Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1995, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
Spumingin
Ferð þú á útsölur?
Ragnar Friðbjarnarson: Stundum, en
hef ekki fariö á neinar í ár.
Guðrún Guðjónsdóttir: Já, ég er búin
aö fara á nokkrar.
Nína Hjaltadóttir: Nei, helst ekki.
Þarf ekkert á þeim aö halda.
Sigríður Klemensdóttir: Já, ég geri
þaö stundum ef þaö er eitthvað hag-
stætt.
Sveinbjörg Karlsdóttir: Já, ég er aö
skoða núna.
Lesendur
Náttúruöflin og eftirleikurinn:
Uppgjöfeða
skynsemi?
Súðavík fyrir slysið hörmulega. - Er endalaust hægt að þrauka?
Pétur Kristjánsson skrifar:
Mikil og hörmuleg atburðarás í
einu þorpa Vestíjarða lætur aö sjálf-
sögðu engan mann hér á landi ó-
snortinn. Öll höfum viö ríka samúð
með eftirlifandi nánustu syrgjend-
um, og öll erum við í raun syrgjend-
ur. Viö íslendingar megum hreinlega
ekki viö svona blóötöku jafn oft og
þó hefur orðið þegar náttúruöílin
fara hamfórum. - En lífiö heldur
áfram, og fáum, ef nokkrum, dettur
í hug aö leggja árar í bát.
Ríkisstjórnin hefur nú tilkynnt aö
Viölagasjóöur muni bæta öllum bú-
setum Súðavíkur það veraldlega tjón
sem orðið hefur. Það er góður ásetn-
ingur og við munum taka þátt í því
með glöðu geði. En síðan verður að
spyrja fleiri spurninga en spurt hefur
verið til þessa. Hvað ætlum viö að
ráðleggja fólkinu í Súðavík og á öðr-
um stöðum, t.d. á Vestfjörðum, sem
býr við svipaða ógn sem ávallt verð-
ur til staðar? Verður einfaldlega lagt
til að snjóflóðavarnir verði bættar,
að hættumörk verði endurmetin svo
að allir megi vel við una? - Hvort
tveggja er út í bláinn, að mínu mati.
Engin trygging felst í þessu tvennu.
Flutningur byggðarlaga frá þess-
um stöðum er eina ráöið sem mælt
verður með af heilindum. Vestfirðir
allir eru mjög harðbýlir. Og þótt
menn grípi til slagorða eins og þeirra
að segja að fólkið sé lika harðgert og
það vilji ekki gefast upp þá dugar það
skammt, Fólk sem missir sína og
aleiguna með getur ekki annað en
verið tvíátta um hvað gera skal. Það
að huga að búferlaflutningi er skyn-
semi - ekki uppgjöf. Það býður eng-
inn náttúruöflunum birginn enda-
laust og vita ekki hver eftirleikurinn
verður.
Það er mun hugnanlegra fyrir alla
landsmenn að veita fjármuni til fólks
á hættusvæðum til að koma sér fyrir
með þolanlegum hætti á sæmilega
öruggum landsvæðum heldur en
stuðla að því að byggja aftur, jafnvel
aftur og aftur, á svæðum sem eru
sannanlega hættusvæði. Hver vill
ráðleggja það? Hver vill taka ábyrgð
á því? Það er ekki endalaust hægt
að segja að fólk eigi að læra af þessu,
án þess aö nokkuð lærist, og halda
svo áfram að þrauka og láta skeika
að sköpuðu.
Islenskt barnalán!
Snorri í Betel skrifar:
Glæsilegasta samstarfsverkefni
stjómmálamanna á síðastliðnu ári
var för Össurar Skarphéðinssonar
og konu hans til Kólumbíu og ætt-
leiðing dóttur þeirra. - Ég hreifst af
því hvernig ráðherrar og alþingis-
menn lögðust allir á eitt til að kjör-
barn þeirra hjónanna vrði íslending-
ur. Þjóðin er fallegri á eftir.
Seinna heyrði ég að ekki hefði
reynst unnt að ættleiða íslenskt bam
siðan 1975. Þeimerfrekareytt! Þann-
ig fara 700 börn í súginn árlega. Al-
menningur borgar brúsann, án þess
að hafa nokkuö um málið aö segja.
Össur kom með frábæra tillögu um
að stofna sjóð til hjálpar þeim sem
vilja ættleiða böm. Væri ekki þjóðráð
að ráðherrar, alþingismenn og verð-
andi foreldrar á íslandi legðust nú á
eitt og létu þennan væntanlega sjóð
styrkja þær stúlkur sem vildu ala sín
börn fyrir kjörforeldra. - í stað þess
aö borga hátekjufólki fyrir að eyða
fóstri væri hægt að hjálpa illa stödd-
um stúlkum til að fá einn íslending-
inn í viðbót.
Slagorðið „Veljum íslenskt" gildir
því ekki aðeins um atvinnu og versl-
un heldur einnig um fóstrin og ætt-
leiðingar. Byggjum upp og fækkum
fóstureyðingum með því aö velja ís-
lendinga til ættleiðingar.
Unga stúlka, sem hugsar um fóst-
ureyðingu. Það em frábærir fóstur-
foreldrar sem bíða eftir barninu
þínu. - Veldu lífið og gerðu aðra ham-
ingjusama.
Bankabókin - sannur f arsi?
Lúðvíg Eggertsson skrifar:
Ein þeirra bóka sem athygli vöktu
í jóla-önninni var svonefnd Banka-
bók eftir Örnólf Árnason. Sá höfund-
ur varð þekktur fyrir „Kolkrabb-
ann“, er fjallaði um samanþjöppun
auðs á íslandi á fáar hendur.
Frásögnin var djörf en glettnisleg,
svo að ekki var auðvelt fyrir söguper-
sónur að andæfa, og enn síður að
hefja málarekstur. - Betra að þegja
bókina í hel. Það mun vera álit þeirra
sem bókina lásu, að hún hafi verið
gagnleg - ég vil segja nauðsvnleg.
Bankabókin er í svipuðum stíl,
auðlesin og skemmtileg. Nú beinir
höfundur gagnrýni sinni aö banka-
og peningavaldinu. Var vissulega
tími til kominn. Hann sýnir m.a.
Hringið í síma
563 2700
millikl. 14 og 16
-eða skrifið
fram á það að bankastjórar ná marg-
földum mánaðarlaunum hins al-
menna borgara með því að taka gjald
fyrir nefndarfundi og annað stúss í
vinnutímanum.
Pólitísk spilling kemur við sögu.
Ég hefi fylgst gjörla meö viðskiptalíf-
BMKABÓKl
I aatt'.sA-rí C- ),■«: i X.VC3 tj-
ss «>»1*4 j* áewsöwo: Ift-
r>tS w», tspcii?. tr> (r
un i**/* « 4rr* ** y* j : etew
»*» •>» Utsrí-r t»- at tr
<*»wir<!5 ap(MKa{}st:t4r»i
?*' Jl *3 2C<J»
Jferntj*u*U r*iti»•»•*
•t HwtopnuM* M »<r<utfa V-.T
n-As: »ajn
*.*>t 3 ? r»5^o:a»ru»i *%,
jt nt rr {<u.,ÍCÖ»f»r^aM> sg '0
i jhíwj
» hívt., »r3U.-0 t>a « gnV.ft
ítvsaiprtft.rj sxrwt* '**t
'*U* (*. t»
.» v*Jt *i útirla,',* l
*«>'**J« <a.. t^, þCat yint-ra
.•>«M4«.»»v-<- <« " V,»tjamor*»«><>>
tm; u-r -á: «
'W 9» >0*:* >-jpr» »■Ar
*<♦ ^■>‘>*ít'(i>- <
♦9tl> -98>>»''>rf'9»f> »r ■<«>( f»r
4«e jtx-rf
*"..................Eidey
Kúvending breytir bókinni í einhvers
konar farsa, segir í bréfinu.
inu hérlendis, enda kaupsýslumaður
í hálfa öld. Fæ ég ekki betur séð en
frásögn Örnólfs sé í meginatriðum
sönn.
Jóhannes Nordal fær sinn skammt.
Höfundurinn bendir á aö hann hafi
fyrst komist í ábyrgðarstöðu hjá
Landsbankanum á hæpnum forsend-
um. Lýsir síðan frekju hans viö að
kóma sínu fram: hann býður í veisl-
ur, laxveiöi, utanlandsferðir. Maður-
inn hefir ekki peningavit, segir hann,
líkt og Seðlabankabyggingin ber vott
um, sem og fjallháar lántökur hans
fyrir Landsvirkjun.
í lokin dregur Örnólfur í land. -
Jóhannes Nordal er orðinn „sjarm-
ör“ í líkingu við enska lávarða. -
Enginn var honum hæfari til að taka
við embætti hagfræðings í L.í. á sín-
um tíma. Höfundur klykkir út með
því að segja að hvorki hann né við-
mælandi hans, Nóri, heföi reynst
hætis hót betur en bankastjórar rík-
isbankanna, ef þeir hefðu hlotið slíka
stöðu. - Þessi kúvending breytir bók-
inni í einhvers konar farsa.
Frakkíleitarstarfa
Guillaume Jozancy skrifar:
Ég leita eftir 6-fi vikna sumar-
starfi á islandi næsta sumar. Ég
er við nám í „National Timber
Institute" og þarf að komast í
reynslu við eitthvert fyrirtæki
sem tengist framleiðslu úr trjá-
viði eða viðlíka verkefnum. Tala
bæði ensku og þýsku auk
frönsku. Hef komið til íslands og
líkaði svo vel dvölin að ég vil
freista þess að komast til landsins
þessar vikur ef mögulegt er. -
Þeir sem kynnu að hafa áhuga á
eða vildu veita mér móttöku (án
sérstakra launakrafna) vinsam-
lega hafi samband til baka. Heim-
ilisfangið er: 10, rue Emile Pe-
hant, 44000 Nantes, France.
Álitsgerð um
embættaveitingu
Guðrún Jónsdóttir skrifar:
Nýlega hlustaði ég í útvarpi á
lögfræðing sem útskýrði hvers
vegna bæjarfulltrúar mættu ekki
vera bæjarverkfræðingar, en
mættu hins vegar vera bæjar-
stjórar (eins og t.d. í Hafnarfirði).
Mér kemur í hug að tilvalið væri
fyrir þennan lögfræðing að semja
álitsgerö um embættaveitingar.
Deilur hafa risið um þær, m.a.
um skipun umboðsmanns bama.
Skrýtnast var í því sambandi að
konan, sem embættið hlaut, var
sú sama og tekið haföi við um-
sóknum annarra! Þetta minnti á
frásögn Laxness af Rauðsmýrar-
maddömunni sem gaf trippið í
vinning á tombólu en hlaut svo
vinninginn sjálf!
Kjartan kemur
íheimsókn!
Magnús Magnússon hringdi:
Morgunblaðið birti nýverið
frétt um opinbera heimsókn
Kjartans Jóhannssonar, fyrrv.
formanns Alþýöuflokksins og
núverandi aðalframkvæmda-
stjóra EFTA, til íslands. Hann
ætlar aö ræða við alla sem hann
nær í; forsetann, forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og full-
trúa vinnumarkaðarins. Gott er
að fá Kjartan heim til gamla
landsins, jafnvel þótt hann ræddi
ekki við nokkrun mann. - En
þarf aö boða komu hans opinber-
lega til heimahaganna?
Risahækkun
skattleysis-
marka!
Inga hringdi:
Nú hefur BSRB krafist. hækk-
unar skattieysismarka. Og hvað
haldiö þið að farið hafi verið fram
á mikla hækkun? Jú, úr kr. 58.299
í kr. 60.000! Þetta er slík risa-
hækkun, að mér varö hreinlega
um og ó. Svona rausnarskap hef
ég ekki lengi séð í bígerð!! - Er
þeim virkilega alvara hjá BSRB?
Ég bara spyr.
Þeirkvarta,
kennararnir
Ágúst hringdi:
Mér er til efs að nokkur starfs-
stétt hér á landi sé jafn kvörtun-
argjörn og kennarastéttin. Það
er u alltaf að berast bréf eða álykt-
anir frá kennurum, ýmist sam-
bandi þeirra eða einstaklingum,
þar sem þeir vitna til hinna lágu
launa sinna og segjast vera van-
haldnir i bak og fyrir. Einn sendi
opiö bréf til fjármálaráðherra á
dögunum og útlístaði vandræöi
sín, og hafði uppi launaseðil sinn.
Ráðherra svaraöi og hrakti stað-
hæfingar kennarans, sem er.,
kona. Leikmanni um launamál
sýndist því allt vera með endem-
um í málflutningi konunnar. En
í verkföll skulu kennarar, um það
ná þeir áreiðanlega samstöðu.