Dagblaðið - 02.06.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. JÚNl 1977.
3
FYLLERÍISKJAFTÆÐIÐ FYRIR NEÐAN
ALLAR HELLUR
Pálína Kjartansdóttir hringdi:
Ég á ekki eitt einasta orö til
yfir sjónvarpsmyndinni Blóð-
rauðu sólarlagi sem okkur var
boðið upp á að kvöldi annars í
hvítasunnu. Ég er stór-
hneyksluð. Að bera svona kjaft-
æði á borð fyrir fólk finnst mér
alveg fráleitt.
Ég er ekki ein um þessa
skoðun. Eg var stödd í húsi þar
sem var fólk á öllum aldri, —
einnig unglingar. Það voru aliir
á sama máli um að þetta
fylliríiskjaftæði væri fyrir
neðan allar hellur og ungling-
arnir gáfust upp á að horfa á
þessa dellu og fóru út i garð.
Það hefði örugglega mátt
skemmta okkur betur fyrir það
fé sem fór til þess að gera þessa
mynd. Hugsið ykkur hvað Ómar
Rag’narsson hefði getað skemmt
okkur betur í þennan rúma
klukkutíma og það fyrir miklu
lægra verð!
Betra væri að taka f yllerfismyndir h já Þjórsá
en eyða mill jónum f svona myndir
Sigurður bakari í Austurveri
hringdi:
Ekki var bakarinn par
ánægður með hið rauða sólar-
lag Hrafns Gunnlaugssonar og
taldi hann betra að skreppa
austur að Þjórsá þar sem úti-
skemmtun ku hafa verið. Þar
hefði verið létt verk að mynda
fulla menn, ælandi og lítt geðs-
lega með litlum tilkostnaði.
Sigurður sagði það til skammar
ef þessi framleiðsla yrði send
til hinna Norðurlandanna til
sýningar.
Hroll-
vekjan
var
frá-
bær
Anna skrifar:
Alveg var hún frábær mynd-
in Blóðrautt sólarlag, eftir
Hrafn Gunnlaugsson og tónlist
Gunnars Þórðarsonar alveg
stórkostleg.
Það þarf ekki einu sinni að
hafa orð á leik þeirra tvímenn-
inganna, Róberts og Helga,
hann var svo flottur. Umhverf-
ið var líka aldeilis fyrsta flokks,
— að hugsa sér að svona
,,draugabæir“ skuli virkilega
vera til. Þeir eru stórkostleg
umgjörð um svona hrollvekju!
Að vísu fannst mér að koma
hefði mátt með einhverja
skýringu á þessum dularfullu
fyrirbrigðum í enda myndar-
innar. En eins getur líka verið
að ég sé bara svona ólistræn í
mér, að ég hafi ekki skilið þetta
allt rétt.
En ég fékk martröð um nótt-
ina, — og svo hefur áreiðanlega
verið með fleiri. Mér finnst að
þessi hrollvekja sé svo góð og
fagmannlega unnin að hana
megi senda hvert á land sem er.
Ekki vantar viðbrögð áhorfenda vegna sjónvarpsmyndar Hrafns Gunnlaugssonar. Annaðhvort var
Blóðrautt sólarlag viðbjóður eða frábær hrollvekja.
Greinilegt er að sjónvarpskvikmyndin
Blóðrautt sólarlag hefur vakið mikla athygli.
Áhorfendur eru ýmist með eða ó móti eins og
gengur og skortir ekki lýsingarorðin ó bóða
bóga. Ollu fleiri virðast þó hneykslaðir ó
myndinni, en aðrir eru mjög hrifnir. Við
birtum hér sýnishorn af skoðunum sjónvarps-
óhorfenda.
AF SVO GÓÐU
MEIRA
Guðmundur hringdi:
Það var mikið að við fengum
almennilega íslenzka hroll-
vekju í sjónvarpið. Vonandi er
þetta aðeins vísir að öðru
Kagnheiður Guðmundsdóttir
hringdi:
Maður bíður í ofvæni eftir
íslenzku efni og fær þetta síðan
meira. Leikur, leikmyndir og
allt umhverfi var mjög gott en
endir myndarinnar að vísu full
óljós. Hvað um það, meira af
svo góðu. Það er hverjum
manni hollt að fá útrás fyrir
framan í sig. Blóðrautt sólarlag
er sá almesti viðbjóður sem ég
hef séð. Þetta á ekki að bera á
borð. Þetla er hrollvekjandi
ýmsa vessa og hvata fyrir
framan sjónvarpið. Það hefur
viða sýnt sig að menn fá útrás
fyrir ofbeldishneigð með því að
horfa á slíkar myndir.
viðbjóður. Eg botna ekkert í þvi
að sýna þetta efni. Alaumasta
innlenda efni sem sjónvarpið
hefur sýnt.
Raddir
lesenda
Umsjón:
Jónas Haraldsson
Hríngióísíma
83322
kl. 13-15
eða skrifiö
Hrollvekjandi viðbjóður
Vargaman
ívinnunni ídag?
Sigríður Guðbrandsdóttir, vinnur
hjá auglýsingadeild DB: Já, það
var ágætt. Það er alltaf gaman að
vinna hjá Dagblaðinu.
Gyða Rafnsdóttir nemi: Eg er
ekki búin að fá vinnu ennþá, svo
ég get ekki sagt um það. Ég var í
skóla í vetur. Ég eyddi deginum
bara í bæjarráp.
Ragnhildur Mikaelsdóttir, vinnur
á lögfræðiskrifstofu: Já, ég get
ekki sagt annað. Ég vélritaði, hit-
aði kaffi og fór á pósthúsið og
gerði fleira skemmtilegt.
Gunnar Klingbeil, vinnur í gler-
augnaverzlun: Nei, örugglega
ekki. Veðrið var svo dapurlegt og
eftir sæmilega helgi er alltaf
leiðinlegt að byrja. Það ætti að
snúa vikunni við og hafa 5 daga
frí og 2 daga í vinnu.
Kristín Þorsteinsdóttir, vinnur
hjá SS í Glæsibæ: Já, það var
ágætt. Mér líkar vel að vinna og
að hafa nóg að gera. Það er líka
gott að vinna inni þegar er
rigning og rok eins og í dag.
Ölafur Benediktsson sölumaour:
Ekki get ég sagt annað. Maður
kynnist mörgu fólki og sölu-
mannsstarfið er mjög fjölbreytt
starf.