallinu og á eyrinni," sagði
Kristján J. Jóhannesson, sveitar-
stjóriáFlateyri. -rt
„Samhygð okkar
er einlæg og sterkM
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, flutti eftirfarandi ávarp í
útvarpi og sjónvarpi í gærkvöldi í
tilefni landssöfnunar fyrir Súðvík-
inga:
Góðir íslendingar.
Á þungbæmm stundum þjöppum
við okkur saman, heilsteypt þjóð við
andstreymi í landi, þar sem náttúru-
öflin hafa birst okkur grimm og
óvægin. Harmar hafa sótt okkur
heim og við fmnum það glöggt sem
endranær, þegar að okkur er höggv-
ið, hve nákomin við erum hvert ööru.
Átakanlegur missir og harmur eins
veröur missir og harmur þjóðarinn-
ar allrar. Hvarvetna á íslandi dvelur
hugur manna þessar stundir hjá
þeim sem orðið hafa fyrir miklum
raunum. Samhygð okkar er einlæg
og sterk og öll vildum við eiga ráð
til að létta þeim þungar sorgarbyrð-
ar.
Við stöndum máttvana andspænis
því sem orðiö er og ekkert fær breytt.
En tíminn nemur ekki staðar heldur
er sá einn kostur okkar að halda
áfram og leita allra leiða til að milda
áfollin og vemda þá sem fyrir reiðar-
Vigdís Finnbogadóttir
slagi hafa orðið. Okkur gefst nú öll-
um færi á að rétta þeim hjálparhönd
og votta þeim samkennd okkar í
landssöfnun sem ber einkunnarorð-
in „Samhugur í verki“. Stuðningur
okkar og einhugur getur á þann veg
veitt þeim, sem að hefur verið vegið,
styrk til aö ganga til móts viö kom-
andi tíma.
Með djúpa hryggð í hjarta bið ég
Guð að blessa og styrkja þá sem hafa
þolaö sáran missi ástvina og íslend-
inga alla.
njóflóðin á Flateyri
ínjóflóöin
sóm féllu
kl( 17 og
21\þann 18/1lo^oo
' l Oq
Fyrra flóðið
stöðvaðist á
varnargarði
lóðið
se'm fþll
tveim þðgum
áður
°/0o° Ke"Ur
X °°s$g?gg«fi Sólb
?(j\Snjóflóðavarnir
Varnar-
Solbakki
garöar
VI •
Húsin tvo sem skemmdust
í snjóflóðinu standa viö
Goðatún 14 og Ólafstún 14
Landssöfnun hófst 1 gær:
Þrjátíu og átta
milljónir króna
söfnuðust
Landssöfnun vegna náttúru-
hamfara í Súðavík, sem ber yfir-
skriftina „Samhugur í verki“, hófst
í gærkvöld en að henni standa
Rauöi krossinn, Hjálparstofnun
kirkjunnar og allir fjölmiðlar.
Tekið er á móti framlögum í síma
800 5050, sem er grænt númer, en
hægt er að færa upphæðina á
greiðslukort eða fá heimsendan
gíróseðil. Söfnunin stendur til kl.
22 á sunnudag. Einnig er hægt að
leggja beint inn á sérstakan banka-
reikning söfnunarinnar, 1117-26-
800 i Sparisjóðnum í Súðavík.
Þegar fyrsta degi söfnunarinnar
lauk laust fyrir miðnætti í gær
höfðu safnast 38 milljónir króna.
íbúiáFlateyri:
Þreytandi að
búa við
þessa hættu
„Það er mjög þreytandi að búa
við aö hafa þessa hættu sífellt
yfir sér. Maður þarf sífellt að rífa
sig upp með börnin þegar þessi
ógn steðjar að,“ segir Guðríður
Kristinsdóttir, íbúi við Ólafstún á
Flateyri, sem varð að rýma hús
sitt ásamt tugum annarra Flat-
eyringa. Guðríður segir það ár-
visst að hún og íjölskylda hennar
verði að flýja hús sitt vegna snjó-
flóðahættunnar á þessum slóð-
um. Hún segir að atburðirnir á
Súöavík hafi slegiö marga.
„Þegar svona lagað gerist verð-
ur maöur auövitað hræddari en
annars. Þetta leggst líka illa í
bömin sem verða pirruð á að
komast ekkert út,“ segir Guðríð-
ur. -rt
Samhuguríverki:
Tónleikar í
Borgarleikhúsi
íslenskir tónlistarmenn ætla að
sýna samhug sinn í verki og efna
tfi minningar- og styrktartón-
leika í Borgarleikhúsinu nk.
mánudagskvöld. Allur ágóði af
tónleikunum rennur til Lands-
söfnunarinnar „Samhugur í
verki“.
Fjölmargir tónlistarmenn
leggja málinu lið og má þar nefna
Egil Ólafsson, Ellý Vilhjálms,
Grafík, Hálft í hvoru, HörðTorfa-
son, KK, Kór Langholtskirkju,
Magnús og Jóhann, Rabba, Ragn-
ar Bjarnason, Rúnar Þór, Skán-
’en ekkert og Spoon. Þá koma
fram nokkrir klassískir tónlistar-
menn en allir sem að tónleikun-
um koma gefa vinnu sínu. LR
leggur tfi Borgarleikhúsið endur-
gjaldslaust.
Miöaverð er 1.000 kr.
Siglufjörður:
Snjóflóð möl-
braut lyftuskúr
Gylfi Kristjánason, DV, Akureyn:
Snjóflóð féll á skiðasvæði Sigl-
firðinga á Skarðsdal í gærmorg-
un og hefur það verið mjög öflugt.
Enginn var á svæðinu þegar flóð-
ið kom niður skíöabrekkumar.
Snjóflóðið fór á milli tveggja
háspennumastra, beygði síðan og
tók með sér lyftuskúr. Hann bar
flóðiö með sér 300-400 metra og
skildi hann þar eftir mölbrotinn.
Þá fór flóðiö á neðri endastöð
skíðalyftunnar og beyglaöi hana
verulega. Tjónið er talið umtals-
vert og t.d. var raftnagnsbúnaður
lyftunnar í skúrnum sem flóðið
bar ofan í gil, upp úr því aftur
og mélaði síðan smátt.
Um kilómetra breitt snjóflóð féll á þrjá bæi norðan Hvammstanga:
Fjárhúsin horf in af yf irborði jarðar
um 80 flár fórust og heyrúllur skoppuðu eins og korktappar
„Það var ótrúlegt að sjá þetta. Það
var eins og klippt hefði verið á fleka
í hlíðinni sem er ekki mjög brött.
Flóðið er nánast jafnslétt yfir að líta
frá fjallshlíðinni og niður fyrir bæj-
arhlaðið - 1,5-2 metrar að dýpt. Það
fór yfir Vatnsnesveginn, sem er á
mifii fjalls og bæja, yfir túnin og tók
með sér heyvinnutæki og bíl, þeytti
honum tuttugu metra og 700-800
kílóa heyrúllur sem stóðu við hlöð-
una á Ytri-Ánastöðum höfðu skopp-
að um túnið eins og korktappar. Fjár-
húsin voru horfin af yfirborði jarð-
ar,“ sagði Hermann ívarsson, lög-
reglumaður á Hvammstanga, í sam-
tali við DV.
Hátt í kílómetra breitt snjóflóð féll
á bæina Ytri-Ánastaöi, Syöri-Ána-
staði og Bólstað um 7 kílómetra norð-
ur af Hvammstanga í fyrrakvöld, að
því er talið er. Tveir síðarnefndu
bæimir eru í eyði en að Ytri-Ána-
stöðum fór flóðið yfir tvö íjárhús og
fórust hátt í áttatíu fjár og nokkur
hross í flóðinu. Bærinn slapp én
heimilisfólk varð ekki vart við flóðið
fyrr en um klukkan tíu í gærmorgun
þegar tók að birta og veðri slotaði
eftir nóttina.
Þrátt fyrir að fjárhúsin hafi veriö
stuttan spöl frá bænum varð fólkið
þar, tveir bræður og foreldrar þeirra,
ekki vart við flóö fyrr en raun bar
vitni vegna veðurhamsins.
Við Syðri-Ánastaöi, sem eru
500-700 metrum sunnar og nær
Hyammstanga, er svipuð húsaskipan
og við Ytri-Ánastaði, þar vom útihús
nánast á bæjarhlaðinu. Þau fóm öll
í mask en flóðið þar nánast klofnaði
við íbúðarhúsið sem stóð eftir þó
rúður hafi skemmst. Við bæinn Ból-
staði eyðilagðist íbúðarhúsið en
austurhlið þess sprakk og fylla kom
inn í húsið.
Um klukkan hálfsex á þriöjudags-
kvöld voru bræðurnir að Ytri-Ána-
stöðum í fjárhúsunum. Þeir dvöldu
þar skemmri tíma en ella þar sem
þeir áttu eftir að handmjólka kýrnar
í fjósinu sem er nánast á bæjarhlað-
inu. Fjárhúsin vom um 100 metra frá
bænum. Hermann sagði að veður-
hæðin um kvöldið og nóttina hefði
verið ofboðsleg. „Það fór virkilega
að æsast upp úr klukkan sex um
kvöldið," sagði Hermann. Talið er að
flóðið hafi fallið á milli klukkan 18
og24afummerkjumaðdæma. -Ótt