Dagblaðið - 02.06.1977, Page 1
3. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1977 — 119.TBL. 'ÍUTSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11T AFGREIÐSLA ÞVERHOLTL2 — IAÐALSÍMI 27022
Allsherjarverkfall íStór-Reykjavík á morgun:
Margir vikukaupsmenn
verða illa blankir
Vikukaupsmenn renna
vonaraugum til atvinnurek-
enda sinna um að þeir fái út-
borgað í dag, því að annars
frestast það til mánudags vegna
allsherjarverkfallsins á
morgun. Þetta verður komið
undir góðvild atvinnurekenda á
hverjum stað. Útlit var í
morgun fyrir að skemmtistöð-
um yrði lokað annað kvöld.
Hljómlistarmenn og starfs-
fólk í veitingahúsum fara í
verkfall. Þjónar hafa hins
vegar samið en í viðtali við DB
sagði talsmaður hljómlistar-
manna að vínveitingar væri
bundnar við að matur væri
framreiddur svo að ekki væri
hægt að hafa opið ef kokkurinn
væri í verkfalli.
Símastúlkur leigubílstöðv-
anna fara í verkfall en fólk
getur náð sambandi við leigu-
bíla meö því að hringja á staur-
ana og sums staðar er hefð að
leig'ubílstjórar svari sjálfir.
Strætisvagnar ganga sam-
kvæmt iaugardagsáætlun.
Bú.ast má við mjólkurleysi,
þótt örfáar búðir verði opnar
þar sem fjölskyldur eigenda
vinna.
Vörubílstjórafélögin fara í
verkfall en sendibíiar ganga.
Síðdegisblöðin koma ekki út á
morgun og morgunblöðin ekki
um helgina nema Mogginn á
sunnudag. Innanlandsflug
leggst niður en millilandaflug
—ogskemmti-
staðirverða
líklega
lokaðir
verður í gangi en stöðvast á'
mánudag þegar verkfall verður
á Keflavíkurflugvelli.
Allsherjarverkfallið á Stór-
Reykjavikursvæðinu nær til
flestallra félaganna. Þó eru
utan við það sjómannafélagið,
Sókn og grafíska sveinafélagið
auk þeirra, sem að framan eru
nefnd. HH
Menn tapa
milljóna-
tugum á
nauðungar-
uppboði
Suðra
„Jú, menn tapa milljónum
á þessu, milljónatugum,"
sagði Magnús Ármann á
skipamiðlunarskrifstofu
Gunnars Guðjónssonar um
nauðungaruppboðið á
flutningaskipinu Suðra i
Rotterdam i gær.
Hæsta tilboð í skipið á
uppboðinu var liðlega 2.6
milljór. gyllini, eða alveg um
200 milljón krónur. Er fjár-
hagslegt tap augljóslega
nokkuð mikið, því í frjálsri
sölu hefði verið hægt að fá
260—270 milljón krónur
fyrir Suðra, að sögn
Magnúsar.
Hann sagði að verið væri
að safna saman ógreiddum
skuldum útgerðarinnar,
sjóveðsskuldir hefðu allar
verið settar ,,í púkkið" í
Rotterdam.
Magnús Ármann kvaðst
ekki hafa fengið staðfest-
ingu þess að Suðri verði i
framtíðinni gerður út frá
eða skráður í Panama, hann
hefði þó heyrt það frá lög-
fræðingunum ytra.
mEBIABIB
Næsta
blað
kemur
útá
mánu-
daginn
Bobby fer gegnum tollinn á Keflavfkurflugvelli. Tollvörðurinn hefur heidur betur komið við sogu knattspyrnunnar her, Sigurður
Albertsson. Ekkert fannst í farangrinum, ailavega ekki mikið af mörkum.
Enska knattspyrnu
pundiðféll íverði
— Hvað ertu með, Bobby?
Eitthvað tollskylt? mætti ætla
að Sigurður Albertsson, fyrr-
um leikmaður með Keflavík og
nú starfsmaður í tollinum
suður á Keflavikurflugvelli,
væri að spyrja Bobby Charlton,
þann fræga kappa. Það fór vel á
með þeim köppum og Bobby
Charlton óg félagar hans léku í
gærkvöld á Laugardalsvellin-
um við úrvalslið KSÍ.
Þá féll enska knattspyrnu-
pundið i verði. lslenzku áhuga-
mennirnir sigruðu örugglega 5-
2 í stórskemmtilegum leik. Ingi
Björn Albertsson skoraði J)rjú
mörk, Olafur Danivalsson og
Guðmundur Þorbjörnsson eitt
mark hvor.
Bóbby Charlton sýndi gamla
snilldartakta og skoraði mark
— en það dugði lítt gegn vel
leikandi íslenzku liði. Sjá nánar
um leikinn á íþróttaopnu.
Svipmynd úr leiknum í gær-
kvöld. Æsispennandi sóknar-
lota að enska markinu. —DB-
myndir Bjarnleifur.