Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1995, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
11
Meiming
Spegill, spegill
herm þú mér...
Þaö eru ekki mörg áhugaleikfélög á landinu sem
státa af jafngóðri aöstöðu til sýninga og leikfélagið í
Mosfellsbæ. I fyrra fékk það til afnota áhaldahús bæj-
arins, sem lokið hafði sínu hlutverki, og því var með
elju og dugnaði félaga breytt í prýðilegasta leikhús.
Leikfélagið gerir vel við börnin um þessar mundir
því að nú nýverið var frumsýnt þar ævintýrið alkunna
um Mjallhvíti og dvergana sjö í leikgerð Guðrúnar Þ.
Stephensen.
Guðrún er einnig leikstjóri og fylgir sögunni vel eft-
ir meö skynsamlegum áherslum. Dagbjört Eiríksdóttir
leikur Mjallhvíti, sem er ósköp falleg, ung og saklaus,
algjör andstæða drottningarinnar, sem vissulega er
glæsileg, en reynist vera hið versta flagð. Hlutverkið
liggur vel fyrir Dagbjörtu sem hefur skýra framsögn
og leikur af látleysi og þokka.
Þaö er viturlegt aö ganga ekki fram af yngstu áhorf-
endunum meö því að láta drottninguna vera of ógn-
vekjandi. Illska hennar liggur engu að síöur ljós fyrir
enda hrökklast hún burt úr ríkinu þegar upp um hana
kemst. Fulltrúar hins góða eru dvergarnir sjö sem eru
skrýtnir og skondnir karlar. Búningar þeirra og gervi
voru skemmtilega útfærð og börnunum er eftirlátið
að nota ímyndunaraflið svolítið því að þeir eru ekkert
sérstaklega litlir að sjá. Krakkarnir vita bara að þeir
eru pínulitlir og það nægir.
Það er mikið lagt í búningana sem eru einkar vel
úr garði gerðir og leikmyndin þjónar ágætlega sínum
tilgangi. Skiptingar gengu hratt fyrir sig, en það hefði
mátt deyfa ljósin betur milli atriða. „Af hverju labbar
hún sjálf inn?“ heyrðist í litlum gagnrýnanda, þegar
Mjallhvít á að liggja í dásvefni en sést greinlega skjót-
ast inn og leggjast sjálf fyrir í glerkistunni. Frammi-
staða leikenda var jöfn og góð, í söng, dansi og leik
miðað við að þarna er áhugafólk á öllum aldri að
verki. Mest kvað þó að skörulegri framgöngu þeirra
Gunnhildar Sigurðardóttur í hiutverki drottningar og
Maríu'Guðmundsdótturi hlutverki Matthildar. Börnin
sem léku héra og íkornabörn gerðu þaö einkar
skemmtilega og þá má ekki gleyma dvergunum sjö,
Leiklist
Auður Eydal
sem bera sýninguna uppi að stórum hiuta.
Og ekki má sleppa þeim „leikara" sem gerði hvaö
mesta lukku. Hryssan Nett stóö sig meö prýöi þegar
hún gekk á svið og lét hvorki sterk ijós né mannfjölda
trufla sig. Það var fróðlegt aö fylgjast með börnunum
í áhorfendahópnum á sýningunni sem ég sá. Nokkur
af þeim yngri voru greinilega ekki leikhúsvön og
töluðu háum rómi til að byrja með, rétt eins og þau
væru heima í stofu að horfa á sjónvarpiö, sem aldrei
lætur truflast. En þaö leið ekki á löngu þar til ævintýr-
iö náði tökum á þeim og það var andaktugur hópur
sem fylgdist meö því hvernig Mjallhvíti tókst með hjálp
dverganna að sigrast á hinu illa.
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir i Bæjarleikhúsinu:
Mjallhvit og dvergarnir sjö
Leikgerð og leikstjórn: Guðrún Þ. Stephensen
Söngtextar: Stefán Jónsson og Auður Kristmundsdóttir
Leikmynd: Jón Sævar Baldvinsson
Búningar: Auður Ragnarsdóttir og Svava Harðardóttir
Tóniist: Jens Hansson
Lýsing: Alfreð Sturla Böðvarsson
McDonalds
LEIKURINN
9 9
1 7
• 5 0
Verð kr. 39,90 mín.
McDonald's leikurinn er skemmtilegur leikur þar sem
þátttakendur eiga þess kost að vinna stjörnumáltíð fyrir
tvo á McDonald's. Það eina sem þú þarft að gera er að
hringja í síma 99-1750 og svara fimm laufléttum
spurningum um veitingahús, skemmtistaði og viðburði
helgarinnar. Svörin við spurningunum er að finna í
blaðaukanum
DV-helgin sem fylgir DV á föstudögum.
I
DREGIÐ DAGLEGA UR POTTINUM!
Daglega frá fóstudegi til fimmtudags verða fimm heppnir
þát^takendur dregnir úr pottinum og hreppa þeir hinir
sömu stjörnumáltíð fyrir tvo á McDonald's. Allir sem
svara öllum fimm spurningunum rétt komast í pottinn.
Munið að svörin við spurningunum er að finna í
blaðaúkanum DV-helgin. Nöfn vinningshafa
verða birt í DV-helgin í vikunni á eftir.
Suöurlandsbraut 56. Sími 581-1414
Opið daglega frá 10-23.00
Sviðsljós
Kátur hópur vaskra meyja og sveina i teitinu
DV-myndir Olgeir Helgi Ragnarsson, Borgarbyggó
Hrossasmalar
hittast aftur
ájaíhsléttu
Mikið teiti var haldiö í
Tungu í Svínadal í Borgar-
firði um helgina og þangað
boðið bjargvættunum öllum
sem tóku þátt í farsælli
björgun hrossastóðs úr 01-
færu klettabelú í Skarðs-
hyrnu 3. janúar. Vel var
veitt hjá þeim hjónum Fjólu
og Samúel Ólafssyni og hver
og einn fékk áritaða drykkj-
arkönnu með eigin nafni og
3 vísum að gjöf. Þrátt fyrir
dimmviðri og slæma færð
mættu flestir sem tóku þátt
í björguninni í Tungu.
Fjóla Samúelsdóttir afhendir Helga Bjarnasyni
könnu sina.
o
ch
oo
c
'tu
*o
<
MYND8ANDAGETRAUN
BONUSUIDEO
9 9 • 1 7 • 5 0
Myndbandagetraun Bónusvídeós er
skemmtilegur leikur þar sem þátttakendur eiga
þess kost aö vinna gjafakort með úttekt á þrem
myndbandsspólum frá nýrri og stórglæsilegri
myndbandaleigu Bónusvídeós að Nýbýlavegi
16. Það eina sem þarf aö gera er aö hringja í
síma 99-1750 og svara fimm laufléttum
spurningum um myndbönd. Svörin við
spurningunum er aö finna í blaðauka DV um
dagskrá, myndbönd og kvikmyndir sem fylgir DV
á fimmtudögum.
Dregið daglega úr pottinum!
Daglega frá fimmtudegi til miövikudags veröa
nöfn þriggja heppinna þátttakenda dregin úr
pottinum og hreppa þeir hinir sömu gjafakort
frá Bónusvídeói. Allir sem svara öllum fimm
spurningunum rétt komast í pottinn. Munið aö
svörin viö spurningunum er aö finna í
myndbandaumfjöllun DV á fimmtudögum.
Nöfn vinningshafa verða birt í blaðauka DV um dagskrá,
myndbönd og kvikmyndir T vikunni á eftir.
BONUSVIDEO
Nýbýlavegi 16. Sími 5644733
Opið virka daga frá 10 - 23.30.
Laugard. og sunnud. frá 12 - 23.30