Morgunblaðið - 25.03.2001, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
M
IKILL áhugi hefur verið hin
síðari misseri á meðal kvik-
myndaframleiðenda að gera
bíómyndir úr síðari heims-
styrjöldinni og má líklega
rekja þann áhuga til firnagóðr-
ar myndar Steven Spielbergs, Björgun
óbreytts Ryans. Hver bíómyndin á fætur ann-
arri hefur síðan verið gerð eða er í framleiðslu
sem hefur heimsstyrjöldina að sögusviði. Af
þeim helstu má nefna Enigma, sem gerð er
eftir spennusögu Roberts Harris með sama
nafni með Kate Winslet í einu aðalhlutverk-
anna, og Perluhöfn eða Pearl Harbor, millj-
arðamynd ofurframleiðandans Jerry Bruck-
heimers með Ben Affleck í aðalhlutverki.
Nýlega var svo frumsýnd í Bandaríkjunum
mynd Annaud, Enemy at the Gates, sem gerist
í umsátrinu fræga um Stalíngrad þegar þýski
herinn gerði stöðugar árásir á borgina í fimm
kalda mánuði en Rússarnir vörðust með kjafti
og klóm.
Hetja Rússanna
Annaud byggir myndina lauslega á bók
sagnfræðingsins Williams Craigs um hið
fræga umsátur og segir frá fjórum þátttak-
endum í hinum grimma hildarleik, sem leik-
stjórinn segir að hafi litla athygli eða umræður
vakið. „Það er mér með öllu óskiljanlegt að svo
merkileg og mögnuð saga skuli ekki enn hafa
verið brúkuð í kvikmynd,“ er haft eftir honum.
„Hermaðurinn sem Jude leikur í myndinni
okkar er gríðarleg hetja í Rússlandi. Stytta af
honum stendur enn efst uppi á miklu minn-
ismerki sem borgarbúar reistu til minningar
um sigurinn í Stalíngrad.“
Breski leikarinn Jude Law leikur bónda sem
gerist hermaður og heitir Vassili. Hann er frá-
bær leyniskytta og verður svo frægur fyrir
hittni sína að Þjóðverjarnir kalla til sína eigin
goðsagnakenndu leyniskyttu (Ed Harris) til
þess að negla hann á meðan bardagar geisa
um borgina. Vassili á góðan vin, Danilov að
nafni, sem Joseph Fiennes leikur. Hann er
pólitískur erindreki sem á að sjá til þess að
frægð Vassilis fari sem víðast í áróðursskyni
en þeir takast á um ástir Taníu (Rachel
Weisz), ungrar konu sem berst með þeim í
skotgröfunum.
Svo kaldhæðnislega vill til að rústir Stal-
íngrads voru reistar í Þýskalandi ekki langt
frá landamærum Póllands og sumir hlutar
myndarinnar voru teknir í Berlín. Leikaraliðið
tók þátt í heilmiklum heræfingum til þess að
læra að fara með skotvopn og annað slíkt til-
heyrandi.
Byssufóður
„Það sem er svo óvenjulegt við stríðið um
borgina,“ segir leikkonan Weisz, „er að það
var háð af borgurunum sjálfum og skipti þá
engu máli kyn þeirra eða aldur. Allir sem einn
tóku þeir þátt í að verja borgina og borgarbúar
voru lítið annað en byssufóður fyrir nasistana.
Eins og margir vita er Jean Jaques Annaud
einn af fremstu leikstjórum Frakka og sá sem
lengst hefur náð út fyrir Frakkland ásamt
ólíkindatólinu Luc Besson. Annaud hefur gert
myndir af öllum stærðum og gerðum og er all-
ur heimurinn hans sögusvið og öll saga manns-
ins vettvangur hans. Er skemmst að minnast
myndar hans um frummanninn, Leitarinnar
að eldinum eða Quest for Fire, sem átti að taka
hér á landi, en hún vakti gríðarlega athygli á
leikstjóra sínum og gerðist fyrir ekki minna en
80.000 árum. Annaud er fæddur í síðari heims-
styrjöldinni eða árið 1943 í bænum Draveil.
Hann hóf feril sinn sem kvikmyndagerðar-
maður á því að gera sjónvarpsauglýsingar en
fyrstu bíómyndina sína, Svarthvít í lit, gerði
hann árið 1976 og byggði hana á reynslu sinni
sem hermaður í Afríkuríkinu Kamerún.
Frakkar tóku henni með mátulegri virðingu en
svo vildi til að hún vann óvænt Óskarinn sem
besta erlenda myndin það árið.
Erfitt að flokka Annaud
Leitina að eldinum gerði hann árið 1981 en
hún vakti gríðarlega athygli og Frakkarnir
dældu Cesars-verðlaunum á Annaud m.a. fyrir
bestu mynd og bestu leikstjórn. Hann var álit-
inn alþjóðlegur leikstjóri mynda sem engin
leið var í raun að flokka með öðrum og forð-
aðist formúlur, hvaða nöfnum sem þær nefnd-
ust.
Hann undirstrikaði það orðspor með næstu
mynd, Nafni rósarinnar, árið 1986, sem hann
byggði á frægri bók ítalska fjölfræðingsins og
rithöfundarins Umberto Ecos. Sean Connery
fór með aðalhlutverkið í einskonar Sherlock
Holmes-sögu um munk með einstaka spæjara-
hæfileika en myndin, rétt eins og bókin, naut
mikilla vinsælda.
Enn kom Annaud á óvart þegar hann gerði
Björninn þremur árum síðar en hún var öll
tekin í óbyggðum og sagði frá ævintýri bjarn-
arhúns og risastórs Kodiak-bjarnar. Naumast
var sagt stakt orð í allri myndinni sem byggð-
ist á þrotlausri vinnu með dýrunum og glæsi-
legri náttúrumyndatöku.
Þremur árum síðar sendi hann frá sér eld-
heita ástarsögu sem hann kallaði einfaldlega
The Lover og gerðist í Indókína þegar Frakk-
ar höfðu þar enn ítök á þriðja áratugnum.
Myndin vakti athygli fyrir bersögli og eldheit-
ar kynlífslýsingar í sögu af sambandi ungrar
franskrar stúlku og auðugs Kínverja; eftir-
minnilegust úr myndinni er þó Catherine De-
neuve eins og oft áður.
Í kulda og trekki
Annaud fór enn í sögubækurnar þegar hann
gerði svo mynd með bandarískum aðilum um
þýskan fjallgöngugarp í síðari heimstyrjöld-
inni sem hvarf inn í Tíbet og dvaldi þar í sjö ár.
Hann fékk sæmilegan leik út úr bandarísku
stórstjörnunni Brad Pitt í Sjö árum í Tíbet en
myndin sjálf bögglaðist eitthvað fyrir Annaud
og hann náði ekki þeim áhrifum sem sýnilega
var að stefnt; hvorki að segja átakasögu Tíbets
á óróatímum né gera persónusögu fjallgöngu-
garpsins nægilega góð skil.
Og nú er Annaud enn genginn á vit sög-
unnar með Enemy at the Gates. „Það sem
höfðaði sérstaklega til mín,“ er haft eftir hon-
um þegar hann talar um nýju myndina sína,
„er í hversu mörgum lögum hún er sögð og
hvernig hún fjallar um einstaklinga í breiðu,
sögulegu samhengi.“ Hann segist hæstánægð-
ur með þá leikara sem hann fékk í myndina og
segir ekkert hafa komið uppá sem skyggði á
samstarfið við þá „enda hefur það aldrei gerst í
mínum myndum nema ef vera skyldi þegar ég
var að leikstýra F. Murray Abraham í Í nafni
rósarinnar. Hann var ekki mjög góður maður.“
Joseph Fiennes kvartar helst undan kuld-
anum á tökustað en myndin var tekin að vetr-
arlagi eins og vera bar. „En hvílíkur kuldi,“
segir leikarinn. „Það voru andartök þarna sem
gáfu örlitla mynd af því sem fólk við Stalíngrad
þurfti raunverulega að þola í umsátrinu.“ Og
Annaud bætir við: „Við gleyptum heilmikið af
reyk og ryki og leðju í þá mánuði sem tökur
stóðu yfir. Það var mjög, mjög erfitt.“
„Jude Law lýsir því sem svo að hann hafi
legið „í drullu og skít“ svo mánuðum skipti auk
þess sem hann þurfti að sjá á eftir eiginkonu
sinni í hendur þýsku lögreglunnar vegna þess
að hún var ekki með réttu pappírana. En sumt
var hreinlega jákvætt við gerð myndarinnar.
„Ég fékk að sjá allar gömlu stríðsmyndirnar
aftur,“ segir leikarinn.
Franski kvikmyndaleikstjórinn
Jean Jaques Annaud hefur
gert mynd úr síðari heims-
styrjöldinni sem fjallar um
umsátrið um Stalíngrad.
Myndin heitir Enemy at the
Gates og fara Jude Law,
Ed Harris og Joseph Fiennes
með aðalhlutverkin.
Arnaldur Indriðason kynnti
sér Annaud og myndina.
Reuters
Leikstjórinn Jean-Jacques Annaud (t.h.) kom fram ásamt leikurunum Rachel Weisz, Jude Law og Bob Hoskins
til að kynna nýju myndina á kvikmyndahátíðinni í Berlín í febrúar.
Bardaginn
Stalíngrad
Jude Law leikur sovéska leyniskyttu sem skiptir út saxófóninum fyrir riffil.
Joseph Fiennes og Jude Law í hlutverkum sínum. Orrustuatriði úr mynd Annauds.
um