Dagblaðið - 02.06.1977, Page 32
Ásgeir dýr!
Margir hafa vafalítið velt þvi
fyrir sér af hverju Ásgeir
Sigurvinsson lék ekki með úr-
valsliði KSÍ í gærkvöld. Hann
var að vísu nýkominn heim úr
fríi á Spáni og ekki hafði verið
farið sérstaklega fram á það við
Standard Liege að hann léki í
leiknum í gærkvöld.
Því var allt eins viðbúið að
Standard færi fram á
tryggingafé ef Ásgeir léki með i
gærkvöld. Standard hefur einu
sinni sett það að skilyrði ef
Ásgeir léki með íslandi að
trygging yrði sett. Það var í HM
leikjum islands í Belgiu og
Frakklandi. Þá setti Standard
kröfu um tryggingu að upphæð
10 milljónir franka — sem á
núverandi gengi er um 53
milljónir króna. Vafalítið hefur
sú upphæð hækkað verulega —
það er ef Standard færi fram á
tryggingu. Ásgeir Sigurvinsson
er iniðdepill i spili Standard og
hróður hans fer ört vaxandi.
Ný lög og harðari gegn tobaksauglýsingum:
Ekki má minna á
„líkkistunaglann”
Ný lög um ráðstafanir til að
draga úr tóbaksreykingum tóku
gildi í gær. Helztu nýmælin í þess-
um lögum eru þau að hvers konar
auglýsingar á tóbaki, hvort
heldur þær eru beinar eða
óbeinar, eru algerlega bannaðar.
Fram að þessu hefur verið
heimilt að auglýsa tóbak annars
staðar en í fjölmiðlum, kvik-
myndahúsum og utan dyra. Þessi
nýju lög þýða í rauninni það að
þær tóbaksauglýsingar sem uppi
hafa verið í verzlunum og víðar í
formi klukkna, ljósa, öskubakka
og innkaupapoka áttu að hverfa
með öllu á miðnætti 1. júní. Það
eina sem heimilt er að auglýsa í
sambandi við lóbak eru verð-
breytíngar frá ÁTVR.
Þegar DB menn fóru á stúfana í
gærmorgun virtust verzlunar-
eigendur ekki alveg búnir að átta
sig á þessum nýju lögum. Víða
trónuðu 1 jósaskilti í gluggum og
veggir sumra verzlana og gluggár
voru þaktir áskorunum um að
reykja þessa eða hina tegundina
af sígarettum. Eigandi einnar
verzlunarinnar sem komið var í
kvað tóbaksumboðsmenn hafa
beðið um að frestað yrði að taka
niður skilti með tóbaksauglýsing-
um því þau ætti að nota til aug-
lýsinga á öðrum varningi.
Reykingar á opinberum stöðum
og öðrum húsakynnum er heyra
til almenningsnota koma einnig
til með að hverfa. I lögunum er
sem sé heimild til handa ráðherra
að banna þær og hefur hann látið
á sér skilja að hann hygðist nota
þessa heimild. Langferðabílar,
fíugvélar, farþegaskip og leigu-
bilar verða undir sömu sök seldir
því ráðherra getur sett þau skil-
yrði fyrir heimild til reksturs
þeirra að reykingabann sé að
nokkru eða öllu leyti í þeim.
Til þess að sjá um framkvæmd
þessara laga er ráðherra heimilt
að setja nefnd og kemur hún að
nokkru leyti í stað Samstarfs-
nefndar um reykingavarnir en
hefur meira starfssvið. Sektír við
því að brjóta þessi lög geta orðið
allt að hálfri milljón króna og er
því betra fyrir verzlunareigendur
að fara að vara sig.
DS.
h*:
fmm * W $m.. m.
iKni 1 ^ < * > ’i
BrÁ 5 ? 1
É% ;4í%i
Uj- , m Jp f, " :■ |
Samkomulag um sérkröfur
verzlunarmanna í dag
Byggingamenn hafa hvorki sagt af né á um 2,5 prósentin
Ekki tókst í gærkvöldi að
ganga frá samningum um sér-
kröfur verzlunarmanna, en
vonir standa til, að það klárist í
dag. Þá verða sérkröfur
iðnaðarmanna enn óafgreiddar.
„Það er verið að vinna að því,
af öllum aðilum, að finna
lausn,“ sagði Benedikt Davíðs-
son, formaður Sambands bygg-
ingamanna, í morgun i viðtali
við DB. ,,Og svo biðum við með
óþreyju eftir því, að þau mál
leysist, sem aðalsamninga-
nefndin fjallar um, aðalkröf-
urnar. Miklar umræður hafa
staðið yfir síðustu daga um sér-
kröfur byggingamanna, og við
vonum, að eitthvað komi út úr
þeim," sagði Benedikt. Hann
sagði, að byggingamenn hefðu
hvorki sagt af né á um, hvort
þeir gætu fellt sig við samninga
um sérkröfur innan 2,5
prósenta rammans.
Samningar tókust í gær um
sérkröfur iðnverkafólks innan
, 2,5 prósenta ramma. HH
ÞETTA ER HRAFNINN SALÓMON
„Það er enginn heima" kallaði hrafninn Salömon (Salli) þegar hreppstjóri sveitarinnar kom í
heimsókn. Hann getur sem sé hermt bæði eftir mönnum og dýrum, svo vel að ekki er hægt að heyra
annað en að þau séu þar lifandi komin. Hann er tveggja ára gamall hrafninn sá arna og hefur siðan
hann fæddist, fyrir tveim árum, verið i fóstri á Búlandshöfða í Eyrarsveit. Þetta er meinstriðið
kvikindi og á hann til að gera hundana snaróða með því að kalla þá til sín og etja þeim saman. Kind'ur
lokkar hann að búrinu hjá sér og þarf oft að reka þær þaðan með illu. DS.
í hvíld frá samningum:
Veiddi stærsta
lax opnunar-
dagsins
Barði Friðriksson, einn helzti
oddamaður vinnuveitenda í
samningaumleitununum, brá
fyrir sig betri fætinum í gær,
skrapp upp í Norðurá í Borgar-
firði, — og veiddi þá 13 punda
hrygnu, þ.vngsta lax opnunar-
dagsins í ánni.
Stjórn Stangaveiðifélags
Re.vkjavikur var mætt f.vrsta
daginn klukkan 7 til leiks.
Fyrir hádegi leit áin heldur
illúðlega út, kolmórauð og
mikilúðleg. Veiddust þó 5
laxar, en eftir hádegi var farið
að sjatna i ánni og vatnið
hreinna. Veiddust þá 15 laxar.
flestir laxanna veiddust í
h.vlnum á E.vrinni.
Friðrik Stefánsson. fram-
kvæmdastjóri SVFR, tjáði Dag-
blaðinu i gærkvöldi að Norðurá
væ>ri að mestu bókuð i allt
suinar. en (Irimsá byði enn upp
á nokkrar stangir siðar i
mánuðinum. (Ireinilega ;etla
ntenn að renna fyrir laxinn i
sumar sem fyrr. JBP
frjúlst, úháð datfhlað
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1977.
Til aug-
lýsenda
Auglýsendum Dagblaðs-
ins skal bent á að vegna
óvenjulegra skilyrða til út-
gáfu, verkfalls á föstudag og
yfií-vinnubanns, þurfa aug-
lýsingar, sem birtast eiga í
blaðinu á mánudaginn, að
berast auglýsingadeild DB,
Þverholti 11, ekki síðar en
kl. 18 i dag. Tekið verður við
smáauglýsingum eins og
venjulega, eða til 22 í kvöld
og á laugardaginn til sama
tíma.
Eskifjörður:
Bæjarstjör-
inn f ær ekki
að vera
áfram
— ákveðiðað
auglýsa eftir nýjum
Bæjarstjórn Eskifjarðar
hefur nú ákveðið að auglýsa
eftir manni í embætti bæjar-
stjóra í stað Jóhanns
Klausen. Eins og DB skýrði
frá á sínum tíma hótaði
Jóhann að segja af sér ef
bæjarstjórn samþykkti kaup
á vissu húsi í bænum undir
elliheimili. Bæjarstjórn
samþykkti kaupin og hafði
bæjarstjóri því sjálfkrafa
sagt af sér en situr enn.
A fundum sem haldnir
hafa verið í bæjarstjórn
Eskifjarðar undanfarna
daga hefur verið rætt um
þessi mál. Hilmar Thoraren-
sen (F) bar upp tillögu þess
efnis að Jóhiann yrði látinn
sitja áfram út kjörtímabilið.
Hann sagði Jóhann vera
tilleiðanlegan til tilslakana
að vissu marki i sambandi
við elliheimilismálið. Guð-
mundur Auðbjörnss. forseti
bæjarstjórnar lýsti undrun
sinni á þessari tillögu Hilm-
ars. Sagði hann að þar sem
Hilmar hefði verið erlendis í
átta síðustu mánuði væri
hann ókunnur þéim- miklu
deilum sem orðið hafa út af
húsinu sem ætlað var
öldruðum. Kom Guðmundur
fram með tillögu þess efnis
að auglýst yrði eftir nýjum
manni í embætti bæjarstjóra
og var sú tillaga samþykkt
með 4 atkvæðum gegn 2 og
einn sat hjá þrátt fyrir það
að Hilmar og Jóhann hefðu
báðir lýst því yfir í
„klökkum rómi" að sögn
Regínu að betri og mikilhæf-
ari bæjarstjóra væri ekki,
hægt að fá. -Regína/D.S.
Féll 6-8 m
til jarðar
— en meiddist Irtið
Það slys varð í gær að
átján ára piltur. sem vann
við að reisa stálgrindarhús í
Garðabæ. féll af því til
jarðar. Var fallið talið sex til
átta metrar. En þrátt f.vrir
hátt fall hlaut pilturinn litil
meiðsli og ekki alvarlegs
eðlis. Verið er að reisa hús
þetta við hlið Gagn-
fra'ðaskólans og þá er slvsið
varð var verið að reisagriad
hússins. -ASt.