Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1995, Page 18
26
/
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
Iþróttir unglinga
Frjálsaríþróttir:
ÚrvalshópurFRÍ
íæfingabúðum
í Reykjavík
Eitt hundrað efhilegustu ungl-
ingar landsins í frjálsum íþrótt-
um, á aldrinum 15-20 ára, svo-
kallaður Úrvalshópur FRÍ 2000,
var í æfingabúðum í Reykjavík
helgina 13.-15. janúar.
Úrvalshópurinn kemur saman
í æfingabúðir fjórum sinnum á
ári og eru þetta aðrar æfingabúð-
irnar á þessum vetri. Meginþema
æfingabúðanna aö þessu sinni
var tækniþjálfun og tæknileg
greining.
Rækilega var farið yfir alla
þætti tækniþjálfúnar í öllum
greinum ftjálsíþrótta. Tæknileg
færni allra einstaklínga hópsins
var greind á myndbandi og löguð
fyrir æfingar. Allt var þetta gert
með það fyrir augum að bæta
tæknileg atriði í sérgrein hvers
og eins þátttakanda.
Sjö þjálfarar voru með ungling-
unum alla helgina og auk æfmg-
anna fengu unglingamir fræðslu
í formi fyrirlestra um ýmsa þætti
sem við koma afreksþjálfun ungl-
inga.
Unglingamir vinna sér sæti í
Úrvalshópi FRÍ 2000 með því aö
ná ákveðnum lágmörkum sem
sett eru af Frjálsíþróttasamband-
inu. - Unglingasíða DV mun fylgj-
ast miög náið með framvindu
þessa mikilvæga uppbyggingar-
starfs.
Knattspyrna:
FjöhtirogKR
meðþrenna
meistara
í nýafstöðnu Reykjavíkurmóti i
knattspymu innanhúss vakti at-
hygli góð frammistaða KR og
Fjölnis. - Tilfelliö er nefnilega að
þessi ágætu félög unnu í ails
þremur aldursflokkum hvort,
sem veröur að teljast frábær
frammistaöa. Sigurvegarar í hin-
um ýmsu flokkum kvenna og
karla urðu annars þessir.
Kvennaflokkar:
2. flokkur 3. flokkur KR KR
4. flokkur Meistaraflokkur KR
Karlaflokkar: 2. flokkur 3. flokkur ....Fram
4. flokkur 5. flokkur •Fiölnir
6. flokkur Finlnir
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, borgarstjóri i Reykjavík, var heiðursgestur á nýárssundmóti fatlaöra barna og unglinga sem fram fór í Sundhöll Reykjavikur
fyrir skömmu. Hún afhenti verðlaunin að keppni lokinni - og hér er hún reyndar að afhenda krökkunum viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í mótinu.
DV-mynd Hson
Bikarkeppni HSÍ í yngri flokkunum:
FH-krakkarnir leika til
úrslita í f imm f lokkum
- Urslitaleikimir fara fram um miðjan febrúar
Yngri flokkar FH eru í miklum ham
um þessar mundir ef marka má
frammistöðu krakkanna í 4-liöa úr-
slitum bikarkeppni HSÍ. - FH-ingar
komust nefnilega í úrslitaleikinn í
fimm flokkum af sex en það verður
að teljast framúrskarandi árangur
og bendir að sjálfsögðu til þess að vel
sé unnið að unglingámálum hjá því
ágæta félagi.
Undanúrslitaleikirnir fóru allir
fram um og fyrir síðustu helgi og
voru margir mjög spennandi.
Úrslit leikjanna urðu sem hér segir.
2. flokkur kvenna:
FH-ÍR......................18-13
ValurHaukar.................8-11
2. flokkur karla:
Stjarnan-Valur........Valur vann
FH-KA......................18-16
Umsjón
Halldór Halldórsson
3. flokkur kvenna:
KR-Haukar..................21-13
Stjarnan-ÍR........Stjarnan vann
3. flokkur karla:
ÍR-FH....................FHvann
KR-ÍBV....................19-15
4. flokkur kvenna:
Grótta-Fram................5-14
FH-ÍR.....................15-12
4. flokkur karla:
ÍR-Fylkir...............ÍR vann
Fram-FH...................13-14
Fram Reykjavíkurmeistari í 2. flokki
Fram varð Reykjavíkurmeistari i innanhússknattspyrnu í 2. flokki karla
fyrir skömmu. Strákamir sigruðu Viking i úrslitaleik, 4-2, og var ieikið
i Laugardalshöll. - Framllðlð er þannig skipað, aftari röð frá vinstri:
Ólafur Árnason, formaður knattspyrnudelldar Fram, Ágúst Guómunds-
son, liðsstjórí, Krfstinn Tómasson þjálfari, Grimur Axelsson, Karl Einars-
son, Bragi Viðarsson, Ingimundur Magnússon liðsstjórí og Ottó B. Arn-
ar. - Fremrl röð frá vinstri: Einar Örn Einarsson, Guðmundur Karl Guð-
mundsson, Páll Pálsson, Gunnar Sveinn Magnússon, Rúnar Ágústsson
og Sigurður Eli Haraldsson. DV-mynd Hson
FH-stelpurnar i 4. flokki gerðu það heldur betur gott í undanúrslitaleiknum gegn ÍR í bikarkeppni HSÍ því stúlkurn-
ar sigruðu ÍR, 15-12, og er myndin tekin strax eftir hinn spennandi og skemmtilega leik. FH-liðið er að sjálfsögðu
til alls líklegt i úrslitaleiknum gegn Fram i næsta mánuði. - Með stúlkunum er þjálfari þeirra og fyrrverandi lands-
liðsmaður FH, Viðar Simonarson. DV-mynd S